Læknablaðið - 15.12.1948, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ
131
L. 1. bréf frá Norræna félaginu
í Reykjavík og er það svo-
hljóðandi:
„Reykjavík, 16. nóv. 1946.
1 hinum Norðurlöndunum
liafa fjölmörg félög og félaga-
sambönd gengið sem heildir í
Norræna félagið, hvert í sínu
landi, til þess að sýna hug sinn
til norrænnar samvinnu, styðja
þá hugsjón, er félögin herjast
fyrir og veita þeim og menning-
armálum þeim er þau vinna að,
nokkurn styrk. Meðal félags-
heilda, sem þannig hafa gengið
í Norræna félagið eru lands-
sambönd verkamanna, atvinnu-
rekendasamböndin, sambönd
samvinnufélaganna, sambönd
iðnrekenda, ú tgerðarmanna,
verzlunarmanna, hænda og
fjölmörg önnur félagasambönd.
Norræna félagið hér á landi
leyfir sér hér með að snúa sér
til yðar með þá málaleitan,
hvort þér vilduð ganga í Nor-
ræna félagið, sem félagsheild,
og starfa með því að hinum
ýmsu menningarmálum, er það
berst fyrir.
Starf félagsins er meðal ann-
ars fólgið í eftirfarandi: Að
kynna landið, þjóðina og menn-
ingu hennar meðal Norður-
landaþjóðanna með útgáfu
hóka, rita og með fyrirlestrum
og námskeiðum, þar sem jafnan
er boðið þátttakendum frá hin-
um Norðurlandaþjóðunum. —
Námskeiðin eru haldin fyrir
blaðamenn, verzlunarmenn,
kennara, stúdenta, verkamenn,
hændur o. fl. Félögin hafa með
höndum endurskoðun á sögu-
kennslubókum Norðurlanda,
athugun á viðskiptum Norður-
landanna innbyrðis og við önn-
ur lönd. Þá gangast félögin fyr-
ir margs konar sýningum til
þess að kynna menningu og
framleiðslu landanna sem bezt.
Og loks vinnur Norræna félag-
ið á Islandi að því að koma upp
fyrirmyndar dvalar- og gisti-
heimili við Þingvelli og skapa
þannig möguleika til þess að
taka sómasamlega á móti þeim
gestum er til landsins leita til
kynningar.
Stjórn félagsins mun leggja
það til, ef næg þátttaka fæst,
að hvert þessara félaga - hafi
fulltrúa í fulltrúaráði Norræna
félagsins svo að þau geti sem
hezt í'ylgst með öllum störfum
og tekið þátt í þeim eftir vild,
en að Norræna félagið geti hins-
vegar sem hezt notið aðstoðar
og starfskrafta hinna nýju
félaga.
Stjórn Norræna félagsins
væntir þess að þér veitið máli
þessu vinsamlega atliygli og er
stjórnin fús að veita þær upp-
lýsingar, er þér kynnuð að óska.
Stjórn félagsins væntir enn-
fremur að athugun málsins
muni sannfæra yður um það að
það sé sameiginlegt hagsmuna-
mál félaganna að sú samvinna
takist, sem hér er farið fram á