Fjölnir

Ukioqatigiit

Fjölnir - 04.07.1997, Qupperneq 16

Fjölnir - 04.07.1997, Qupperneq 16
® Hannes Lárusson, 1984/97 Hreinn Friðfinsson Amsterdam — Hollandi f l J feij ÍjaA að RæaÍatu og sjálfsmynd fólks eru að linast. Hætta er á að gripið verði til varnaraðgerða á borð við þjóð- rembu og kynþáttaofstækis og einmitt þess vegna er nauðsynlegt að skoða hvað er á seyði. Þjóðern- ishyggja er alls ekki einfalt fýrirbæri.3> 3> Hall, Stuart (1991). „The Local and the Global: Globalization and Ethnicity". f Anthony D. King (ritstj.), Culture, Globalization and the World- system. New York: Macmillan, in association with the Department of Art and Art History, State University of New York at Binghamton, bls. 19- 39. ‘t>Jón Baldvin Hannibalsson (1994). Sjáljstœðis- baráttan hin nýja: um attjarðarást og alþjóða- byggju með meiru. Reykjavík: Alþýðuflokkurinn (A 08). Elctei bendn n mig { rannsókn minni á þjóðernishyggju í íslenskri stjórnmálaumræðu, sem ég birti útdrátt úr í Skírni vorið 1995 undir heitinu „Mýtan um fsland“, sló mig einmitt mest hve hægt er beita þjóðernislegri orðræðu á margvíslegan hátt. í deilunum um stöðu íslands gagnvart Evrópu kannaðist í fyrsta lagi enginn stjórnmála- maður við þjóðernishyggju. Hugtakið virtist að- eins ná yfir það sem lýst hefúr verið sem trúnni á þjóð sem náttúrufyrirbæri, stundum kallað menningarleg eða íhaldssöm þjóðernishyggja. Allir lögðu áherslu á að þeir væru að ræða póli- tískt vald eða fúllveldi þjóðarinnar í anda þeirrar þjóðernishyggju sem stundum er kennd við frönsku byltinguna — og það væri nú eiginlega ekki þjóðernishyggja. En í umræðunni miðri var merkileg eyða þar sem þessar hugmyndir mættust án þess að nokkur gerði sér rellu út af því. I umræðunni var nefnilega stöðugt verið að ávarpa íslendinginn, með stórum staf — ein- hverja sjálfsmynd þjóðarinnar eða samheiti yfir alla þá hagsmuni og eiginleika sem gera okkur að þjóð. Til dæmis var lögð áhersla á nálægð okkar við náttúruna og hvernig menningin mótast af því. Þessi sérstaða skýrði svo hvers vegna íslend- ingum sjálfúm er best treystandi til að fara með sín efnahagsmál og yfirráð auðlinda. Eru þetta menningarleg eða efnahagsleg og pólitísk rök? Hörðustu alþjóðasinnar gripu til rómantískra dæmisagna um karlmennsku íslendinga í baráttu við óblíða náttúru til að hvetja þá til dáða á al- þjóðavettvangi. Jón Baldvin sagði okkur frá sig- kappanum Eccja-CrImi þar sem hann stóð á bjargbrúninni með svarrandi Atlantshafið við fætur sér og eggjaði svo unga íslendinga — að vísu ekki fram af bjargbrún, heldur til að senda aðildarumsókn til ESB.4> En ekkert af þessu virtust menn tengja þjóð- ernishyggju. Henni er afneitað á sama tíma og skírskotað er til „sjálfsmyndar þjóðarinnar". Þessar hugmyndir um íslandsleikann virðast svo „náttúrulegar" að hægt er að byggja á þeim póli- tíska stefnumótun án þess að verða sakaður um þjóðernishyggju. Hínn óbœrilegi „islandsleílci" tilweHinnar Að baki pólitískri orðræðu samtímans liggja nefnilega allskyns ósagðar forsendur um þjóðern- ið og þjóðmenninguna — forsendur um landa- mæri hins ímyndaða samfélags sem rnýtan um þjóðernið breiðir yfir. Hægt er að tala um þjóð- ina sem pólitíska einingu, grundvallaða á frjáls- lyndi, þar sem m. a. innflytjendum er tekið opn- um örmum, en snúa sér í næsta orði að umræð- um um gífúrlegt mikilvægi íslenskrar tungu, ís- lenskrar menningar og íslenskrar sjálfsvitundar. Alþjóðahyggju er stillt upp sem andstæðu þjóð- ernishyggju um leið og bent er á vaxandi vægi íslenskrar þjóðmenningar í heimi alþjóðlegra samskipta. Áhyggjur mínar stafa af því að þetta tóma- rúm í íslenskri stjórnmálaumræðu sé hægt að fylla með útlendingahatri, kynþáttafordómum og menningarlegri hreintrúarstefnu. Þegar íslend- ingsímyndin er ávörpuð er nú þegar hluti þjóð- arinnar útundan. Hvað með þá sem ekki deila sögunni af lífsbaráttuna í þessu landi með okkur „origínölunum“, deila ekki með okkur „þjóð“- kirkjunni og ekki menningararfleifðinni? Þessi „náttúrulega" orðræða á að skapa ein- ingu hjá okkur sem kjósendum og tilfinningu fyrir sameiginlegum hagsmunum. Ég vil spyrja hve raunverulegir þessir sameiginlegu hagsmunir séu t. d. fyrir verkafólk sem fær að heyra að ýmis réttindi í samþykktum Alþjóða vinnumálastofn- unarinnar og ESB eigi varla við hér í okkar „veiðimannasamfélagi". Líffíð á flisinni islawdi Áherslan á sívaxandi mikilvægi hins sérstæða „íslandsleika“ í minnkandi heimi veldur áhyggj- um. Til að sefa þá sem óttast um íslenska menn- ingu er ítrekað bent á að Evrópusambandið bein- línis styðji og styrki menningu þjóðarbrota og hópa og hvort tveggja sé nú í mikilli uppsveiflu. Menntamálaráðherra og fleiri íslenskir stjórn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Fjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.