Læknablaðið - 15.12.1948, Blaðsíða 18
124
LÆKNABLAÐIÐ
ml.). Auðvitað verður í hverju
tilfelli að haga sér eftir ástandi
sjúklingsins á hverjum tíma,
taka tillit til þess hve mikið
hann notar fyrir af insulini,
fylgjast vel með bikarbonati og
hlóðsykri, sykri í þvagi, acetone
og acetediksýru með endur-
teknum rannsóknum. Síðar er
venjulegt að gefa 50 einingar á
4 klst. fresti undir Jnið og eftir
það smærri skammta 10—14
einingar eftir því sem þörf
kreí'ur.
Rannsókn á sykri í þvagi með
Benedicts upplausn (til kvalita-
tiv ákvörðunar) gefur oft nvjög
góðar upplýsingar um hve mik-
ið insulin þarf að gefa. Rann-
sóknin er framkvæmd þannig:
5 ml. af Benedicts upplausn
settir í tilraunaglas, hætt út í
8 dropum af þvagi og glasinu
síðan brugðið niður í sjóðandi
vatn í 5 mín.. Ef sykur er í
þvaginu breytist hinn hlái lit-
ur upplausnarinnar í grænt,
gulgrænt, gulrautt eða múr-
steinsrautt.
Insulingjöf eftir lit á Benedicts
upplausn.
Einingar insulins á 24 klst.
rauður gulrauður gulur
24 20 16
gulgrænn grænn blár
8 0 0
Insulinið kemur að vísu hlóð-
sykurmagninu í rétt horf, en
áhrif j)ess á acidosuna eru hins-
vegar oft seinvirk, og á upp-
þornunina og alkalitapið verkar
það ekki. Sé því ekki auk in-
sulinsins gefið natriumlaktat
eða bikarbonat og nægur vökvi,
fysiologiskt saltvatn í stórum
stíl, getur hæglega farið svo, að
sjúklingurinn rétti ekki við
aftur. Með vökvaaukningunni
þynnast hin skaðlegu efni,
þvagmyndun örfast, alkalivara-
forði eykst við natrium laktat
eða hikarhonatmeðferð og
þetta flýtir fyrir neutraliser-
ingu og útskilnaði ketosýranna.
Bezta ráðið til þess að hæta
blóðrásartruflanir við coma dia-
heticum er að draga úr upp-
jjornuninni og klorid skortinum
með því að gefa klorid og vatn.
Við ]>að hækkar hlóðþrýstingur.
Auk þess eru oft gefin stimul-
antia t. d. coramin. Þar sem
þvagmyndun er stöðvuð vegna
blóðrásartruflunar og þegar
klorid í plasma er lækkað má
gefa 60 ml. af 10% upplausn
af natriumklorid hægt inn í æð.
Ef sjúklingur hefir stöðuga
uppsölu, óþægindi í kviði og
uppþembu hjálpar magaskolun
með volgu saltvatni (0,9%).
Þegar maginn hefir verið tæmd-
ur er hellt niður um slönguna
250 ml. af volgri (ca. 38—40°
heitri) saltvatnsupplausn eða
natriumbikarbonatupplausn 5%
Með jjessu tekst oft að stöðva
uppsölu og ógleði til fulls.
Þess þarf að gæta að coma-
sjúkingar fái góða hjúkrun,