Fjölnir - 30.10.1997, Síða 56

Fjölnir - 30.10.1997, Síða 56
Gautí Sigþórsson Söguskoðun til sölu Bubbi Morthens: Þulið í byrgi í Öskjuhlíð „Hingað bæði og þangað þó þrálega höfum flakkað“ og hjakkað um öldurhús íslands ölvuð stigið dans korríró og dillidó aldrei drukkið nóg Hverjum er það að þakka þú eignaðist aldrei krakka ekki mér ekki honum þú glataðir öllum ævinnar vonum þú kynntist öðrum konum með kuldablik í auga og svarta svarta bauga Sofið hér sofið þar sofið hjá flestum seinast hjá mér Er ég ekki fríður fjandanum grimmari en blíður það svíður Réttu mér glasið góða mín greyið drekktu þitt brennivín ólukkan er örlög þín Argara gargara hættu þessu væli þetta er okkar bæli þetta er okkar eina bæli Þitt æskublik er löngu horfið lífið og lúinn hafa sorfið hjarta þitt og hjarta mitt óttinn elskar hreiðrið sitt „Hingað bæði og þangað þó þrálega höfum flakkað“ og hjakkað Aldrei aldrei slokknar þessi logi logaði jafnvel skærast inn á Vogi Ambara þambara þú ert ekki skýr þvöglumælta kýr Það má vera ég sé róni ruglaður dóni en systir hér sitjum við bæði bundin þessu æði sem leiddi okkur saman Einu sinni var það gaman einu sinni þótti okkur gaman Fj 56 olnir tímarit handa islendingum haust '97 gengur kaupum og sölum (þótt við tökum ekki endilega eftir því þegar við hlustum á útvarpið í bílnum eða horfúm á sjónvarpið á kvöldin að at- hygli okkar sé markaðsvara, svo dæmi sé tekið). Það gildismat sem ræðst af vöruskiptum leitast við að gera allt að vöru. Svo við höldum okkur við auglýs- ingarnar þá vita allir að þær selja ekki bara vörur heldur fýrst og fremst ímyndir eða óljósar tengingar milli tákna. Varan verður að tákni fyrir eitthvað annað sem ekki fest höndlað, líkt og bílar hafa átt það til undanfarið að tákna „frelsi" og „ást“ í íslenskum auglysingum. Þannig vitum við að ímyndir, tákn, hugmyndir og umfjöllun ýmiss konar hafe raunverulegt efnahags- legt gildi. Framsetningin verður í askana látin, ef við hugs- um um það að ferðamenn sem hing- að koma eru ekki að koma bara til að sjá eitthvert „raunverulegt" fsland, heldur það ísland sem er selt í bæklingum, blöðum og sjónvarpi, þessa margumræddu „ímynd landsins út á við“ sem fengið hefúr sjálfstætt gildi á undanförnum áratugum undir heitinu „land- kynning". Hlutí þess verkefúis er að búa til ímynd íslands sem uppsprettu ákveðinnar merk- ingar, ísland á að vera tákn um „hreinleika", „fegurð“, sitthvað „óspillt“ og umhverfisvænt, einhvern óljósan „náttúruleika“ þar sem lítil þjóð býr langt frá öðmm í sátt og samlyndi við stór- brotna náttúru og í nánum tengslum við sögna. ísland verður þannig að fjölnota tákni sem nota má á ótal vegu til að tengja útflutningsvörur jafnt sem túrisma fjölda óljósra, jafnvel dularfúllra merkinga. Líkt og bílarnir tákna ást og frelsi stendur fsland fyrir óspillta náttúm, fegurð, hreinleika og heilnæmi. Tólcn breqda á lcik Ferðamannaparadísin fsland, ffamandi landið í norðurhafi, eyjan hreina og heilnæma er ekki út- spekúlerað samsæri um að pretta útlendinga. Við fslendingar sýnum hvert öðm þessa mynd af alveg jafnmikilli sannfæringu og erlendum við- skiptavinum okkar. Hún væri heldur ekki svona sannferandi ef ekki væri fýrir einlæga trú okkar allra á hugmyndina um ísland hið hreina, óspillta og fagra. Sjálfsmynd þjóðarinnar markast ekki lengur af iðnvæðingu og innreið nútímans heldur landkynningu. Þess vegna er okkur í mun að gera ísland að eins fjölræðu og aðlaðandi tákni og kostur er. Það er einmitt í því samhengi sem tákn þjóð- ernishyggjunnar má endurvinna. Þau eru orðin gjaldgeng á alþjóðlegum markaði. Þjóðernis- hyggja sjálfstæðisbaráttu og fúllveldis markaðist af notagildi, hún sá þjóðinni fýrir gildismati, sjálfs- mynd og söguskoðun sem gerði henni fært að laga arfleifð bændasamfélagsins að iðnvæddu markaðssamfélagi. Hlutverk hennar var fýrst og ffemst „inn á við“, hún var lífsspeki nýiðnvæddr- ar þjóðar, nokkurs konar „veraldleg trúarbrögð" þar sem þjóðin, þjóðarandinn, sagan og þjóð- menningin voru upphafin. Sá hugsunarháttur er ekki gjaldgengur í fjölmiðlavæddum norðvestasta hluta Evrópska efnahagssvæðisins. Á síðari árum hefúr notagildi þjóðernishyggjunnar vikið fýrir skiptagildi, þannig að við ímyndum okkur þjóð- ina fýrst og fremst út frá „markaðinum". Hið trúarlega inntak rómantískrar þjóðernishyggju á sér engan grundvöll þegar íslenska þjóðin þarf að fóta sig á heimsmarkaði. í okkur eimir enn eftir af trú Jónasar og félaga á þjóðarandann, en við höfúm ekki efni á því að játa hana nema á tyllidögum. Samfara markaðsvæðingu íslenskrar þjóðernishyggju verð- ur ákveðin afhelgun þeirra tákna sem rómantíkin og sjálfstæðisbaráttan hóf á loft. Þannig verður forsetanum leyfilegt að leggja til teiknimynd um Snorra Þorfmnsson, þar sem íslendinga sögur eru ekki lengur helgar bækur uppi í hillu. Þessi hug- mynd markar í raun viðsnúning á hinni viðteknu meðferð sagnanna. Þær voru viðmið sem okkur bar að fára efrir, en nú getum við lagað inntak þeirra að öðmm og söluvænlegri fýrirmyndum, jafnvel endurskrifað það frá grunni og einungis stuðst við táknrænt vægi þeirra. Endurritun er örlög allra sögulegra texta og það verður að taka skýrt fram að ég er ekki að fordæma þá endurritun Gmnlendinga sögu sem Ólafúr Ragnar leggur til, né hneykslast ég yfir þeirri endurnýtingu á táknforða þjóðemishyggj- unnar sem hér er lýst. Saga sjálfrar þjóðernis- hyggjunnar er saga af endurritun sögu, bók- mennta og endurvinnslu tákna. Það er ekki einhver „betri“ pólitík innbyggð í endurritanir Jónasar ffá Hriflu og Jóns Aðils á íslandssögunni en fýrirhugaða endurrimn forsetans á Grœnlend- inga sögu. Ég syrgi ekki þá „afhelgun“ sem orðið hefur á táknum þjóðernishyggjunnar samfea fjölmiðlavæðingu og auknum markaðstengslum íslands og umheimsins (t. d. með EES-samningn- um). Spurningin er hvort við gemm verið sátt við ríkjandi gildismat sem skilgreinir þjóðerni jafnt sem sjálfsmynd einstaklinga út frá neyslu og þeim táknum sem neysluvömnum fýlgja. Það eru engar nýjar fréttir að segja markað- inn vera ráðandi viðmið um nær allan heim. Síð- ur er minnst á það hvernig vitund okkar mótast af markaði, viðskiptum og neyslu. Svo ég endur- taki mig aðeins, þá kemur sókn skiptagildisins inn á sífellt fleiri svið mannlegrar reynslu fram í því hvernig við tölum og hugsum um heiminn. Hversdagslega er sagt að fráskilið fólk sé „komið á markaðinn“, almenningur er orðinn „neytend- ur“, einstaklingurinn er „neytandi" og um kirkjur er talað sem kristilegar þjónustustofnanir þar sem sálnahirðar veita söfnuðinum ýmsa „þjónustu“. Fyrst okkur líður ágætlega að hugsa á þennan hátt, hvað er þá því til fýrirstöðu að endurtúlka og endurrita sögu okkar og bókmenntir á for- sendum markaðarins? ■ Rltaskrá: Arnar Cuðmundsson. .Mytan um Island. Ahrrf þjóðernishvggju á íslenska stiórnmélaumræðu." Skirnir, 169. ár (vor 19951. DV. 26. júlí 1997, s. 20: .Fyrsti hviti maðurinn sem fæddist I Ameriku: ...og hét sá sveinn Snoni.' Cunnar Karlsson. .Hvað er svona merkilegt við sjálfstæðisbaráttuna?" Timarit Máls og menningar 55. árg., 4. hefti 1994. Harvey, Davld. The Condition of Postmodernlty. Blackwell: Oxford 1990. Marx, Karl. Karl Marx: Selected writings. David McLellan (ritsti.). Oxford University Press: Oxford 1977. Morgunblaöið, 22. júlí 1997, s. 4: .Cerð verði teiknimynd um Snorra Þorfinnsson." Slgríður Matthíasdóttir. .Réttlæting þjóðernis. Samanburður á alþýðufyrirlestrum Jóns Aðils og hugmyndum Jóhanns Cottlieb Fichte." Skímlr, 169. ár (vor 1995). Slgurður Nordal. Islenzkmenning. Mál og menning: Reykiavik 1942. Porsteinn Þorstelnsson. Arbók MCMXLVII. Dalasýsla. Ferðafélag Islands: Reykjavik 1947.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.