Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Síða 93

Fjölnir - 04.07.1997, Síða 93
Myndskreyting óskar Thorarensen Maðurinn hefur verið til í núverandi mynd í milljónir ára. Nú mun hinsvegar komið að leiðarlokum. Ómar Stefánsson gerir hér grein fyrir hugmyndum Asteka, Mckenna-bræðra o. fl. um hröðun tímans sem eykst stöðugt og mun ná hámarki desemberkvöld eitt árið 2012. SyndaWóa og ofunnenni Það þykir víst klisjukennt að fjasa um heimsendi, þar sem allt virðist ganga sinn vanagang þrátt fýrir að heimsendir hafi verið margauglýstur í að minnsta kosti hundrað ár en sífellt verið slegið á frest. Vísindamenn, æðstuprestar vísindatrúarinn- ar, eru samt með stöðugar viðvaranir og áminn- ingar þess efnis að ef iðnaðanæknisamfélagið geri ekki róttækar breytingar á háttum sínum strax þá sé næsta víst að samfélagið, eins og við þekkjum það, muni hrynja til grunna fljódega upp úr aldamótum. Þesslags yfirlýsingar, studdar ótelj- andi og óþolandi skýrslugerðum, línuritum, áætlunum og útreikningum, eru stöðugt að berast allar götur síðan Rómarskýrslan var birt 1973. Núna má til dæmis lesa eitt slíkt ákall til mannkyns á internetinu frá alþjóðasamtökum vísindamanna (undir ,,Omega“). Þetta breytir ekki því að framfarir (nýjungar er kannski réttara orð) á sviði tækni og vísinda halda áfram, kannski ekki endilega í þeim greinum sem gagn- ast almannaheill, en nýjungar engu að síður. Mcgraw Hill útgáfúfélagið gerði úttekt meðal vísindamanna á líldegum tækninýjungum á næst- unni og var þar nefnt meðal annars: gervisýn fyrir blinda, lyf til að auka greind, lyf við öldrun og öðrum öldrunarsjúkdómum (sem þýðir víst eilíft líf ef maður deyr ekki í slysi eða lætur breyta sér í hálfgert vélmenni (cyborg)). Rannsóknir á sviði nanótækni, genaverkfræði og upplýsinga- tækni æða áfram með ógnarhraða og upp koma sífellt fleiri siðferðilegar og jafnvel heimspekilegar spurningar um hversu langt skuli ganga. Skal gengið alla leið bara af því að tæknin er fýrir hendi eða ber og er hægt að setja reglur, draga línu sem ekki verði fárið yfir svipað og gert hefur verið með kjarnorkuvopnin? Bæði vísindaprestar og margir trúarprestar (hindúar, búddistar og kristnir t. d.) eru nú loks- ins sammála og þá aðallega um yfirvofandi heimsendi. En til eru allavega tvö viðhorf til þessa máls: „Gerið yfirbót því heimsendir er í nánd!“ hefúr verið slagorð kristinna manna í um tvö þúsund ár og er það óneitanlega svolítið þrúgandi og niðurdrepandi boðskapur. Svo eru þeir sem taka heimsendi fagnandi ýmist af því að þeir hata mannkynið eða álíta sig vera geimverur og í stríði við jarðarbúa. Og Ioks eru þeir sem spáð hafa hruni siðmenningarinnar sem sé á einhvern hátt nauðsynlegt fýrir stökkbreytingu mannsins yfir í einhverskonar ofúrmenni eða annað lífsform. Margir þekkja raupið í Nietzsche um „Ubermensch“ og „Ultra humaine“ hjá Teilhard de Chardin. Sú hugmynd að við séum að stökkbreytast í öðruvísi og fúllkomnari lífveru var hampað af Nietzsche, Bercson, Teilhard de Chardin og ýmsum hópum — hvað eftirminni- legast hjá þýskum nasistum — en hugmyndin kemur upprunalega frá H.P.Blavatsky, stofnanda guðspekifélagsins. En það var einmitt Teilhard de Chardin sem fýrstur setti fram þá kenningu að þróun mannsins væri sífellt að herða á sér. Hún hefði farið rólega af stað en eftir 1500 hefði þró- unin tekið stökk og sé nú farið að styttast í há- mark þessarar þróunarlotu eða „Omega point“. En þá, vill Chardin meina, munum við stökk- breytast í eitthvað annað sem hann kallar „Ultra Humaine“. Hins vegar er hugmyndin um heimsendi mjög vel þekkt enda hefúr heimsendir oft átt sér stað í mannkynssögunni. Platón segir til dæmis í Kríton 111 að mörg flóð (deluge, allsherjarflóð) hafi orðið síðustu níu þúsund árin og sagnir af liðnum heimsslitum má finna í gömlum bókum víða í veröldinni. „Nú er ekkert eftir af þriðju kynslóð manna nema aparnir í skóginum,“ stendur í Popol Vuh, eldgamalli indíánabók frá Guatemala sem lýsir slíkum atburðum og eitt- hvað stangast þetta nú á við Darwin dýravin. Hopi-indíánar tala um löngu horfin tæknisam- félög og trúa því að slík endalok muni endurtaka sig. Ein spásögnin hljóðar uppá það að „hreins- unin muni byrja fljótlega eftir að þeir hafa byggt hús í himninum" og dettur manni þá í hug mír- geimstöðin og svo eru Japanir að fara að reisa hótel úti í geimnum! Fllúgandi FurðuHlutir, I Ching, Astekadagotalið og titoeskir búddamunkar Það muna kannski margir eftir því þegar fólk flykktist hvaðanæva að úr heiminum hingað upp á Snæfellsnes í ágúst 1987 til að vera viðstatt lendingu á fljúgandi diskum sem áttu að lenda
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.