Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Side 64

Fjölnir - 04.07.1997, Side 64
Alda Lóa Leifsdóttir Kúgun, klám og konur „Mackinnon notar harkalegar aðferðir við að koma máli sínu ájramfieri en í hók sinni Only Words þar sem hún veltir upp hug- myndum um klám og hiður lesandann sem er kvenkyns að ímynda sér þá aðstöðu að vera nauðgað affóður sínum. “ Auglýsing Laura Kipnis segir, en hún hefur stúderað og skrifað um Flint (og það löngu áður en Milos Forman og Hollywood settu hann upp á stall), er hann að framleiða efni ofan í þá stétt sem hann þekkir og kemur frá. „Hustler skar sig frá öðrum karlablöðum einsog Playboy og Penthouse sem setja samasemmerki á milli velgengni, lúxus og sætra pía með flott brjóst,“ segir Kipnis. „Flint sakaði samkeppnisaðila sína um að hylja kropp- ana og sýna ekki gotteríið." Með öðrum orðum, hann bauð ekki lesendum sínum upp á gyllivonir um smartara líf, heldur kepptist hann við að sýna þeim allt sem reynt var að fela. 1974 náði hann þriðjungi karlablaðamarkaðarins þegar hann sýndi skapahárin. Hann fikraði sig áfram á bannsvæðinu og birti nakinn karlmann fyrstur manna í hefð- bundnu karlablaði, fyrst með tippið dinglandi og síðan standandi út í loftið, nokkuð sem storkar Tarzan sem veður í brjóstum og bílum, en mynd af nöktum karlmanni vekur ógeð hjá honum, ekkert hommastand takk. Larry myndaði feitar konur, ófrískar konur, hvítar konur með svörtum karlmönnum, kynskiptinga, tvíkynja (herma- phroditur), fatlaða sem vantaði útlimi á og sló allt út með myndaseríu af fólki útbíuðu í sárum af völdum kynsjúkdóma (lekanda) sem getur varla talist kynörvandi. Hann var einnig mjög upptekinn af líkamsvessum, hlandi, sæði og túr- blóði (en það tema virðist einnig vera vinsælt í myndlistarheiminum þessa stundina, sænsk myndlistarkona vakti athygli á sér um daginn þegar hún tróð rottu í blender og drakk vökvann sem hún ældi og drakk síðan æluna og svo koll af kolli) og fyrir vikið var Flint líka kærður af öllum hugsanlegum hreyfmgum og samtökum einsog feministum, klerkum, stjórnmálamönnum, Jackie Collins og Ku klux klan. 1978 varð hann fyrir launsátri, þremur skotum úr 44 magnum og nú er hann lamaður fyrir neðan mitti. Hann var borgarskæruliðinn sem sofnaði aldrei á verðinum en stakk skítugum puttum sínum á kaf í allt sem virtist vera svo óaðfinnanlega huggulegt á yfir- borðinu. Þið eruð ekkert betri þótt þið beitið svona fínum borðsiðum, við erum öll syndug þegar við erum komin úr fötunum, eitthvað á þessa leið hljómaði boðskapur hans á áttunda og níunda áratugnum. Rika fræga fólkið, stjórn- málamenn og klerkar voru aðalskotspónn hans í teiknuðu bröndurunum og 1989 birtist ráða- stéttin öll í kynlífsteiti í „Hvíta húsinu" í sam- settri ljósmynd, en þar notar Larry eigin Hustler- módel sem pósa grófú stellingarnar en notar hausana af Nancy/Reagan og co. Ekkert er hjákátlegra en berrassaður Bandríkjaforseti. Kipnis segist hafa átt í erfiðleikum með að rannsaka og skrifa um Hustler lengi vel vegna þess að blöðin vöktu hjá henni ógeð í hvert skipti sem hún opnaði þau af því að í raun er Hustler að ráðast á hana, feministann, menntakonuna, betri borgararnn, yfirstéttina og hennar niður- njörfaða gildismat. Flint leit á sjónarmið femin- ista sem bull betri borgara sem þjónaði mennta- stétdnni. Á trúarflippi sínul978 tók Flint hliðar- spor, staldraði smástund við í kristilegum trúar- söfnuði og hugleiddi að breyta Hustler í kristilegt tímarit en um sama leyti bað hann allar amerísk- ar konur afsökunar og sagðist aldrei aftur, æda að birta kvenlíkamann sem kjötstykki. Stuttu síðar birtist forsíðumynd Hustlers. neðri parmr kven- líkamans á haus ofan í kjöthakkavél. Það verður ekki af honum skafið, maðurinn á til húmor. Eftir ótal málaferli og fangelsisvistir vegna mannorðs- og siðgæðisbrota á síðum Hustlers, sem myndin „People vs. Larry Flint“ (1997) eftir Forman fjallar aðallega um, er Flint dæmdur saklaus í hæstarétti Bandríkjanna árið 1986 og rýmkar þar með bandarísk lög um tjáningarfrelsi. í mynd Formans er Flint gerður að þjóðernis- hetju í þeim skilningi að hann berst fyrir mál- frelsi þjóðar sinnar og New York Times gaf mynd- inni einkunnina „þjóðernissinnaðasta mynd ársins“. Nokkuð sem fer í pirrurnar á Lauru Kipnis, að ribbaldinn Flint sé í þann mund að hvítþvo sig af sóðaskapnum, afvopnaður þjóð- ernissinni eftir allt. Hann fór með lítið hlutverk í kvikmyndinni þar sem hann lék dómara og núna situr hann við sama borð og andstæðingarnir forðum, í sjöunda himni, „og mér sýnist hann meira að segja hafa lagt af‘, segir Kipnis. Ég held ég átti mig á pirringnum í Kipnis. Hetjan hennar var eftir allt stútfúll af mannlegum brestum sem þráði virðingu eftir hinni gullnu smáborgaralegu leið, í þágu þjóðarinnar, alheilagur, amen ég er loksins kominn inn. Kaldastrið í kvennahreyfingunni Laura Kipnis hefúr stúderað klám út frá stéttarlegum forsendum og er á öndverðum meiði við kynsystur sínar sem berjast á móti klámi. Hún og fleiri feministar vilja meina að kvenréttinahreyfingin veðji á klámið sem eitt- hvert þungavigtaratriði af því að hreyfingin geti ekki tekist á við veigameiri mál einsog stéttaskipt- ingu. En einhvers konar kaldastríðsástand hefúr HVER ER hETTA EIGINLEGA? ! i ■ ■ ■- þETTA? ÞETTA eR HUN ER VIST ALVEG FRABA.R ' fljPAMJöm, ARHARim Sa/n ftéqerte: um &Mut‘SÍ iSámtHÍ [2(ira.j>ústta PABBl ! PABBI ! SJAÐOj TILGANGUR L'iFSINS ! f HERMANN PÁlSSON SiGURÖOR-.GYIFí MAfcMÚSSOIÍy HSLC-I C-UOfAUNDÍ lúu) |iri \m | V % \ S \ I /

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.