Læknablaðið - 15.12.1948, Page 30
136
LÆKNABLAÐIÐ
auglýsingar frá lyfjaverksmiðj-
um á Norðurlöndum brugðust
alfarið, þegar lyfjainnflutning-
ur þaðan ýmist tepptist eða
komst aldrei á. En þessar aug-
lýsingar ásamt auglýsingum frá
þýzkum og svissneskum verk-
smiðjum, höfðu áður fyrr að
mestu leyti staðið undir útgáfu-
kostnaði Árbókarinnar.
Þegar svo var komið, sá
nefndin sér ekki fært að byrja
aftur á.þessari útgáfu að sinni.“
Yfirlæknir Dr. med. Knud H.
Krabbe í Kaupmannahöfn sýndi
félaginu þá hugulsemi að senda
því nokkrar gamlar myndir af
íslenzkum læknum, sem faðir
lians liafði átt. Myndir allra
þessara manna, voru að vísu til
áður, cn söm vai: hans gerðin.
Þökkuðum við hugulsemina
og sendum honum í staðinn eitt
eintak af læknatalinu íslenzka.
Gladdist hann af því, með því
hann sagðist sjá þar marga
kunningja.
Þá ber þess að geta að um
siðustu mánaðamót var stofnað
í Borgarnesi nýtt læknafélag,
sem nefnir sig Læknafélag Mið-
vesturlands og nær yfir svæðið
frá Reykhólahéraði að Akranes-
héraði að þeim báðum meðtöld-
um. Þetta nýstofnaða félag bef-
ur sent stjórn Læknafélags ls-
lands útdrátt úr fyrstu fundar-
gerð sinni. Þykir mér hlýða að
lesa hana þar sem hún á að
mestu leyti beint erindi til þessa
fundar. Hún er þannig:
„Dtdráttur
úr fundargerð stofnfundar
Læknafélags Miðvesturlands,
sem haldinn var 31. júlí 1948 í
Borgarnesi.
2) Um hlunnindi héraðs-
lækna var rætt og fylgt lið fvrir
lið tillögum frá aðalfundi
Læknafélags lslands 1946. Var
gerð svolátandi samþykkt:
Stofnfundur í Lælcnafélagi
Miðvesturlands lýsir yfir fylgi
sínu við tillögur frá aðalfundi
Læknafélags Islands 1946 um
hlunnindi liéraðslækna og vænt-
ir þess að félagið vinni sem
fastast að framgangi þeirra.
Sérstaklega leggjum vér til:
I. Að ríkið reisi læknabustaði
þar sem þeir ekki eru fyrir og
taki að sér þá, sem fyrir eru og
kosti þá eins og ákveðið er um
aðra embættismannabústaði.
II. Við 5. lið bætist: Lækna-
félag Islands fái árlega ráð á
innflutnings og gjaldeyrisleyf-
um fyrir liæfilega mörgum bif-
reiðum fyrir héraðslækna. Telj-
um vér hæfilegt að áætla þörf á
endurnýjun bifreiða 4. hvert ár.
III. Gjaldskráin verði hið
allra fyrsta endurskoðuð í heild
og verði hækkun miðuð við
grunnkaupshækkanir verka-
manna frá 1939 plús verðlags-
uppbót.
IV. Að héraðslæknum sé á-
kveðinn 8 klst. vinnudagur, eins
og öðrum borgurum þjóðfélags-
ins.