Fjölnir - 30.10.1997, Síða 88

Fjölnir - 30.10.1997, Síða 88
Jónas Sen Sinfónía eftir Cuð KB BETUR SJÁ AUGU EN AUGA Fáðu í lið með þér fólk sem hefur aðra sýn en þú á veruleikann. Einhverja sem eru algjörlega fyrir utan það svið sem þú ert að fást við. Til dæmis 6 ára barn, guð- fræðing, lögregluþjón, alþingismann o.s.frv. Cerðu tilraunir með mismunandi viðhorf og sýn fólks á því viðfangsefni sem þú ert að fást við. Sömuleiðis er hún orðin þreytt gamla klisjan að fyrstu fjórir tónarnir í fimmtu sinfóníu Beet- hovens séu táknrænir fyrir örlögin að berja á dyr hins heyrnarlausa tónskálds. Það er miklu meira spunnið í þá en það. Gárungar hafa reyndar bent á að mjög svipaðir tónar heyrast í fjórða píanó- konsertinum eftir sama tónskáld og hafa að von- um spurt hvort eitthvað annað en örlögin hafi þar verið að banlta upp á hjá Beethoven. Eða þá að örlögin hafi verið að berja á dyr einhvers ann- ars. Þetta sýnir hve allar útskýringar á innihaldi tónlistar sem ekki er sungin og ekld er svonefhd prógramtónlist eru tilgangslausar. Það er eiginlega ekki hægt að skilgreina andann — eða andagift- ina. Þegar það er reynt kemur það kjánalega út. Sérstaklega þegar abstrakt fyrirbæri á borð við tónlist er annarsvegar. Talerrtið og séwiið HUGMYNDA- MINNISBÓK Þú ert alltaf að fá hug- myndir, þegar þú ert í baði, í svefni eða á ferð f bíl. Hug- myndir skjóta upp kollinum við ótrúlegustu aðstæður. vendu þig á að skrifa niður hugmyndir þínar, f bók eða á lítil sþjöld. Seinna getur þú skoðað það sem þér hefur dottið í hug og útfært hug- myndirnar á nýtilegan hátt. Ef þú gleymir hugmynd.er hún að eilífu glötuð. Skrif- aðu niður strax allar þær hugmyndirsem þú færð. NÚNA! Hæfileikinn til að spila vel á hljóðfæri er ekki al- gengur. Það vita allir tónlistarkennarar. En að geta samið innblásna tónlist er samt miklu sjald- gæfara. Það þarf snilligáfú til þess. Og aðeins sárafáir búa yfir henni. Alfreð Flóki sagði einhverju sinni: „Talentið streðar; séníið leikur sér.“ Ég er nú eldd viss um að þetta hafi verið rétt hjá meistaranum; Brahms, sem var óumdeilanlega snillingur, var hvorid meira né minna en tuttugu ár að streða við að semja fyrstu sinfóníu sína. Hann var þó ekki bara að fást við hana á þessum tuttugu árum, hann samdi líka margt annað. En hann var ekkert að leika sér; hann þurfti virldlega að hafa fyrir því að koma snilldarverkum sínum í endanlegan bún- ing. Það er samt munur á talenti, þ. e. þeim sem hefúr hæfileika, og innblásnum snillingi. Flóki sjálfúr var snillingur og hafði ekki mikið fyrir teikningum sínum. Kannski var hann líka að hugsa um Mozart þegar hann greindi á milli snillings og talents — Mozart virtist a. m. k. ekki hafa haft mikið fyrir list sinni. Ef einhver hefúr leikið sér að því að semja tón- list, þá var það hann. Hann sagði sjálfúr að hugmyndir sínar kæmu eðlilega og hann þyrfti ekki — né gæti neytt þær ffarn. Stundum reyndi hann meira að segja að fá frið fyrir innblæstrinum! Þá spilaði hann billiard eða eitthvað annað, en það dugði oft ekki til. Mozart gat ekki varpað skýru ljósi á eðli innblásturs og hvaðan hann kemur. Hann fékk bara hugmyndirnar, og ef honum líkaði það sem hann heyrði innra með sér, þá lagði hann tón- listina á minnið. Svo óx hún og áður en varði var tónverkið svo til fúllsamið í huga hans. Hann gat þá „séð“ allt verkið í heild; hann gat heyrt það allt í einu, á sama augnablikinu þó það væri Auglýsíng Beethoven virðist á hinn bóginn hafá trúað því að hann væri í beinu sambandi við Guð almátt- ugan. Það væri Almættið sem blési honum í brjóst snilldarlegum hugmyndum. Hann var þó ekki að meina að hann væri viljalaus miðill í blakkáti, sem vissi ekki af sér fyrr en heil sinfónía væri komin á skrifþúltið. Þvert á móti hafði hann mikið fyrir því að semja, eins og sjá má af hand- ritum hans, þar sem oft hefúr verið krassað yfir heilu kaflana. Samt er vel hægt að ímynda sér að upphaflegu hugmyndirnar hafi komið frá ein- hverjum englum; svo stórkosdeg er þessi tónlist. Eitt sinn var Beethoven að stjórna nýju hljómsveitarverki eftir sjálfan sig. Á fyrsm æfing- unni kvartaði konsertmeistarinn yfir því að stað- ur nokkur í verkinu væri svo illa skrifaður að það væri varla hægt að spila hann. Þá æpti Beethoven: „Þegar ég samdi þetta verk, þá vissi ég að ég væri innblásinn af Guði almáttugum. Heldur þú að ég taki eitthvert tillit til þinnar vesælu fiðlu þegar HANN talar til mín?