Fjölnir - 04.07.1997, Page 65
Alda Lóa Leifsdóttir Kúgun, klám og konur
n'kt í kvenréttindamálum, angi af vestrænni
kvennahreyfmgu hefur gert klám að sínum aðal-
óvini og vill banna klám á þeim forsendum að
það lítillækki konur og haldi þeim niðri. Að kyn-
líf geti verið frjór jarðvegur fyrir valdníðslu og að
klám feli í sér ofbeldi gegn konum. Frægastar í
þeim hópi eru Catharine Mackinnon prófessor við
lagadeildina við Háskólann í Michigan og Andrea
Dworkin fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Ms.
Mackinnon notar harkalegar aðferðir við að
koma máli sínu á framfæri en í bók sinni Only
Words þar sem hún veltir upp hugmyndum um
klám og biður lesandann sem er kvenkyns að
ímynda sér þá aðstöðu að vera nauðgað af föður
sínum. Hún skrifaði líka bókina Tuming Rape
into Pomography og þóttist sanna með rannsókn
ásamt Dworkin árið 1984 að klámhorf yki á of-
beldi gagnvart konum, en sú rannsókn hefur nú
verið afsönnuð. Enn eru engar gagnmerkar nið-
urstöður til um það hvort einhver tengsl séu á
milli kláms og ofbeldis.
Ellen Willis pistlahöfúndur Village Voice segir
um þessa öfgasveiflu innan kvennahreyfingar-
innar: Tilhneigingin er sú að meta konur sem
kynferðisleg fórnarlömb en ekki sem kynverur,
og drifkraftur hreyfmgarinnar er sá að ná stjórn á
kynferðislegum hugmyndum karlmanna í stað-
inn fyrir að berjast fyrir frelsi og opnari hug-
myndum um kynlíf fyrir konur, og þessi stefna
eykur á undirokun kvenna.“
Ameríski rithöfúndurinn Salue Tisdale, mikill
aðdáandi kláms, gaf út bókina Let's Talk Dirty
fyrir nokkrum árum. 1 bókinni lýsir hún yfir
áhuga sínum á klámi en í kjölfarið spyr hún sjálfa
sig af hverju fólk forðist að tala um kynlíf. „Klám
getur líka haft örvandi áhrif á konur, en þær eru
ekki sáttar við það,“ segir Tisdale, „en ef þær
afneita tilfmningum sínum þá munu þær aldrei
skilja klám.“ Tisdale sér heiminn fúllan af konum
sem eru hræddar við langanir sínar og meta duld-
ar kynlífsfantasíur sínar sem hálfgerðan viðbjóð.
Sjálf viðurkennir hún að það sé til fúllt af klámi
sem henni mislíki en það kann hins vegar að vera
efni sem vinkonur hennar heillist af.
Candida Royale stofnandi Femme Distri-
bution Inc. framleiðir klám og notar það sjálf.
Hún segir í Gmrdian í nóvemberl994: „Ég held
að konur eigi mjög erfitt með að koma óskum
sínum á framfæri og oft hafa þær ekki hugmynd
um hvað þær eiginlega vilja. Klám getur í því
tilfelli hjálpað konum til að komast að því. Ég
hef kynnst sjálfri mér með því að horfa á klám og
leyfa fantasíum mínum að komast upp á yfir-
borðið, og þær eru sumar ekkert of huggulegar,
en þetta hefúr gefið mér frelsi og vellíðan með
sjálfa mig.“ Laura Miller talsmaður „Good
Vibrations" segir í sömu blaðagrein: „Klám er
hráefni fyrir ímyndunaraflið og þjónar sama
tilgangi og góð matreiðslubók.“
i hlutwerki fórnarlambsins
En hvað skeði í kvenréttindahreyfingunni sem
byrjaði sem mannréttindahreyfing þegar konur
brutust út úr sínu leiðinlega og niðurjörfaða
hlutverki? í gær opnaði ég Newsweek og rakst á
grein með yfirfyrirsögninni „Silent singers",
samantekt á nokkrum söngkonum í poppheim-
inum nú. Þessar konur voru sagðar eiga það
sammerkt að vera dularfúllar og hlédrægar en
ekki alveg mállausar einsog mér datt í hug við
fyrstu sýn. í framhaldi af því fannst mér einsog
ég hefði séð ótal svona fyrirsagnir og umfjallanir
um konur og þá sérstaklega ef þær eru listamegin
í lífinu. Eitthvað á þá leið að þær séu dularfúllar,
ósnertanlegar, fórnarlömb, gyðjur eða nornir,
bara eitthvað allt annað en venjulegar manneskj-
ur sem vilja taka þátt og njóta lífsins. Og ef ég
skýst aftur til Eymundssonaráranna og dreg fram
kvennablöðin þá voru þetta allt rosalega upp-
skrúfaðar verur sem þóttust vera úr öðrum
heimum en minni venjulegu taugaveikluðu
veröld. En þetta eru bara hlutverk og mín tilfinn-
ing er sú að konur eru miklu meira fálmandi eftir
leiðinlegum og háfleygum hlutverkum en karl-
menn. Þær leyfa sér síður að bara vera og hafa
gaman af þessu lífi. Lítum bara á ofúrfyrirsæturn-
ar. Þær eru líka matreiddar í hlutverk, Campbell
þetta villta og vitlausa beib, Schiffer þessi hlýja
móðurlega sem sýnir ekki á sér brjóstin og Cindy
svona bara hversmanns draumur. Móðir, meyja,
mella?
