Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 4
Dalacin C
Notkunarástæður:
Dalacin C skal nota við alvarlegar sýk-
ingar af völdum keðjukokka, taksót-
tarkokka, klasakokka (streptoc. pneu-
moc., staphyloc.) og loftfælinna teg-
unda, einkum bakteriuættar. Til sýk-
inga, er orsakast af sýklum, sem svara
virkum skammti Dalacins C, teljast:
Sýkingar í efri og neðri öndunarvegum
svo sem kokbólga, kverkabólga, skúta-
bólga (sinusitis) miðeyrabólga, lungna-
kvef og lungnabólga, sýkingar í húð og
mjúkvef svo sem ígerðir, húðnetjubólga
(cellulitis), smituð sár og smitanir teng-
dar tönnum (rótarigerðir og tannholds-
bólgur). Alvarlegri smitanir svo sem bráð
og hægfara bein- og mergjarbólga hafa
svarað venjulegum skömmtum.
Varnaðarorð:
Almennt þola sjúklingar lyfið vel. Venj-
ulegar aukaverkanir sýklalyfja - óþæ-
gindí frá meltingarvegi, þunnar hægðir
eða niðurgangur, ógleði, uppköst.
Skammvinn hvítkornafæð (leukopenia)
eða afbrigðileg lifrarpróf hafa komið
fram i nokkrum tilfella. Væg ofnæmiss-
vörun (útbrot, kláði og upphlaup) hefur
stöku sinnum sézt.
Notist með varúð af sjuklingum með
sögu um andarteppu (asthma bronchi-
ale) eða annað ofnæmi. Eins og með
notkun annarra sýklalyfja skal gera regl-
ubundin lifrarpróf og mæla blóðhag
við langvarandi meðferð. Þegar ung-
börnum eru gefin bragðbætt korn, er
æskilegt að fylgst sé náið með liffær-
astarfsemi þeirra á viðeigandi hátt.
Meinbugir:
Óráð er að gefa lyfið börnum á fyrsta
mánuði. Einnig er óráð að gefa þeim
Dalacin C, sem ofnæmir eru fyrir lin-
comycini. Ekki hefur enn verið sýnt
fram á, að lyfið sé skaðlaust fóstrum.
Sérstaklega virkt
gegn gram-jákvæðum
smitunum, er svara
ekki ampicillin og
meþacillín meðferð.
Dregur verulega úr
tiðni endurtekinna
Notkunarform:
Börn: 75 mgr. hylki - í hverju hylki
er clindamycin hydróklórið hydrat, er
samsvarar 75 mgr, clindamycins. Fæst
i 16 eða 100 stk. pökkum.
Fullorðnir: 150 mgr. hylki - I hverju
hylki er clindamycin hydróklórið hydrat,
er samsvarar 150 mgr. clindamycins.
Fæst í 16 eða 100 stk. pökkum.
Börn: Bragðbætt korn Eftir leys-
ingu er í hverjum 5 ml. (teskeið)
clindamycin palmítat hydróklórið, sem
samsvarar 75 mgr. clindamycins. Fæst
i 80 ml. glösum.
framleitt af
Upjohn
sýklalyfja-
rannsóknir
Umboð á íslandi:
Lyf s/f
Siðumúla 33, Reykjavík.
VÖRUMERKI: DALACIN
IC 8306 1
2.76
!