“ í bréfi nokkru sagði Beethoven líka: „Ég veit að Guð stendur nær mér en öðrum tónskáldum; ég á samneyti við hann án þess að óttast.“ Brahms sagðist einnig eiga samfélag við Guð þegar hann samdi. í viðtali við Arthur nokkurn Abell í bókinni Talks with Great Composers sagði hann eftirfarandi: „Að skynja einingu við skáp- arann, eins og Beethoven gerði, er dásamleg og lotningarfúll reynsla. Afar faar manneskjur hafa náð þessu, og einmitt þessvegna eru svo fá mikil- hæf tónskáld og skapandi snillingar...“ Og þegar Brahms lýsti því hvernig hann fékk hugmyndir sínar, sagði hann: „Ég finn titring sem hrærir vitund mína. Þetta er Andinn sem uppljómar sálarkraftinn innra fyrir mér og í þessu upphafna sálarástandi sé ég skýrt það sem mér er óljóst dags daglega; þá finn ég að ég get tekið við innblæstri að ofan, eins og Beethoven gerði.“ Og Brahms talaði um einingu við Guð og sagði að í þessari trúarvímu kæmu hugmyndirnar, beint frá skapar- anum, og þá sæi hann stefin í huganum, gjarnan með viðeigandi hljómum og jafnvel í réttri hljóð- færaskipan. Cuðleg tónlist Á maður að trúa þessu? Hvorki Beethoven né Brahms voru einir um að telja sig fá innblásmr af himnum ofan. Nefna má líka Wacner, Scriabin, Richard Strauss og Robert Schumann. En þessi tónskáld vom reyndar uppi á tímum þegar guð- dómlegur innblástur var talinn staðreynd. Á ensku merkir orðið „genius“ snillingur. Það er komið af „genio“ sem þýðir andi, ekki andi í merkingunni andagift, heldur vofa. Snillingar voru fyrr á tímum álimir hafa fylgju sem bæri ábyrgð á snilldinni. Það segir sig sjálft að þaðan er orðið innblástur komið. En hvaðan sem innblástur kemur hlýtur að vera ljóst að snillingur þarf að vera í annarlegu ástandi þegar hann semur tónlist. Brahms talaði um einkennilegt hugarástand, einhverskonar trans, sem kæmi hugmyndunum af stað. Og Mozart sagði að þetta hugarástand væri eins og skýr draumur. Það er því ljóst að innblástur kem- ur að handan, hvort sem það er handan við dauðann eða bara handan við vökuvitundina. Ef innblásin tónlist kemur frá Guði hljóta einhver dulin skilaboð frá almættinu að vera falin í níundu sinfóníu Beethovens, svo dæmi sé tekið. Persónulega skynja ég þetta verk alltaf eins og einhver máttarengill stígi niður til jarðar- innar í smtta stund til að flytja mannkyninu stórkostlegan boð- skap. Mér finnst ég vera í beinu sambandi við sannleikann þegar ég hlusta á þessa sinfóníu. Og þá finnst mér sem ég skilji allt. En að koma orðum að því er önnur saga. Orð tala til skynseminnar, og orð geta auðveldlega leitt mann út í allskyns rökleysu. Á endanum er maður kominn lengra frá sannleikanum en í upphafi. Tónlist er affur á móti handan við rök. Eða þá að hún á sér sína eigin rökfræði. Innblásin tónlist talar beint til innsæisins, og ég held að það sé þar sem maður skilur andann. ■ ■# V ■ „Mozart gat ekki varpað skýru Ijósi á eðli innblásturs og hvaðan hann kemur. Hannfékk bara hugmynd- imar, og efhonum líkaði það sem hann heyrði innra með sér, þá lagði hann tónlistina á minnið. Svo óx hún og áður en varði var tónverkið svo til fullsamið í huga hans. Hann gatþá „séð“ allt verkið í heild; hann gat heyrt það allt í einu, á sama augnablikinu þó það vœri langt. Þá var bara handavinnan eftir — að skrifa það niður á blað. “ langt. Þá var bara handavinnan eftir — að skrifá það niður á blað. Mozart stundi því eitt sinn upp úr sér að hann upplifði innblástur eins og einstaklega skýr- an draum. Lengra fór hann ekki í lýs- ingum sínum, en það má gera sér í hugarlund að hann hafi verið í ein- hverskonar leiðsluástandi þegar hann samdi. Sumir hafa meira að segja hald- ið að það hafi verið af yfirskilvitlegum toga. Mozart nefndi þó aldrei Guð er hann var að lýsa þessu, en hann þakk- aði samt Guði fyrir hæfileika sína. i snmbandi wið Cuð?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.