Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Page 50

Fjölnir - 04.07.1997, Page 50
í# og Hver er ástæðan fyrir þeim ógöngum sem ljóðið hefur ratað í? Er formleysan ástæðan fyrir merkingarleysinu? Formleysið og geðleysið? Deyfðin og doðinn? Hallgrímur Helgason veltir fyrir sér hvers vegna skáldin ná ekki lengur sambandi við ljóðformið, þjóðfélagið, sig sjálf— lífið. Ljóðið er halt gengur með hæku „Það er greinilegt aðpundið í gráum hœkufiðrildum vegur þungt þessa dagana í íslenskri Ijóðlist, ogein- hvemveginn er líkt og austrænn andi svifi yfir þeim vötnum sem um er ort og alltafstanda svo lygn. Hann er hættur að blása í íslenskum skáld- skap. Oðruvísi okkur áður brá. “ % Fj 50 o 1 n i r timarit handa islendingum sumar ‘97 Yosa Buson: Leðurblakan og perutréð — 120 hækur Þýðing Óskar Ámi Óskarsson Bjartur, Reykjavík 1997 Komið er út hjá Bjarti 120 hæku safn eftir Yosa Buson, sem lést árið 1783, og er einn af meistur- um þessa ævaforna japanska forms ásamt þeim Matsuo Basho og Kobayashi Issa en Óskar Árni Óskarsson hefúr áður þýtt verk verk þeirra fýrir sama forlag. Óskar Árni þýðir myndljóðin upp úr enskum og amerískum útgáfum, og við lestur safnsins hvarflar að manni að töfrarnir hljóti að hafa týnst einhverstaðar á þessari löngu leið. Heldur er þessi skáldskapur orðinn hversdagslegur - kominn í gegnum nokkur tímabelti og tvö, kannski þrjú, tungumál — hingað uppá kaldan klaka; ekki laus við þotuþreytu: 116 skarður máni hverfur sjónum út í kalda nóttina Áður en maður veit af er maður farinn að kveðast á við þann gamla: Sólin kemur / upp á morgun — / þá vöknum við. Eg er ekki vel að mér í hækulist en í formála segir Óskar Árni að bragfræði hækunnar sé fimm, sjö, fimm atkvæði í þremur ljóðlínum. Einnig tekur hann fram að fæstar þeirra þýðinga sem hann styðjist við fýlgi þessari reglu. Ósjálfrátt hvarflar að manni að hér sé að finna skýringu á bragðleysi ljóðanna. Japanska hækan er einskonar ferskeytla þeirra austanmanna og hvað stendur effir af ferskeytlu þegar hún hefur verið svipt bragfræðinni? I raun ekki neitt. Og þegar við bætist að frumgerðin er rituð með japönsku letri er maður nokkuð viss um að hér á íslenskum blöðum birtist manni einungis daufur enduróm- ur af upphaflegum galdri hækuformsins. I árdaga var leikaðferð hæku-skáldsins 5-7-5. í vísunni hér að ofan beitir þýðandinn hinsvegar reglunni 4-4- 7. Skáldskapur er jú ekki aðeins innihald, heldur einnig fornr — og í þessu tilfelli mjög strangt form — og verður þá fýrst magnaður þegar bar- áttan á milli þeirra harðnar. Eða hvernig hljómar íslensk ferskeytla á japönsku þýdd í gegnum amerísku? Hvernig hljómar „Yfir kaldan eyði- sand“ á ensku, í bragleysu? The desert is cold I travel alone by night The past is behind 1 have no home now Hér er gömul og góð — kannski sú besta? — íslensk vísa orðin að engu. Árangurinn er til- gangslaus. Betur heima setið en af stað farið. I'rátt fýrir þessa áberandi annmarka á þýðing- um Óskars Árna er ekki laust við að hér og hvar í safninu örli á póesíu, þó lesandi sé sem fýrr engu nær um fýrirbærið hæku og Ijóðgaldur hennar. 