Fréttatíminn - 13.12.2013, Blaðsíða 116
Í takt við tÍmann DavÍð antonsson
Svitna þegar ég kem inn í verslunarmiðstöðvar
Davíð Antonsson er 23 ára trommari og bakraddasöngvari í hljómsveitinni Kaleo sem vakið hefur mikla
athygli fyrir fyrstu plötu sína. Kaleo treður upp á Gauknum 20. desember en útgáfutónleikar
sveitarinnar verða eftir áramót. Davíð horfir á Boston Legal og er hörku kokkur.
Seljabraut 54 og Langarima 21
Take-away - Heimsending
Nýir og glæsilegir staðir
Sími 5 444444
Þú sækir stóra pizzu, 2 lítra gos og stóran skammt af
frönskum og færð aðra stóra pizzu frítt með.
Greitt er fyrir dýrari pizzuna!
eða 20% afsláttur af pizzum þegar þú sækir
(gildir ekki með öðrum tilboðum)
JÓLATILBOÐ!
PLANET PIZZA
PIZZA GRILL
5 444444
PIZZA.IS
Pizzur - Hamborgarar - Pítur - Franskar - Salöt
Davíð var í þrjá
og hálfan mánuð
í sjálfboðastarfi í
Egyptalandi þegar
hann var sextán ára.
Ljósmynd/Hari
Vélbúnaður
Ég er Apple-maður og á bæði Macbook Pro og
iPad 4. Ég hef samt aldrei tímt að kaupa mér
iPhone því ég er svo duglegur að eyðileggja síma.
Ég er því með einhvern Galaxy Mini-síma. Ætli
ég noti ekki Facebook mest, þegar síminn virkar.
Ég er með meira blæti fyrir tónlistargræjum þessa
dagana. Við í Kaleo höfum verið að sanka að okk-
ur allskonar spennandi græjum upp á síðkastið.
Aukabúnaður
Ég er mjög duglegur að elda og góður í því líka.
Ég vann sem kokkur í túrista hópferð kringum
landið og svo lærir maður margt af þessum Mast-
erchef-krökkum. Þegar ég elda ekki sjálfur borða
ég alls kyns skyndibita en mér finnst líka gott að
fá mér sushi. Sushisamba hefur verið í uppáhaldi
upp á síðkastið og ég fer líka á Train. Ef ég fæ mér
steik fer ég annað hvort á Hereford eða Argentínu
og ég fíla líka indverskan og asískan mat. Já, mér
finnst gott að borða. Ég hef alltaf ferðast rosalega
mikið, bæði með foreldrum mínum þegar ég var
krakki og síðar sjálfur. Í fyrra fór ég einn á flakk
um Evrópu. Það var ekkert planað, ég byrjaði á
leiklistarnámskeiði í Þýskalandi og lagði svo bara
af stað með bakpoka og hjólabretti. Eftirminni-
legasta ferðalagið var þegar ég var sextán ára. Þá
fór ég til Sviss í þrjá mánuði og var svo í sjálfboða-
starfi í Egyptalandi í þrjá og hálfan mánuð. Ég
ferðaðist með bedúínum um eyðimörkina í þrjár
vikur og var einn um nótt í Kaíró. Það magnað-
asta var þegar við gistum uppi á Sinai-fjalli og
vöknuðum til að sjá sólarupprásina. Það var alveg
geggjað.
appafengur
Það er einfalt mál að breyta
snjallsímanum sínum í
hallamæli. Þú þarft bara að
sækja eitt app; Bubble level.
Nú þarf því enginn lengur
að leita að hallamælinum í
verkfærakassanum þegar
hengdar eru upp myndir í
stofunni heldur nægir að
kveikja á símanum. Þrenns
konar hallamælar eru í
þessu appi, þessi hefð-
bundni, yfirborðsmælir og
mælir sem hentar í jeppa-
ferðir upp á hálendið, það
er ef bíllinn er ekki sjálfur
búinn slíkri græju.
Bubble level fyrir iPhone
er ókeypis og því fylgja
honum auglýsingar. App
með sama nafni en þó ekki
alveg eins er fáanlegt fyrir
Android og fyrir Windows
síma er hægt að fá app
sem heitir Bubble Level,
Calculator, Ruler. Það er því
hægt að breyta öllum snjall-
símum í hallamál. Svona er
tæknin nú dásamleg.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bubble level
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn einkennist voða mikið af gallabux-
um og stuttermabolum. Ég pæli ekki neitt í merkj-
um, ég fer bara í það sem mér finnst flott. Fötin kaupi
ég nær eingöngu erlendis. Mér finnst svo rosalega
leiðinlegt að fara inn í fatabúðir og verslunarmið-
stöðvar að einu skiptin sem ég hef mig út í það er í
útlöndum þar sem allt er ekki eins dýrt og hér. Það
síðasta sem ég keypti mér hér á landi voru íþrótta-
skór. Ég hringdi þá í vin minn sem vann í Útilíf og
bað hann að hafa þá tilbúna, hljóp inn með bílinn í
gangi og borgaði. Ég byrja bara að svitna og verð
ómögulegur í verslunarmiðstöðvum og fatabúðum.
Hugbúnaður
Það er allur gangur á því hvert ég fer á djamminu,
það fer eftir því með hverjum ég er. Undanfarið hef ég
endað mikið á Dollý eða Harlem og svo er gaman að
rokka svolítið á Ellefunni þegar hinir staðirnir loka.
Ég panta mér annað hvort bjór eða gin eða vodka í
tónik á barnum. Þegar ég er ekki að stússast í tónlist
hef ég gaman af bíómyndum. Ég var eiginlega bíó-
sjúkur um tíma en nú fer ég ekki eins oft og áður í
bíó. Ég horfi mikið á þætti, eiginlega eitthvað á hverju
kvöldi áður en ég fer að sofa, til dæmis Breaking Bad
og It’s Always Sunny in Philadelphia. Og svo Big Bang
Theory, Suits og Boston Legal. Upp á síðkastið hef ég
horft svolítið á raunveruleikaþætti eins og Masterchef
Junior. Það er eitthvað fyndið að horfa á litla krakka
sem eru góðir að elda, það er í raun stórfurðulegt hvað
þau eru góð. Ég hef mjög gaman af að vera á snjóbretti
og hef tvisvar tekið þátt í Íslandsmóti á því. Nú er kom-
in einhver smá hræðsla í mig því ég má ekki meiða
mig á höndunum.
116 dægurmál Helgin 13.-15. desember 2013