Læknablaðið - 15.12.1948, Page 50
156
L .¥ K X A B L A Ð I Ð
hurð við fyrri aðferðir, vnr senni-
lcga nokkru betri.
Við bronchitis capillaris var árang-
ur einnig a. m. k. jafngóður og með
áframhaldandi gjöf, og kostir eru
hér hinir sömu og við lungnabólgu:
1) auðveldara að fá börnin til að
taka meðalið einu sinni en oft, 2)
börnin fá meiri frið, betri svefn-
ró, 3) velgja og uppsala er sjaldgæf-
ari, 4) timasparnaður (og minni
hætta á mistökum), 5) skyndimeð-
ferðin er ódýrari. Heildarskammtur-
inn um helmingi minni en við
áframhaldandi gjöf.
(Knud Wilken-Jensen: U. f. 1.
110/16). — Fr. Ein.
Penicillin-exanthem.
Hjúkrunarkona, 28 ára að aldri,
var skorin upp, vegna beinæxlis
(ostcom) i ennisbeini. Þegar æxlið
var tekið, rifnaði dura. Sjúkl. var
þvi gefið sulfatliiazol í 4 daga á
eftir, en penicillin í vikutima, 3 milj.
eininga alls, i vöðva.
Viku eftir að liætt var penicillin-
gjöf, fékk sjúkl. útjjot á liúð („urti-
carielt exanthem") og lítilsháttar
hitahækkun. Útjjotin hjöðnuðu ekki
í viku, en hurfu svo á nokkrum
dögum.
Það er talið sérkennilegt við peni-
cillin-ofnæmi, sem er ekki fátitt, að
útjjotin koma ekki i Ijós fyrr en
viku eftir lyfjagjöfina, eða síðar.
H. K. Kristensen.
Nord. med.. Xr. 25, 1948.
Ó. G.
*
l’iví stjórn Iv.l.
'Stjórn Læknafélags lslands
skrifaði fjárniálaráðherra jj. 10.
marz 1949, og fór fram á það,
að læknar, sejn fara til útlanda
til framhaldsmenntunar verði
undanþegnir gjaldi því sem lagt
er á gjaldeyrisleyfi til utan-
ferða og yrði sama látið gilda
um þá og aðra námsmenn.
Sem svar við þessari málaleit-
un liefir stjórn L. 1. Jjorizt svo-
liljóðandi bréf frá ráðuneytinu,
dags. 15. s.m.
„Með tilvísun til bréfs yðar,
dags. 10. þ.m., er yður tjáð, að
ráðuneytið fellst á að undan-
þiggja gjaldi samkvæmt 30.
gr. laga nr. 100, 1948, ferða-
kostnaðarleyfi til lækna, sem
fara utan til námsdvalar, ef
leyfisumsókninni fylgir vottwrð
frá læknafélaginu um það, að
ferðinni sé heitið til náms og að
félagið hlutist til um, að lækn-
arnir gefi heilbrigðismálaráðu-
neytinu skýrslu um námið inn-
an mánaðar frá heimkomunni.“
Læknar, sem hyggja á utan-
ferðir í námsskyni þurfa að afla
sér vottorðs hjá stjórn L. 1.,
ef Jjeir vilja verða þessara
hlunninda aðnjótandi.
Stjórn L. 1.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavik. Sími 1640. Pósthóif 757.
Félagsprentsmiðjan h.f.