Læknablaðið - 15.12.1948, Side 38
144
LÆKNABLAÐI Ð
aðslæknir Berufjarðarhéraðs,
(Ölafur Thorlacius), fór nú enn
af stað og segir svo um þessar
ferðir hans í ársskýrslu:
„ .. samkvæmt ráðstöfun
stjórnarráðs falið að vera
kominn suður til Horna-
fjarðar 1. maí. 1 syðstu
hreppum Hornafjarðarhér-
aðs hafði síðari hluta vetrar
gengið mannskæð veiki, sem
eftir diagnosis héraðslæknis
var difteritis....Þegar ég
kom suður 30/4 var veikin
um garð gengin, og aðeins
eftir að sótthreinsa, það tók
héraðsl. að sér að gera og
sneri ég því þegar af stað
lieim aftur.....En í byrjun
júní kom sendimaður til mín
frá hreppstjóranum í Borg-
arhafnarhreppi, með þau
boð, að nú væri veiki þessi,
sem meðal almennings væri
kölluð öræfaveiki, komin
austur í Suðursveit og Mýr-
ar“......Fór hann nú suður
í Suðursveit og rannsakaði
útbreiðslu veikinnar: „....
veikin breiddist ekki meira
út en flestir ef ekki allir
sjúklingar, scm hana fengu,
munu bera merki hennar í
máttleysi, annað hvort í
handleggjum eða fótum eða
hvort tveggja -— veiki þessi
tók engu síður fullorðið fólk
en börn og unglinga“.
Þetta var úr ársskýrslu hér-
aðslæknisins í Berufjarðar-
liéraði, en áður hafði hann gef-
ið ítarlega skýrslu um mænu-
sóttina í Suðursveit og Mýrum
í bréfum til landlæknis og
stjórnarráðs, dags. 14/6 1905.
1 bréfinu til landlæknis segir
m. a.:
„Veiki þessi byrjaði í Hest-
gerði í Suðursveit og hefur
að öllum líkindum flutzt
þangað úr öræfum, þar sem
veiki með mjög líkum ein-
kennum gekk síðari hluta
vetrarins undir nafninu
Diphtheritis. Síðan hefur hún
einnig komið á 3 aðra ná-
læga bæi í Suðursveit og 1
bæ á Mýrum........það, sem
sérstaklega bendir á að veiki
þessi hafi horist úr öræfum
í Suðursveit, er það að við
alla þá bæi, sem veikin hef-
ur komið á, eru öræfingar
sérstaklega vanir að hafa
samgöngur og gista á í ferð-
um sínum um sveitina“.
Síðan er skrá yfir 5 sjúklinga,
er allir höfðu fengið meiri eða
minni lamanir og hafði einn
þeirra dáið. Sjúklingarnir voru:
1) Þ. G. 9 6 ára, Hestgerði,
veiktist snemma í maí; 2) S.
H. 9 2 ára, Sléttaleiti, veikt-
ist snemma í maí; 3)A. G. $
12 ára, Reynivöllum efri, veikt-
ist 14. maí; 4) Þ. Þ. 9 27
ára, Breiðabólsstað, veiktist 22.
maí og 5) H. B. 9 50 ára, Ilolt-
um, Mýrum, veiktist 10. maí
(aflleysi í öllum útlimum) dó
18. maí, læknis ekki vitjað.
1 hréfinu til stjórnarráðs,