Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 18
Arnar Guðmundsson Afhverju þrjóskast þjóðernishyggjan við?
Birgir Andrésson
NÁLÆGÐ Lestur
„Afhenda" 1993
Gömul bæjarstæði,
skorin út i svartan pappír.
Hiww framondlegi heimsréttur
Það er því líka misskilningur að halda að hið
póstmóderna ástand sé að skapa algert frelsi fyrir
allskyns „hópa“ að koma fram í sögunni. Imynd-
irnar verður nefnilega að laga að markaðnum.
Það sem gerir þennan framandlega rétt spenn-
andi er fyrst og fremst munurinn. Verslun með
„öðruvísi" upprunalegar vörur blómstrar.
Hér er enn á ferðinni einhver hugmynd um
ekta og óekta landamæri umhverfis „hópa“. Stóru
sögurnar um „þjóðir“ og „stéttir“ eru afhjúpaðar
sem „óekta“ en eru þá „nýju hóparnir“ náttúr-
legir? Mér dettur í hug í þessu sambandi áherslan
á „ekta“ í neyslu hins upprunalega. Best er að
kaupa vörur sem framleiddar eru við erfiðar
aðstæður af „ekta“ frumbyggjum. Ef þessir frum-
byggjar bættu húsnæðið fyrir framleiðsluna og
færu að framleiða við mannsæmandi skilyrði og
fyrir skikkanlegt verð tapaði varan strax gildi
sínu. Hún hefði mengast af vestrænum viðskipta-
háttum. Það má til dæmis drepa hvali með bit-
lausum áhöldum ef kjötið fer ekki á markað.
Hall hefúr bent á að skilyrði þess að hinn nýi
kapítalismi geti náð tökum á muninum og ráðið
við hann sé einmitt það að þessir „öðruvísi hóp-
ar“ haldi sig heima ef svo má segja — á sínum
þekktu og skilgreindu slóðum.
Svo má líka spyrja hvort uppgangur þessara
svokölluðu andstöðuhópa á Vesturlöndum sé
alveg ótengdur umræddum breytingum á heims-
kapítalismanum? Ég hef fylgst með markaðssetn-
ingu umhverfishugsjóna í Bretlandi og það
hvarflaði stundum að mér að reikna út markaðs-
verðið á einu stykki grænum lífsstíl — viðeigandi
múndering og grænmetisfæði innifalið. Eru þessir
hópar ef til vill sjálfir ákveðið form á neyslu
ímynda?
Nýr oa ..ekta" stórisnwwleíKMr
Afram má halda og spyrja hvaða „munur" það sé
sem nú brýst fram og öðlast rödd og ekki má
þagga niður innan gömlu stóru sagnanna? Er
enginn munur innan þessara hópa? Ég bendi á að
innan þess hóps sem í Bretlandi tók upp pólitíska
baráttu undir sjálfsmyndinni „svartur" voru
margar ólíkar raddir og sögur — t. d. hin sér-
staka saga Breta af asískum uppruna, kúgunar-
saga svartra kvenna innan samfélags fólks frá
Karíbahafinu og svo mætti lengi telja. En hin
pólitíska sjálfsmynd sem stillt var upp í barátt-
unni var einfaldlega svartur og það var gert til að
freista þess að ná árangri við ákveðnar sögulegar
aðstæður.
Hve langt viljum við taka frelsunarfræði póst-
módernista? í þeim felst einhver óþolandi hug-
rnynd um fasta. Hvor er til dæmis dæmdur til
þagnar í bandalagi tveggja einstaklinga? Og er
víst að þessir einstaklingar séu hvor um sig fasti
en ekki samansafn ólíkra sjálfsmynda og radda?
Þessi hugsun um „ekta“ og „óekta“ sjálfsmynd
eða hópa er óþolandi blindgata sem að lokum
útilokar alla samsömun við aðra og samfylkingu,
t.d. til pólitískra átaka. Hvert kjarnasjálf er sjálfú
sér næst og það er ómögulegt að „tala fyrir aðra“.
Munurinn er orðinn að nýjum stórasannleika
og útgangspunkturinn um sjálfsmyndina sem
ferli í stað fasta hefúr týnst á leiðinni. Því ef við
höldum okkur við hugmyndina um sjálfsmynd-
Auglýsing
Má bjóða þér til menningarveislu?
Meðal efnis í vorhefti TMM:
Ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur . . . Nóbelsávarp
Szymborsku . . . Ljóð eftir Lindu Vilhjálmsdóttur . . . Smásaga
eftir Rúnar Helga Vignisson . . . Ljóð eftir Andra Snæ
Magnason . . . Grein eftir Jón Yngva Jóhannsson um
Fyrirgefiiingu syndanna á tveimur tungumálum . . . Smásaga eftir
Tapio Koivukari . . . Ljóð eftir Arthúr Björgvin Bollason . . .
Aður óþekkt bréf Becketts um Godot. . .
Sollers um Beckett. . . Ljóð eftir Onnu Láru SteindaJ . . .
Grein Sallenave um Pétursborg í 200 ár . . .
Ljóð eftir Elísabetu Arnardóttur . . . Verðlaunaljóð
Arnar Ulfars Sævarssonar . . . Verðlaunasaga Huldars
Breiðfjörð . . . Ljóð eftir Jón Egil Bergþórsson . . . Ljóð eftir
Svein Snorra Sveinsson . . . Maðurinn í náttúrunni, grein eftir
. . . Og fleira og fleira . . .
Mál og menning
Áskriftarsími: 510»25#25
TMM kemur út fjórum sinnum á ári og kostar ársáskrift 3300 kr. Askrifendur njóta
15 % afsláttaraf innbundnum bókum Máls og menningar og Forlagsins
í bókabúðum Máls og menningar