Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
115
áhrif á nautnaefna- né nautnalyfjaneyzlu í
landinu. Hins vegar mun hún gera rannsókn
á grunnorsökum þess vandamáls auðveldari.
Þau fíkniefni, sem á undanförnum árum
hafa skapað mest vandamál í tækniþróuðum
þjóðfélögum, eru hassis, LSD og heroin. Stað-
reyndin er sú, að enginn íslenzkur læknir hef-
ur nokkurn tíma ávísað eða getur ávísað þess-
um efnum. Þau eru ekki lyf heldur fíkniefni,
sem ekki eru á lyfjaskrá. Dreifing og notkun
þessara efna, sem einkum hafa skapað alvar-
leg þjóðfélagsvandamál, eru því ekki í höndum
lækna fremur en t.d. notkun áfengis eða tó-
baks. Til þess að unnt sé að snúa sér að vanda-
málinu, eins og það liggur fyrir, þarf að eyða
þeim misskilningi, að ávísanir lækna á ávana-
lyf sé orsök fíkniefnaneyzlu, og þess vegna er
nauðsynlegt að taka upp skráningu og skýrslu-
gerð þá. sem læknafélagið hefur óskað eftir að
heilbrigðisvfirvöld taki upo. Væntum við þess,
að Kvenfélagasamband Islands styðji þessa
málaleitan við heilbrigðisyfirvöid.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags íslands
Arinbjörn Kolbeinsson, form.
Bankamálanefnd
Stjórn Læknafélags Islands skipaði í sam-
vinnu við stjórn Læknafélags Reykjavíkur
nefnd til þess að gera athugun á fyrirkomu-
lagi bankamála lækna og kanna, hvort fram-
tíðarviðskipti við Búnaðarbankann væru hag-
kvæm eða hvort æskilegt væri að gera á þeim
breytingar.
I nefnd þessa voru kosnir af hálfu L.I. Stef-
án Bogason og Kjartan Jóhannsson.
Keflavíkurmál
I grein, sem birtist í Morgunblaðinu 7. jan.
1971, kom fram gagnrýni á ákveðin atriði í
sambandi við stöðuveitingar við Sjúkrahúsið
í Kefiavík, og var atriðum þeim, sem í grein-
inni birtust, eigi mótmælt opinberlega, og
taldi stjórn Læknafélags Islands þvi eðlilegt
að taka þetta mál ’til nánari athugunar.
Stjórn L.I. skrifaði eftirfarandi bréf til land-
Jæknis og ræddi málið einnig við hann á fundi,
þar sem hann bar fram ýmsar munnlegar
skýringar. Önnur atriði þessa máls hefur
Læknafélag Reykjavíkur fjallað um.
15. janúar 1971.
Hr. landlæknir,
Sigurður Sigurðsson,
Arnarhvoli, R.
I grein Kristins Kristinssonar, Keflavík,
„Einn kapítuli í læknamálum Suðurnesja“,
sem birtist í Morgunblaðinu þ. 7.1. sl„ eru til-
færð nokkur atriði úr bréfi landlæknis til
stjórnar Sjúkrahúss Keflavíkurhéraðs, dags.
19.11. sl., þar sem fjallað er um umsóknir um
stöðu yfirlæknis við sjúkrahúsið. Atriði þessi
hafa eigi verið borin til baka, svo vitað sé, og
er því ekki ástæða til annars en að ætla, að
þau séu rétt eftir höfð.
I greininni kemur m.a. fram, að Jón K. Jó-
hannsson, sem verið hafði yfirlæknir við
sjúkrahúsið hartnær 12 undanfarin ár, sótti
um endurráðningu vegna breyttra aðstæðna.
Hins vegar er Jón ekki meðal þeirra lækna,
er landlæknir mælir með til starfsins.
I umsögn landlæknis um Jón K. Jóhannsson
eru taldir þrír kostir hans, þ.e.a.s. lengst lækn-
isreynsla umsækjenda, ágæt framhaldsmennt-
un á mjög góðum sjúkrahúsum í Bandaríkjun-
um og sérfræðiviðurkenning í þeirri grein, sem
æskileg þótti til starfsins, er það var auglýst,
„og mætti því þykja eðlilegt, að hann yrði
endurráðinn". Þrátt fyrir það hlýtur Jón eigi
meðmæli landlæknis, og virðist eingöngu valda
..þrálátur orðrómur um æði erfiða samvinnu
hans. bæði við aðra lækna í læknishéraðinu og
fleiri".
Það vekur furðu stjórnar L.I., ef hið háa
landlæknisembætti leggur orðróm til grund-
vallar umsögn um hæfni læknis til starfa. Þó
vekur það enn meiri undrun, ef landlæknir
ætlar öðrum en embættinu að reyna sannleiks-
gildi slíks orðróms. Einkum hlýtur að teljast
hæpið að vísa slíkri rannsókn aigjörlega í
hendur þeirra aðila á staðnum, ólæknislærðra,
sem umsögnin er stíluð til.
Stiórn L.í. er sammála þeirri skoðun land-
læknis, að samvinnuhæfileiki lækna sé mjög
mikilsverður eiginleiki, og taka beri tillit til
hans við stöðuveitingar, en hins vegar verður
að teiia siálfsagt. að samstarfshæfni sé könn-
uð með sama hætti hiá öllum umsækjendum.
Má í þessu sambandi minna á, að oft er ruglað
saman hugtökunum samvinnulipurð og undan-
látssemi. begar rætt er um mannleg samskipti.
Með hliðsjón af því. sem að framan segir.
getur stjórn J^æknafélags Islands ekki látið
hjá líða að mótmæla eindregið þeirri aðferð,
sem beitt hefur verið af hálfu landlæknis-
embættisins í þessu máli. eftir því, sem fram
kemur í ofangreindri blaðagrein.
Virðingarfyllst.
stiórn Læknafélags Islands,
Arinbjörn Kolbeinsson. formaður
Baldur Fr. Sigfússon. ritari
Guðmundur Jóhannesson, gjaidk.
Laun héraöslækna
1 samningum. er B.S.R.B. gerði við fiármála-
-áðunevtið um kiör opinberra starfsmanna í
lok ársins 1970 voru héraðslæknar hækkaðir
í 27. launaflokk Var hækkun bessi bó bundin
sérákvæðum í 20. gr. samningsins. Þar segir
svo: ..Sé starfi Svo háttað skv. lögum eða
sHórnarfvri'-rrælum að starfsmaður nlóti sér-
stakra greiðs'na til v’ðbótar föstum launun
fvrir störf. sem hann leysir af hendi í st.arfi
og mat bess til launa miðast. við er ríkinu
hoimilt. að m;ða launagreiðs'ur v;ð Iæ°rri
launaflokk með hbðsjón af þessum sérstöku