Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Side 13

Fjölnir - 04.07.1997, Side 13
Sendið olclcMr efni Þannig höfum við, góðir landar, skýrt ykkur frá eðli og tilgangi þess tímarits sem við buðum ykk- ur til kaups í fyrra og höfiim við að vísu tekist of mikið í fang tíl að geta leyst það bærilega af hendi nema þið veitið okkur alla þá aðstoð og uppörvun sem í ykkar valdi stendur því sam- lieldni margra þarf til flestra fyrirtækja sem eiga að stuðla að almenningsheillum. Þess vegna er það ekki nóg að þið hjálpið til að bókin geti komið út framvegis með því að kaupa hana því hitt er ekki síður áríðandi að sérhver sem finnst hann sé fær um það semji ritgerðir um hitt og þetta sem hann heldur að geti orðið landinu til heilla og sendi okkur þær til prentunar. Öll þess- konar rit sem okkur kunna að berast í hendur prentum við óbrengluð eins og þau koma frá höfundunum sé efni þeirra og lögun samkvæm þeim ákvörðunum sem við höfúm sagt hér að framan að við ætlum aldrei útaf að bregða. Og verði þessvegna eitthvað af þeim svo lagað að okkur sýnist það sé óhentugt fyrir tímaritið sendum við það höfúndinum aftur með stuttri greinargerð um hvers vegna við höfúm ekki getað veitt því móttöku og þá má enginn hugsa að við höfúm fellt nokkurn dóm um gæði ritsins að öðru Ieyti því það hæfir okkur engan veginn. Hvað stafsetninguna áhrærir áskiljum við okkur að mega ráða henni á hverri grein svo hún verði ekki sjálfri sér ólík. Engu öðru dirfúmst við að breyta í því sem okkur kynni að verða sent en þyki eitthvað áfátt í orðavali og stílsmáta og efnið þó svo gott að við viljum ekki missa það biðjum við höfúndinn í hvert sinn að lagfæra það sjálfan og vonum að hann geri það fúslega ef hann getur fallist á okkar mál.46) Allar greinar í tímaritinu prentum við nafn- lausar nema höfúndarnir æski annars því það varðar miklu hvað sagt er en litlu hver sagt hefúr — að minnsta kosti er það oftast svo. Sumir sem eru ekki vanir að taka saman gætu unnið bæði landinu og sér sama gagn og aðrir sem rita ef þeir minna okkur á eitt og annað nytsamlegt eða þá eitthvað sem aflaga fer og vinna mætti bót á og verður ekki sagt frá nöfnum þeirra fremur en hinna ef til þess er mælst að þau séu dulin.47) Undir ykkur er það komið, íslendingar, hvort þetta verður fyrsta ár Fjölnis eða undireins hið os síðasta.481 Tómas Sæmundsson hvað innan um annað. Og það er ekki aðeins gert af óskýrleika aðstandenda blaðsins heldur af ásettu ráði. Niðurhólfuð og aðgreind hugsun er böl okkar tíma. 46) Sem fyrr sækist Fjölnir eftir samvinnu við alla menn og mun haga henni samkvæmt þeim reglum er Fjölnismenn settu sér. /,7) Allar greinar í Fjölni — utan fáeinar smá- greinar — verða merktar höfúndum sínum héðan í ffá. Þeir sem skrifa í Fjölni eða leggja til hans myndefni eru safn einstaklinga og munu birtast lesendum sem slíkir. Lesendum er treyst tíl að meta ffamlag þeirra eftir innihaldinu ffekar en per- sónunni. líi) Þessi áeggjan er hér með endurtekin mn leið og minnt er á að næsta hefti Fjólnis kemur út í haust — ef guð og lukkan lofá — og síðan ársfjórðungs- lega þaðan í ffá. CUNNAR SmARI EóILSSON Fjölnismenn: Jónas Hallgrímsson, Tómas Sæmundsson og Konráð Gíslason. Engin mynd var gerð af Brynjólfi Péturssyni. Pétur Gunnarsson: Fáein orð — um Fjölnismenn Undri er það líkast að Fjölnismenn skyldu ná að marka svo djúp spor þegar horft er til þess hve stutt þeir stóðu við. Tómas hafði aðeins fjóra um þrítugt þegar dauðinn kom og sótti hann; Jónas var ófertugur þegar hann vissi að hann gat ekki lifað lengur og Brynjólfur hafði einn um fertugt þegar hann mætti örlögum sínum. KóNRAð einn náði háum