28 Fiðrildi sest á hálsfesti vígamannsins í launsátrinu Látlaus hógvær austræn fegurð, sem vel mætti þó rita: Fiðrildi sest á hálsfesti vígamanns- ins í launsátrinu. Formið skilar sér ekki í þýð- ingu. Oftar en ekki eru þetta þó nokkuð almenn tíðindi, þriggja alda gömul: 14 gamla konan í tehúsinu þekkir mig aftur; dáist að nýju vorkápunni Eins og áður sagði er Óskar Árni öflugur hækuþýðandi. Formálanum að Leðurblökunni og Perutrénu lýkur hann þannig: „Basho, Buson og Issa þakka ég fýlgdina, samneytið við þá félaga hefúr ef til vill veitt mér meira en mig sjálfan grunar.“ Orð að sönnu. Ef gluggað er í ljóðabækur Óskars Árna má glöggt sjá áhrif hinnar japönsku hæku. Ekki aðeins hefur skáldið ort íslenskar hækur hcldur er austræn fagurfræði líkt og ofin inn í þann silkiþráð sem ljóð hans spinna. Það er alltaf þetta japanska fiðrildi, hið sama og Buson setti á háls vígamanns, sem flögrar á milli lín- anna. fiðrildi neðan á stálvír línudansarans (Ferðahœka, Óskar Ámi Óskarsson, Norðurleið, Mál og menning 1993) í sömu bók er ort um pappírsfiðrildi. Bókin Einnar stjörnu nótt frá 1989 hefst á andardrætti fiðrilda og í nýjustu bók Óskars Árna, Ljós til að mála nóttina yrkir hann urn náttfiðrildi, fiðrildi og kumrandi traktora og síðskeggjað fiðrildi: það glampar á vængi (Úr tjóðinu Hönd bverfiir ogfiðrildi lýsir orustu, ÓskarÁmi Óskarsson, Ljós til að mála nóttina, Mál og menning 1996) Þessa stundina glampar víðar á japanska fiðrildavængi í íslenskri ljóðlist. Niðri á sléttunni glampandi fiðrildi á sléttunni fiðrildi en blómin öll moldarlit (Löngu liðið, Gyrðir Eliasson, Mold í Skuggadal, Mál og menning 1992, Ijóðið hér birt í heild) Fyrir tveimur dögum var ég að hugsa að það væri nú einkennilegt að sjá aldrei kóngafiðrildi nú orðið (Úr Ijóðinu Hugsað, úr bók Gyrðis Elíassonar, Indlánasumar, Mál og menning, 1996) Við förum slóð milli stráa að kirkjunni og ótal fiðrildi flökta framundan einsog örsmáir varðenglar (Úr Ijóðinu Vængir, Gyrðir Elíasson, Indíánasumar, Mál og menning 1996) Fiðrildi flögra allt um kring, nýsloppin úr hendingum sem landið hefúr ort (Úr Ijóðinu Úti i landinu, Gyrðir Elíasson, lndíánasumar, Mál og menning 1996) ...þegar allt kemur til alls getur reynst fúrðu þungt pundið í gráum hækufiðrildum (Úr Ijóðinu Bœkur, Gyrðir Elíasson, Indlánasumar, Mál og menning 1996) Það er greinilegt að pundið í gráum hæku- fiðrildum vegur þungt þessa dagana í íslenskri Ijóðlist, og einhvernveginn er líkt og austrænn andi svífi yfir þeim vötnum sem um er ort og alltaf standa svo lygn. Hann er hættur að blása í íslenskum skáldskap. Öðruvísi okkur áður brá. Það er jafnvel léttur þýðingar-blær yfir ljóðlínum eins og „niðri á sléttunni / glampandi fiðrildi..." Orðið „slétta" hefúr erlendan tón enda er ekki að finna hér á landi neinar sléttur, nema þá kannski Melrakkasléttu sem er nokkuð langt frá andblæ þessa ljóðs og væri þá rituð með stórum staf: Slétta. Líkt og hin glampandi gráu hækufiðrildi er orðið innflutt; á íslensku heidr það engi, engj- ar, tún, hagi, mói, mýrar, í versta falli láglendi, flatlendi eða sléttlendi en aldrei slétta.

x

Fjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.