Fjölnir

Ukioqatigiit

Fjölnir - 04.07.1997, Qupperneq 69

Fjölnir - 04.07.1997, Qupperneq 69
„Sá yðar sem reynir að bjarga lífi sínu mun glata því — en sá yðar sem fórnar lífi sínu mín vegna mun öðlast það,“ sagði Jesús Kristur. Getur verið að þetta eigi við um íslensku þjóðkirkjuna? Að tilraunir hennar til að viðhalda stöðu sinni í samfélaginu séu að draga hana til dauða? Gunnar Smári Egilsson fór í messu þrettán sunnudaga í röð og reyndi að átta sig á vanda kirkjunnar. Syndug kirlqa Frá miðri föstu og fram að þrenningarhádðinni í v°r fór ég í kirkju þrettán sunnudaga í röð. Ég s^mdi örlitla skýrslu um heimsóknirnar og reyndi 1 þeim að átta mig á hvað væri að í kirkjunni. Allir vita að kirkjan á í vanda. Meira að segja Ptestarnir og biskupinn vita það þótt þeir vilji stundum gera minna úr honum en efni standa til. Það fer hins vegar tvennum sögum af því hver þessi vanda sé. Ég gaf mér að Guð væri til og að hann ætti eitthvert erindi við okkur í dag. Og yelti fyrir mér hvers vegna kirkjunni gengi illa að finna þetta erindi og boða það. Annars trúi ég ekki kirkjan eigi í meiri vanda en aðrar stofnanir þjóðfélagsins; stjórnmálaflokk- arnir, listaheimurinn, háskólasamfélagið. Ég held að kreppa kirkjunnar sé ekki sérstök heldur varpi fiún ljósi á kreppu samfélagsins. Þess vegna lang- ar mig að bjóða ykkur að fylgja mér í þessar þtettán messur. Ég er ekki djúpur maður. Þess vegna get ég ekki lagt þessa sönnun fyrir ykkur í fáeinum tneiduðum setningum. Ég er hins vegar nokkuð langur maður — 192 sentímetrar. Ég get því ekki annað en boðið ykkur upp á langa hugsun, sem n*f frá miðri föstu fram að þrenningarhátíðinni. Við byrjum í Neskirkju. 2- rnars jjgskirkin ÞRIÐJI SUNNUDAGUR I FÖSTU í dag var æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og það fiór ekki framhjá kirkjugestum. Barnakórar sungu við messur, hljómsveitin Pax spilaði í Árbænum, Suðfræðinemar predikuðu, bjöllukór klingdi hjá sera Pálma í Bústaðakirkju og sjálfúr Bubbi Worthens söng og flutti hugvekju í Grafarvogin- um. Þótt það hefði verið nógu forvitnilegt að ^lýða á meistarann treysti ég mér ekki svo langt í firíðarveðrinu í morgun. Það var varla messufert í kófinu. Ég gat ekki talið í mig meiri kjark en svo að rétt dugði í næstu kirkju, þ. e. fjölskylduguðs- Þjónustu í Neskirkju klukkan ellefú. Eftir hádegi óafði veðrið gengið niður og mér eflst kjarkur og e8 skellti mér í poppmessu klukkan tvö. Neskirkja er með fegurri kirkjum í Reykjavík, at|aus að utan, næstum hógvær, þar sem hún ^e'lir Hagatorgi með Hótel Sögu, Melaskólanum °8 Háskólabíói. Saman mynda þessi hús einn |egursta kjarna í íbúðarhverfi í Reykjavík og lík- e8a þann eina sem ekki hefúr verslun í mið- Punkti. Innandyra er kirkjan skraudaus eins og Pykir hæfa í lúterskum sið. Altarið er lágreist og Pmdikunarstólinn rétt svo hár að þeir sem sitja aftast sjái framan í presdnn. Altarisklæði, stjakar, kaleikar og krossar vega því lítið á móti áhrifa- mætti hins rísandi lofts sem virðist æda að stefna beint dl himna. Á gaflinum bak við altarið hang- ir gríðarstór koparkross, stílhreinn og skrautlaus, og til hliðar við hann benda orgelpípur úr kopar til himna. Undir pípunum eru myndarlegar svalir fyrir orgelleikara og kór. Arkitekt hússins hefúr ætlað þessu Iiði að deila athygli kirkjugesta með presdnum. Langholtskirkjudeilan gæti því aldrei gosið upp í Neskirkju. En í morgun var orgelleik- arinn og kórinn fjarri góðu gamni og svalirnar stóðu auðar. Við fjölskylduguðsþjónustuna voru um 90 kirkjugestir — þar af 60 börn, flest á aldrinum þriggja til sex ára. Barnaguðsþjónusta hefði verið réttnefni. Fyrir utan hefðbundnar bænir og bless- unarorð, trúarjátninguna og hina postullegu kveðju var athöfúin líkust sunnudagaskóla sem var annað slagið truflaður af hinu hefðbundna messuformi. Allur söngur miðaðist við börnin. Þeim var sýnt brúðuleikhús og sögð sagan af manninum sem byggði hús sitt á bjargi og hin- um sem byggði kofadldur á sandi. Sá fyrri var hygginn; hinn heimskur. Sá fyrri var með Guði; hinn ekki. Og söngvarnir fluttu svipaðan