aldri, einangraður og utanveltu. Nú þegar tíminn hefúr blásið burt veruleik- anum sem umlék þá -— tómlæti, heimsku, fa- tæktarbasli og heilsuleysi — standa þeir effir goðumlíkir með guðamál á vörum. Okkur fall- ast hendur og orð andspænis þessari andagift, hvernig þeim tókst með tungunni einni að kljúfá þjóðarkjamann og leysa úr læðingi þessa óhömdu orku sem yljar og lýsir og knýr í gegn- um aldirnar. Upphaf Fjölnis er ómótstæðilegt, innblásinn stefnuskrárformálinn eins og lesinn af gulltöfl- um í túni nýrrar jarðar. Þá kemur ljóðið sem hvert mannsbarn hverfir sér vonandi undir tungu enn í dag. En að því búnu hefst fyrsta greinin: „Fáein orð. Um hreppana á íslandi“. í fljótu bragði kynni hér að virðast fúll brött lending — en það er líka hluti af töffum Fjölnismanna hve óhræddir þeir eru að snerta á hráum veruleikanum. Við þurfúm reyndar ekki annað en setja „samfélag" í staðinn fyrir „hrepp“ og væri þá komin fúllgild herhvöt til okkar tíma um „að Íslendíngar færu að sjá, hvað félagsandinn er ómissandi til eblíngar velgengn- inni í smáu og stóru“ og „að það er aumt líf og vesælt, að sitja sinn í hurju horni og hugsa um ekkert nema sjálfán sig, og slíta so sundur félag sitt, og skipta sundur abli sínu í so marga parta sem orðið getur — í stað þess að halda saman og draga allir einn taum...“ (Fjölnir l.ár, bls.31). Hitt er ekki nýtt að baráttumál eldist illa, um leið og þau eru sniðin ffá blóðrás tímans sem þau ól vilja þau skreppa saman og verða torkennileg. Stafsetning eftir ffamburði, Alþingi á Þingvöllum ... En baráttumálið hverju sinni er auðvitað birtingarform þess eldmóðs sem hverri kynslóð er nauðsynlegur til að hún finni hjarta sitt slá. Og þótt hin ölvaða bjartsýni og ffamfáratrú Fjölnismanna sé að hluta tímbur- menn okkar sem drögum andann f dag, þá eru þeir staðir fleiri þar sem Fjölnir orðar það sem síðari tímar hafa efiit eða eru jafnvel ennþá í fúllu gildi sem fyrirheit. Til að mynda þurfúm við ekki annað en setja sjónvarp í stað bókaút- gáfú til að hvert orð Tómasar Sæmundssonar tali til okkar þegar hann segir: „að landið væri miklu betur fárið, ef eina prentverkinu, sem það á, væri sökkt niður á fertugu djúpi, og það ætti ekkjert, enn að því sje svona varið, þjóðinni til skammar og til að mirða menntun hennar.“ (Fjölnir 5.ár. bls.95). Fjölnir hefst á því að nefna nafii Egcerts Ólafssonar, hann er í raun fimmti Fjölnismað- urinn þótt hann hefði senn legið sjö mgi ára á botni Breiðafjarðar þegar tímaritíð hóf göngu sína. Til Eggerts sækja þeir þessa fúrðu róttæku hugmynd að ísland sé land tækifæranna og lífið þar fúllboðlegt ef menn aðeins kunni að líta það og nýta í réttu ljósi. Frá Eggerti er líka komin hugmyndin um sljóleikann sem Iandlægan böl- vald fslendinga — það er engu líkara en þeir félagar séu stöðugt með þjóðina í kafbyl uppi á heiði og ríði á að varna því að hún sofni sálar- svefninum langa. Þegar kemur til kjarnans er andi Fjölnis- manna sígildur þar eð hann snýst um að finna upphafsorku íslenskrar menningar fárvegi í samu'manum og grundvalla frjálst og rismikið mannlíf. Það væru ekki fyrst og ffemst ytri orsakir sem stóðu í vegi heldur deyfð og drungi sem hver u'ð yrði að blása burt með sínum lúðurhljómi. Pétur Cunnarsson „Þegar kemur til kjamans er andi Fjölnismanna sígildur þar eð hann snýst um að finna upphajsorku íslenskrar menning- ar farvegi í sam- tímanum og grundvalla fijálst og rismikið mann- lífi Það vœru ekki fiýrst ogfremst ytri orsakir sem stóðu í vegi heldur deyfið og drungi sem hver tíð yrði að blása burt með sínum lúðurhljómi. “ F j ö 1 n i r sumar '97 .13

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.