Hlutverk fórnarlambsins er þó alverst, af því
að fórnarlömb eru yfir allt hafin, þau eru svo
rosalega góð að þau þurfa ekki að taka þátt í
lífinu. Það þýðir ekki að biðja fórnarlambið að
fara aftast í röðina einsog hina og síðan fái allir
afgreiðslu í réttri röð. Fórnarlambið stendur til
hliðar við röðina og vill fá allt fyrir ekki neitt og
ekki neitt fyrir allt, bara af þeirri ástæðu að það er
fórnarlamb. Þau eru svo fjandi heilög af því það
er búið að níðast svo lengi á þeim, karlmenn
alltaf að skemmta sér á þeirra kostnað.
Vissulega eru fórnarlömb út um allan heim
en hér er ég að hugsa um hlutverkið að vera fórn-
arlamb, að sumir feministar líti svo á að sérhver
kona sé sjálfkrafa fórnarlamb og að það sé keppi-
kefli fyrir kvenfrelsisbaráttuna að konur séu fórn-
arlömb og knýi fram allskyns vitleysu einsog
tjáningarskerðingu. Allir geta verið fórnarlömb
aðstæðna einhvern tíma á ævinni en að líta á
sjálfan sig sem fórnarlamb og gangast upp í því er
að neita sér um lífið sjálff, og það á engin mann-
eskja að gera. En til þess að lifa þarf hugrekki.
Alda Lóa Leifsdóttir
Larry Flint heldur hér á
eintaki af Hustler með
hinni afdrifaríku Campari-
auglýsingu, sem varð til
þess að hann eyddi mörg-
um árum í dómssölum og
fangelsum en gerði hann á
endanum að einskonar
föðurlandshetju í
Hollywood.
Didda
Ég er alveg vitlaus í'ða
Frumþýddur texti úr lagi sem Bessie Smith söng.
Hunangselska vilt' ekki
hjúfra þér nær.
Láttu sykurmömmu hvísla að þér,
Haltu engu eftir þegar ég styn,
komdu með allt, eða ég dey.
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Umm ef þú vilt svala minni sál
ruggaðu mér þá með stöðugu vaggi.
Ég er alveg vitlaus í'ða.
Vá mér líst vel á þitt
dinglumdangl!
Kysstu mig eins og þú meinir það!
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Áfram stilltu ljósin lágt.
ég er alveg vitlaus í'ða,
það lætur mig hlæja og syngja.
Láttu mig fá það pápi,
ég er alveg vitlaus í'ða.
Gerðu það ljúflega elskan,
vert'ekki grófur.-
Af þér pápi fæ ég aldrei nóg.
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Unaðskennd það færir mér,
allir vit'af'essu!
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Sjara djeing djeing djeing
allan tímann styn ég.
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Hvaða droll er þettta, hvað er að?
veist ekki að ég elska það og vil það allt?
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Hringdu bjöllunn'í mér.
Þú studdir á dinapp minn!
Eg er alveg vitlaús í'ða.
Þegar þú ert til, þá förum við.
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Haltu áfram láttu mig fmna'ða.
Eg er alveg vitlaus í'ða.
Vitlaus í að þú haldir mér þétt.
Vefðu mig örmum þínum í alla nótr.
Ég er alveg vitlaus í'ða.
Astríður mínar eru alelda.
Haltu áfram, heyrðu stunur mínar.
Ég er alveg vitlaus í'ða.'