Læknablaðið - 15.12.1948, Blaðsíða 47
L Æ Iv X A B L A Ð I Ð
153
ið um tíma undir stjórn þriggja
aðila. Þá var ekki von til, að
úr raknaði.
Loks þegar heilbrigðisfulltrú-
inn nýi hafði verið í verkfalli
í 2 ár var flutt fruinvarp á
Alþingi, sem staðfesta átti með
lögum sundrungina, sem í þessi
mál var komin.
Þrátt fyrir það, að frumvarp-
inu er frestað, er borgarlæknir
ráðinn.
Hann semur nýja heilbrigðis-
samþykkt, en heilbrigðissam-
þykkt þeirri, sem héraðslæknir
hafði áður samið með aðstoð
prófessorsins i heilbrigðisfræði,
er stungið undir stól.
Eftirmáli.
Rætt hefir verið um heil-
brigðismálin í Reykjavík. Þær
umræður hafa orðið til að skýra
málin. Það hefir verið sýnt
fram á, að borgarlæknisfrum-
varpið, í þeirri mynd, sem það
lá fvrir Alþingi, brýtur í liág
við grundvöll íslenzkrar heil-
brigðislöggjafar, og miðar að
þvi að sundra starfskröftunum
og gera framkvæmd heilbrigðis-
málanna erfiðari. Þetta frum-
varp var aldrei samþvkkt.
Ennþá er þvi engin grund-
vallarbreyting á orðin.
Bæjarstjórn hefir gefið yfir-
heilbrigðisfulltrúanum nýtt
nafn.
Það hefði, að vísu, verið rök-
réttara að nota annað nafn en
borgarlæknir, á meðan héraðs-
læknisembættið var við líði, t.
d. heilbrigðislæknir.
Ég tel (>að líka ver farið, að
heilbrigðisfulltrúanafnið skuli
alveg lagt niður, það var helgað
af hefð og lagalegum rétti í
áratugi. Nafnið heilbrigðiseftir-
litsmaður er, í sjálfu sér, ekki
eins rökrétt, og á eftir að venj-
ast, og það á sér enga hefð né
stoð í lögum enn sem komið er.
Aðstaða héraðslæknisins er
enn óbreytt, en bæjarstjórn hef-
ir fengið 2 ráðunauta í stað
eins áður. Það getur vel staðizt.
Það þarf ekki stórvægilegar
lagabreytingar til að koma
fram þeim nafnabreytingum,
sem hér eru á ferðinni.
Það þarf engar lagabreyting-
ar til að gera heilbrigðisfull-
trúann (borgarlækni) frjálsari
i starfi, ef hann á annað borð
vill þýðast yfirstjórn heilbrigð-
isnefndar, því að í lögum nr.
35 frá 1940 um heilbrigðis-
nefndir o. fl., stendur í 5. grein:
„Heilbrigðisnefndir skulu sjá
um, að framfylgt sé ákvæðum
heilbrigðissamþykkta, svo og
ákvæðum í sérstökum lögum,
sem heilbrigðisnefndum er falið
að annast um framkvæmd á“.
Þar segir og í 6. grein: „Heil-
brigðisfulltrúinn annast, undir
eftirliti héraðslæknis, alla dag-
lega eftirlitsstarfsemi fyrir
hönd heilbrigðisnefndar, og
hefir til þess ákveðinn starfs-
tíma daglega eftir nánari fyrir-
mæhun í erindisbréfi“.