boð- skap. Litli drengurinn Davíð hitti risann beint í ennið og felldi hann af því hann var með Guði. Og Afríkudrengurinn Mósa heyrði um Jesú á heilsugæslustöð trúboðsins og vann sig síðan upp í að verða prestur af því hann var líka með Guði. Börnin nutu sín vel og tóku lifandi þátt í öllu sem fram fór. Foreldrarnir sátu úti í sal og glödd- ust yfir gleði barnanna. Presturinn — séra Frank M. Halldórsson — var líka glaður og tók þátt í leik barnanna undir söngnum; einnig þegar hann var í hvarfi á bak við predikunarstólinn. Og fjög- ur ungmenni sem voru honum til aðstoðar glöddust einnig; einn drengurinn svo mjög að hann rauk dl og náði sér í gítar til að geta spilað undir og fengið börnin til að syngja rúllandi, rúllandi, rúllandi, rúllandi... Gallinn við þessa fjölskylduguðsþjónustu var að hún miðaðist öll við börn á aldrinum þriggja til sex, sjö ára. Foreldrarnir gátu ekki sótt í hana annað andlegt fóður en gleði barnanna sinna — það er þeir foreldrar sem eiga börn á þessum aldri. Börn eldri en átta ára sá ég ekki í kirkjunni; utan einn strák sem sat fyldur á svip með móður sinni úti í sal. Aldursforsednn meðal kirkjugesta — maður um sjötugt sem sat við hlið miðaldra manns sem gat verið sonur hans — hvarf á braut í miðri messu. Það virðist vera útbreidd skoðun að þegar fjölskyldan er saman eigi allir fjölskyldumeðlimir að gera þeim yngsta allt til hæfis. Ekki ætla ég svo sem að skammast mikið yfir að fólk vilji gleðja lítil börn; en stundum efast ég um að hægt sé að leggja einingu fjölskyldunnar á svona lidar herð- ar. Það er hægt að vera góður við barn með öðr- um hætti en fara með það í þrjú bíó þótt það nefni það fyrst þegar það er beðið um tillögur. Það er jafnvel hægt að miðla trausti og öryggi með því einu að leyfa barninu að fylgja sér í daglegu amstri — eins óspennandi og það nú hljómar. Ég saknaði einhvers slíks úr fjölskyldu- guðsþjónustunni í Neskirkju, einhvers sem fengi börnin til að finna að þau væru mætt í kirkjuna tíl að njóta athafnarinnar með fjölskyldu sinni, í stað þess að foreldrarnir hefðu fylgt þeim í sunnudagaskólann. Poppmessan klukkan tvö miðaði á fermingar- börnin; af um 250 kirkjugestum voru líklega hátt í 100 á þessum vandræðalega aldri milli barns og unglings. Undir orgelsvölunum var mætt rokk- sveit sem spilaði einskonar skandinavískt vísna- gospel og tvær söngkonur sungu með í míkra- fóna. Lítið heyrðist til kórs fermingarbarna sem söng undir í viðlögum enda naut hann ekki að- stoðar frá Búrfellsvirkjun. Eins og um morguninn voru þessi söngatriði — sem hefðu sómt sér ágætlega á hvaða síðdegis- skemmtun sem var — felld inn í hið hefðbundna messuform. Og eins og fyrr með nokkrum herkj- um. Þrátt fyrir að hverjum kirkjugesti væri ferð ágæt og skýr messuskrá tók söfnuðurinn sjaldnast undir messuna eins og til var ædast. Þetta var auðsjáanlega ekki vant lið. Þarna var enginn kjarni kirkjugesta sem var sjóaður í messuform- inu. Ef fram fer sem horfir verður þjóðkirkjan að leggja þetta form af eða ráða atvinnu-kirkjugesti til að kallast á við prestinn. Áður en kom að predikun séra Franks M. Halldórssonar flutti poppsveitin lag með eftirfarandi texta: Jesús, þú fyllir líf mitt gleði, ég elska þig því þú ert góður guð. Jesús þú ert fegurri en allt annað, þú ert minn frelsari, mitt líf, þú ert mér allt. Jesús, minn fjársjóð hef ég fúndið nú því dýrmætari en gull ert þú. Jesús, ég elska þig drottinn minn og guð. Mitt hjarta er fúllt af lofsöng til þín. Mitt hjarta er fullt af þakklæti. Mitt hjarta er fullt af lofsöng til þín. Mitt hjarta er fúllt af gleði. >■ Steincrímur Eyfjörð Kristmundsson Heilaga Teresa frá Lisieux matarstell, 1997 „Ein beittasta gagnrýni sem sett hefur veriðfram á þjóðkirkjuna er að hún hafi gefist upp á að leiðafólk í andlegum og sið- ferðilegum efrium en leitist þess í stað við að taka upp hin almennustu og viðurkenndustu viðhorfí von um að einangrast ekki í samfélaginu. “ Fj sumnr '97 o 1 n i r 69
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Fjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.