Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 72
126
LÆKNABLAÐIÐ
stjórn Domus Medica og farið fram á að
læknafélögin verði látin sitja fyrir um leigu á
því húsnæði, sem losnar á næsta ári.
Helztu verkefni skrifstofunnar
Eins og að framan greinir er framundan
endurskipulagning skrifstofunnar með tilliti til
bættrar þjónustu við félög og félaga lækna-
samtakanna. Verður fyrst um sinn reynt að
leggja áherzlu á aukna skilvirkni þeirrár starf-
semi sem fram fer á skrifstofunni á hverjum
tíma.
Að svo stöddu verður ekki sagt fyrir um
það, hvort og þá hvaða ný verkefni skrifstof-
an kann að taka að sér i náinni framtíð, þó
má ætla að ef til sameiningar námssjóða lækna
og námssjóðs sjúkrahúslækna kemur, verði
starfsemi þess sjóðs í verkahring skrifstofunn-
ar.
Þeirri hugmynd hefur verið hreyft að færa
tímaritakaup lækna, sem skrifstofan annast
nú, yfir til bókaverzlunar, sem sérhæft hefur
sig í viðskiptum við erlenda aðila. I fljótu
bragði virðist sem það ætti að bæta þá þjón-
ustu sem læknar njóta nú á þessu sviði. Skrif-
stofan yrði eftir sem áður sá aðili, er læknar
sneru sér til með sínar pantanir og greiðslur.
Hér á eftir verður reynt að gefa nokkra
mynd af því, hver helztu verkefni skrifstof-
unnar eru í dag:
I. Umsjón fjármála L.t. og L.R.
1. Innheimta félagsgjalda.
2. Innheimta tekna fyrir veitta þjónustu.
3. Varzla sjóða félaganna.
4. Daglegt bókhald, árlegt reikningsupp-
gjör.
II. Umsjón lífeyrissjóös lœkna, námssjóðs
sjúkraliúskekna, styrktarsjóðs lœkna,
1. Varzla sjóða.
2. Innheimta iðgjalda.
3. Veiting lána og styrkja; útbúnir víxl-
ar og tryggingarbréf.
4. Daglegt bókhald, árlegt reikningsupp-
gjör.
III. Umsjón LœknablaÖsins.
1. Varzla sjóðs blaðsins.
2. Vélritun efnis; að nokkru leyti.
3. Auglýsingasöfnun.
4. Afgreiðsla.
5. Innheimta.
6. Daglegt bókhald og reikningsuppgjör.
IV. Upplýsingastarfsemi.
1. Varðandi einstaklinga:
a) Ráðninga- og launakjör.
b) Einstök taxtamál.
2. Varðandi hópa:
a) Kjaramál og sérstakir samningar,
yfirlit um samninga. Uppsögn og
endurskoðun.
b) Lög og reglugerðir ýmissa sjóða.
c) Tryggingarmál.
3. Varðandi stéttarheildina.
a) Heilbrigðislöggjöf.
b) Lög og codex félaganna.
c) Fundir og námskeið félaganna.
d) Spjaldskrár.
e) Vmis gagnasöfnun.
V. Undirbúningur og framkvæmd:
Læknaþings, aðalfunda, stjórna, sjóð-
stjórna- og nefndafunda.
VI. Umsjón meö tímaritakaupum lœkna.
Pantanir, innheimta.
VII. Ýmis önnur starfsemi.
1. Innlendar og erlendar bréfaskriftir.
2. Fréttatilkynningar, fréttabréf, fund-
arboðanir.
3. Samband við íslenzka lækna erlendis.
4. Samband við erlend læknafélög og
W.M.A.
5. Samstarf við önnur félög heilbrigðis-
starfsfólks.
6. Samband við félag læknanema.
7. Upplýsingar og fyrirgreiðsla við er-
lenda lækna.
8. Upplýsingar til umboðsmanna er-
lendra fyrirtækja og stofnana.
9. Samvinna við sjálfseignarstofnunina
Domus Medica.
10. Afgreiðsla Ekknasjóðs.
11. Upplýsingar til almennings.
VIII. Seld þjónusta.
1. Símavarzla vegna neyðarþjónustu kl.
08.00—17.00.
2. Vélritun og ljósritun fyrir einstaka
lækna.
Þær breytingar hafa orðið á starfsliði skrif-
stofunnar auk ráðningar framkvæmdastjóra,
að Lára M. Ragnarsdóttir, sem veitt hefur
skrifstofunni forstöðu undanfarin ár, lét af
störfum 1. mai sl. María Kristleifsdóttir, sem
færði allt bókhald félaganna, auk annarra
starfa, lét af störfum 1. marz sl. og hóf hjúkr-
unarnám.
Birna Loftsdóttir hætti störfum 1. október
1971.
Þakkar stjórn L.I. öllum þessum stúlkum vel
og samvizkusamlega unnin störf á undanförn-
um árum.
Frú Sofie Markan hóf störf á skrifstofunni 7.
október 1971, og vinnur við vélritun og alla
almenna afgreiðslu auk símavörzlu.
Frú Fanney Guðmundsdóttir, sem áður hef-
ur unnið hjá læknasamtökunum (til ársins
1962) hóf störf á skrifstofunni 19. maí sl. Vinn-
ur hún hálfan daginn, aðallega við bókhald.
Ingrid Markan hefur verið ráðin á skrif-
stofuna í sumar í 3ja mánaða orlofi Elínar N.
Banine.
Helztu verkefni stjórnar L.Í.:
Lœknaskortur í dreifbýli
Svo sem kunnugt er varð uppi fótur og fit
sl. haust, er ljós varð sá vandi, er steðjaði að