Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 88
134
LÆKNABLAÐIÐ
29. febr. 1972.
Allsherjarnefnd sameinaðs Alþingis,
hr. form. Gísli Guðmundsson,
Alþingi.
Stjórn L.l. þakkar bréf yðar dags. 21. febr.
1972, þar sem leitað er álits Læknafélags Is-
lands á meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar
um umboðs- og aðstoðarmenn lækna í byggð-
um landsins.
Fer álit stjórnar Læknafélags Islands hér á
eftir:
1. Samkvæmt nefndaráliti og tillögum nefndar,
er skipuð var af heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra skv. þingsályktun frá 22. apríl
1970 til að endurskoða ýmsa þætti heilbrigð-
ismála, einkum að því er varðar heilbrigðis-
þjónustu í dreifbýli. Er þar m.a. gert ráð
fyrir, að settar verði á stofn heilsugæzlu-
stöðvar og að landiæknir ákveði í samráði
við héraðslækni hvers héraðs, á hvaða stöð-
um öðrum og með hvaða fyrirkomulagi
læknismóttaka skuli vera utan heilsugæslu-
stöðva. Þá er og gert ráð fyrir, að héraðs-
hjúkrunarkonur verði ráðnar, þar sem þörf
krefur og að þeim verði fjölgað verulega
frá því, sem nú er. Hefur Læknafélag Is-
lands sent heilbrigðismálaráðuneytinu um-
sögn um fyrrgreind drög að nýrri heilbrigð-
islöggjöf.
2. Stjórn L.l. telur ekki rétt að taka út úr
með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir í
áðurnefndri þingsályktunartillögu, einn þátt
vandkvæða heilbrigðisþjónustu í dreifbýli,
enda telur hún hæpið, að umboðs- og að-
stoðarmenn, eins og ráð er fyrir gert í til-
lögunni, komi að tilætluðum notum. Stjórn
L.l. vill hins vegar taka undir það, sem
fram kemur í þingsáiyktunartillögunni og
greinargerð, að nýta megi betur góðan
starfskraft ijósmæðra með nokkurri viðbót-
armenntun og breikka þannig starfsvett-
vang þeirra.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Guðjón Magnússon
ritari
7. april 1972.
Heilbrigðis- og félagsmálanefnd Alþingis,
Alþingishúsinu,
Reykjavík.
Læknafélag Islands þakkar bréf yðar frá 24.
marz 1972, þar sem beiðzt er umsagnar um
frumvarp til laga um breytingu á læknaskip-
unarlögum, nr. 43, 12. maí 1965.
Læknafélag Islands fagnar ákvæðum 1. gr.,
þar sem gert er ráð fyrir, að stofnaðar verði
við rikisspítalana 6 sérstakar læknisstöður, er
tengdar verði þjónustu í héraði. Eins og tekið
er fram í greinargerð með frumvarpinu, setti
L.I. fram þessa tillögu í þeirri trú, að slík til-
iiögun myndi í vissum tilvdkum geta leyst
bráðan skort á læknisþjónustu í héraði. L.í. er
samþykkt ákvæðum 2. gr. frumvarpsins, sem
það telur mjög til bóta frá því sem nú er.
Varðandi 3. gr. frumvarpsins vill L.I. taka
fram, að það er mótfallið því sjónarmiði, að
læknastúdentar skuldbindi sig eins og þar er
gert ráð fyrir, til starfa í héraði, og telur all-
ar slíkar kvaðir í eðli sínu neikvæðar og sízt
til þess fallnar að örva Iæknanema til starfa í
héraði. Telur félagið vænlegra að í lækna-
námi, svo og að því loknu, sé unnið að því að
skapa áhuga á læknisstarfi í héraði. Verður
það bezt gert með því áð kenna í læknanámi
undirstöðuatriði heimilislækninga og gera
læknanemum kleift að starfa með læknum á
heilsugæzlustöðvum og kynnast á þann hátt
læknisþjónustu í dreifbýli. L.I. álítur sjálf-
sagt og eðlilegt, að námslán til læknanáms
verði það rífleg, að þau megni að standa undir
námskostnaði.
Virðingarfyllst,
f.h. Læknafélags Islands,
Snorri P. Snorrason Guðjón Magnússon
formaður. ritari
12. maí 1972.
Til allsherjarnefndar sameinaðs Alþingis,
Alþingishúsinu,
Reykjavík.
I bréfi dags. 19. apríi 1972 hefur allsherjar-
nefnd sameinaðs Alþingis beiðzt umsagnar
Læknafélags Islands um þingsályktunartillögu,
flutta af Oddi Ólafssyni, um menntun heil-
brigðisstarfsfólks (nr. 30).
Það hefur verið yfirlýst stefna Læknafélags
Islands, að komið verði á fót skipulagðri
menntun fyrir starfshópa heilbrigðisþjónust-
unnar, er fram til þessa hafa orðið að sækja
nám sitt til útlanda. Vísast í því sambandi til
samþykktar aðalfundar L.I. 1970. I þingsálykt-
unartillögunni er getið um menntun sjúkra- og
iðiuþiálfara, féiagsráðgjafa og sálfræðinga, en
mikill skortur er á þessum hópum. Einnig vill
Læknafélag Islands benda á nauðsyn þess, að
skipulagt verði nám fyrir verðandi læknarit-
ara. Með tilkomu iæknamiðstöðva og heilsu-
gæzlustöðva eykst mjög þörf á þessum starfs-
krafti.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Guðjón Magnússon
ritari