Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 46
112
LÆKNABLAÐIÐ
athugunar við, áður en það yrði lagt fyrir Al-
þingi sem lagafrumvarp. Af þessu ástæðum
ritaði stjórn L.I. heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra bréf, sem fer hér á eftir ásamt svar-
bréfi ráðuneytisins:
Reykjavík 16. marz 1971.
Hr. heilbrigðismálaráðherra
Eggert G. Þorsteinsson,
Heilbrigðismálaráðuneytinu,
Laugavegi 172,
Reykjavík.
Verkefni það, sem nú liggur fyrir heil-
brigðismálanefnd (skipaðri skv. þingsályktun
samþykktri á Alþingi 22. apríl 1970), er í senn
mjög yfirgripsmikið og mikilvægt, snertir
flesta þætti heilbrigðisþjónustu, varðar lækna-
stéttina í heild og raunar landsmenn alla. Með
tilliti til þessa fer stjórn Læknafélags Islands
þess á leit við yður, hr. heilbrigðismálaráð-
herra, að hún fái til athugunar drög nefndar-
innar að hinni nýju heilbrigðislöggjöf, áður en
nefndin skilar áliti. Jafnframt fái stjórn L.I.
tækifæri til að ræða mál þessi við fulltrúa frá
aðildarfélögunum, og læknaþing, sem haldið
verður í september nk., fái tækifæri til að
fjalla um málið.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Baldur Fr. Sigfússon
ritari
22. marz 1971.
Læknafélag Islands,
hr. ritari Baldur Fr. Sigfússon,
Domus Medica, R.
Með vísun til bréfs yðar 16. þ.m., skal bent
á, að Læknafélag Islands hefur tilnefnt 2 af
5 fulltrúum í nefnd þeirri, sem skipuð var
samkvæmt þingsályktun Alþingis frá 22. febrú-
ar 1970.
Ráðuneytið lítur því þannig á, að áhrif
læknasamtakanna hljóti að gæta mjög veru-
lega i starfi nefndarinnar og læknisfræðileg
sjónarmið hljóta að vera þar algjörlega ríkj-
andi, því að 4 af 5 fulltrúum eru læknis-
menntaðir.
Ráðuneytið getur að sjálfsögðu ekki sent
neitt frá nefndinni til athugunar fyrr en hún
hefur skilað áliti, því ráðuneytið hefur ekkert
í höndum frá nefndinni fyrr.
Nefndarálitið og frumvarp að nýrri heil-
brigðislöggjöf, ef samið verður, verður að
sjálfsögðu fyrst sent til Alþingis, sem hafði
frumkvæðið að skipun nefndarinnar, en vafa-
laust verður það siðan sent til Þeirra aðila,
sem helzt eiga hlut að máli, Læknafélags Is-
lands sem annarra.
F.h. r.
Páll Sigurðsson (sign.).
Til fyllri skýringar á sjónarmiðum stjórnar
L.I. var enn á ný skrifað bréf til ráðuneytisins
og fer það hér á eftir:
30. marz 1971.
Hr. heilbrigðismálaráðherra
Eggert G. Þorsteinsson,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 170—172, R.
Höfum móttekið bréf ráðuneytisins dags. 22.
marz s.l. varðandi störf heilbrigðisnefndar.
Af því tilefni viljum við taka fram eftirfar-
andi:
a) Þeir tveir læknar, sem ráðherra skipaði í
nefndina eftir tilnefningu stjórnar L.I.,
skyldu skv. þingsályktun vera úr hópi hér-
aðslækna annars vegar og sjúkrahúslækna
hins vegar. Var stjórn L.I. þannig nokkuð
bundin í vali, en nefndinni tryggð þekking
og reynsla lækna með tvenns konar ákveð-
in starfssvið læknis að baki. Af augljósum
ástæðum og ekki sízt með tilliti til þess,
hve verkefni nefndarinnar er víðtækt og
margþætt, er alls óvíst og raunar ólíklegt,
að sjónarmið einstakra lækna geti alls
staðar farið saman við sjónarmið meiri
hluta starfsbræðra þeirra á sama starfs-
vettvangi, hvað þá heldur annarra fjöl-
mennari hópa lækna, sem eigi var getið í
áðurnefndri þingsályktun, en gegna einnig
mikilvægum hlutverkum í heilbrigðisþjón-
ustu landsins.
Stjórn L.I. telur, að læknar þeir, er hún til-
nefndi í heilbrigðismálanefnd, séu ekki full-
trúar L.I. í þeim skilningi, að þeir vinni
nefndarstörf sín og greiði um þau atkvæði
í umboði félagsins eða túlki sjónarmið þess
í öllum atriðum. Hljóta nefndarmenn að
starfa sem einstaklingar, skipaðir af ráð-
herra, óháðir öðrum en eigin sannfæringu.
Þótt þeir kynni sér og öðrum nefndarmönn-
um stefnu félagsins í þeim málum, þar sem
hún hefur verið fullmótuð, er engan veginn
tryggt, að flest læknisfræðileg sjónarmið
meiri hluta íslenzkra lækna verði túlkuð í
hinum yfirgripsmiklu nefndarstörfum lækn-
anna.
b) Fyrir atbeina landlæknis hefur stjórn L.I.
um árabil fengið til athugunar drög að
lagafrumvörpum um heilbrigðismál, sem
ráðuneytið hefur látið semja, áður en þau
hafa verið send Alþingi, enda þótt læknar
hafi átt aðild að samningu þeirra. Telur
stjórn L.I. mikilvægt, að þessi háttur verði
einnig framvegis í heiðri hafður.
Með hliðsjón af ofansögðu væntum við fast-
lega, að L.I. fái til athugunar og umsagnar álit
heilbrigðismálanefndar, áður en endanlega
verður frá því gengið sem frumvarpi til Al-
þingis.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Baldur Fr. Sigfússon
ritari