Læknablaðið - 15.12.1948, Qupperneq 44
150
L Æ K N A B L A Ð IÐ
liinna dauðu hluta og sjúkdóm-
anna. Þá réðu menn ekkert við
farsóttirnar.
Þá var sambandið milli ó-
þrifnaðar og sjúkdóma ekki
fundið.
Nú er þetta aUt löngn orðið
ljóst, og í samræmi við það hef-
ir hin almenna þrifnaðarstarf-
semi, þ.e. heilhrigðiseftirlitið,
verið lögð meir og meir undir
yfirumsjón heilbrigðisyfirvald-
anna.
Hina síðari áratugi hefir þró-
unin í öllum menningarlöndum
gengið æ meira í þá átt
að sameina sem mest, það sem
áður var aðskilið, i þessum efn-
um.
Það hefir verið kappkostað
að sameina sem flesta þætti
heilhrigðismálanna, í hverju
umdæmi, í hendi eins manns,
hvort sem hann heitir héraðs-
læknir eða bæjarlæknir, Dis-
triktslæge eða Stadslæge, eða
Medical Officer of Health.
Fleiri og fleiri þættir hins
daglega lífs snerta nú starf
þessara manna.
Gott neyzluvatn, gott frá-
rennsli og sorphirðing er stöð-
ug sóttvarnarstarfsemi, en um
leið þrifnaðar- og fegrunarstarf-
semi.
Baráttan fyrir rúmgóðum,
björtum og vel loftræstum íbúð-
um, í hollu og fögru umhverfi,
er eigi aðeins sóttvörn, heldur
og andleg og líkamleg heilsu-
vernd, í víðtækum skilningi.
Baráttan gegn örbirgð, fá-
tækt og þekkingarskorti fellur
og hér undir.
Sköpun aðstöðu til hollrar
tómstundaiðju, holls skemmt-
ana og félagslífs, er snar þáttur
hinnar andlegu heilsuverndar.
Verndun fjölskyldulífsins, og
verndun fóstursins og barnsins
frá getnaði fram um skóla og
unglingsárin, eru undirstöðu-
atriði heilsuverndarinnar.
Hér er aðeins stiklað á stóru,
en þetta ætti að nægja til að
sýna, hversu fjarstætt það er
að ætla sér að aðskilja hina
„dauðu hluti“ frá „sjúkdómum
og sjúklingum“.
ímyndað ófrelsi.
J. S. færir þau rök fyrir
frumvarpinu, að ómögulegt
væri fyrir heilbrigðisfulltrúann
að starfa, nema hann væri al-
gerlega laus undan eftirliti hér-
aðslæknis.
Hvað þá með yfirstjórn heil-
brigðisnefndar ?
Hvað þá með framkvæmda-
vald lögreglustjórans?
Var það ekki óþolandi frelsis-
skerðing ?
Þetta ófrelsisbjal gengur svo
langt, að J.S. segist þá, þ. e. í
fyrra vor, bafa beðið í næst-
um 2 ár, og að miklu leyti ó-
virkur, eftir að taka við hinu
sjálfstæða heilbrigðiseftirlits-
starfi, sem hann var ráðinn til
að gegna.
Var nokkur leið til að ráða