Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ
107
erfið. Langir tengigangar eru óarðbær íjár-
festing, krefjast ræstingar og hljóta að auka
að mun hitunarkostnað. Af þessu er ljóst, að
bæði stofnkostnaður og rekstrarkostnaður
verður dýrari með því að aðskilja svo legu-
pláss og Þjónustudeildir, og fyrirkomulagið
verður óhentugra og erfiðara fyrir sjúkling-
ana og starfslið. 3) Á teikningunum virðist
ekki nægilegt athafnarými fyrir þá lækna,
sem starfa þurfa í lækningamiðstöðinni en eins
og tekið hefur verið fram telur Læknafélag
Islands nauðsynlegt, að læknamiðstöðin á Isa-
firði verði miðuð við það, að henni sameinist
Bolungarvíkurhérað, Suðureyrarhérað, Flat-
eyrarhérað og Þingeyrarhérað auk Súðavíkur-
héraðs, sem nú þegar er ætlunin að sameina
Isafjarðarhéraði. Þá viljum við einnig taka
frani í því sambandi, að neyðarþjónusta sú,
serii Landspítalinn gæti veitt, ef stofnaðar
yrðu sérstakar stöður í þeim tilgangi, er ekki
hugsuð til að standa undir læknisþjónustu í
iæknishéraði til lengdar, heldur aðeins til að
unnt sé að grípa til hennar, ef í nauðir rekur,
og koma örugglega í veg fyrir, að neyðarástand
skapist. Þess vegna er það skoðun Læknafélags
Islands, að læknamiðstöðin á Isafirði eigi að
sjá fyrir almennri læknisþjónustu í þeim hér-
uðum, er að ofan greinir, og jafnvel að nokkru
leyti fyrir sérfræðiþjónustu. Komi hins vegar
til, að í nauðir reki með læknalið, verði unnt
að grípa til varaliðsins á Landsspítalanum, sér-
staklega vegna staða sem lokast inni yfir
vetrarmánuðina, en ekki sé treyst á það vara-
lið að staðaldri eða lögð á það hin almenna
reglulega þjónusta.
Læknafélag Islands mun taka til nánari at-
hugunar þau gögn sem því barst með bréfi
yðar hinn 6. nóv. sl. og leitast við að svara
þeim ítarlegar í byrjun næsta árs.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Baldur Fr. Sigfússon, ritari.
VandkvæÖi heimilislœknafélagsins á Akureyri
Formaður L.I. fór til Akureyrar í ágúst og
hélt fund með læknum þar varðandi heimilis-
læknisþjónustuna á Akureyri, og kom þar í
ljós, að nær helmingur bæjarbúa hefur nú
engan heimilislækni eða hefur sjúkrahúslækna
fyrir heimilislækna, en þeir vilja gjárnan
leggja niður heimilispraksis. Bent var á tvær
leiðir til að leysa þetta mál. Önnur er að bjóða
iæknum upp á ókeypis húsnæði og lækninga-
áhöld á tveimur stöðum í bænum, aðstöðu fyrir
tvo lækna á hvorum stað, eða að koma á fót
læknamiðstöð í sambandi við spitalann. Eftir
að málið hafði verið rætt fram og aftur, virt-
ust flestir á því, að það eina, sem ungir lækn-
ar aðhylltust, væri læknamiðstöð í nánum
tengslum við spítalann, þannig að læknar gætu
þar hagnýtt alia þá rannsóknaaðstöðu, sem
spítalinn hefur upp á að bjóða. Einnig var
bent á Það á fundinum, að nauðsynlegt væri að
bæta aðstöðu praktiserandi lækna frá því, sem
verið hefur, og snúa baki við þeirri stefnu, sem
ríkt hefur, að starfsaðstaða sjúkrahúslækna
verði lagfærð en ekki praktiserandi lækna. Á
fundinum var einnig framkvæmdastjóri
Sjúkrasamlags Akureyrar. Talið var hyggilegt
að boða til Akureyrar á fund fulltrúa yngstu
lækna og vita, hvað þeim sýndist um þær hug-
myndir, sem fram hefðu komið á þessum
fundi. Sjúkrasamlag Akureyrar hefur skrifað
bréf, sem það hyggst senda læknum almennt.
I bréfi sjúkrasamlagsins er á það bent, að i
samningum milli L.I. og Tryggingastofnunar
ríkisins annars vegar standi sú málsgrein, að
L.I. skuldbindi sig til þess að sjá fyrir nægi-
legri læknisþjónustu á meðan samningarnir
eru í gildi. Nú munu samningar þessir útrunn-
ir og hafa ekki verið framlengdir formlega.
Ber því sennilega að líta á sem þetta ákvæði
sé ekki í gildi iengur, en fundarmenn voru
sammála um, að slík ákvæði verði ekki sett
inn í samninga, þar sem atriði þessi séu ekki
framkvæmanleg, sizt af öllu, þar sem starfs-
aðstaðan er ekki í samræmi við stefnu lækna-
félaganna. Auk þess sem ekki er hægt að
skuldbinda sig til að senda nægilegt læknalið
á neinn tiltekinn stað á tilteknum tíma.
Lœknisþjónusta dreifbýlisins
Mál þetta var m.a. til umræðu á fundi
stjórnar með landlækni þ. 20 marz sl. Minnti
stjórn L.I. þar á þá hugmynd, sem hún hefur
áður sett fram (bæði sem uppkast að Þings-
ályktunartillögu og síðar i bréfi til ráðherra),
sem hún telur einna vænlegasta sem tilraun
til bráðabirgðalausnar á því vandræðaástandi,
sem rikir í ýmsum héruðum, einkum á vetrum,
og landlæknir hefur raunar rætt um við for-
mann félagsins nokkrum sinnum undanfarið.
Telur stjórn L.I. vænlegast að stofna nokkrar
stöður aðstoðarlækna við ríkisspítalana með
skuldbindingu læknanna um n'okkra neyðar-
þjónustu við dreifbýlið jafnframt. Stjórn L.I.
ritaði landlækni bréf ásamt allítarlegri grein-
argerð um þetta mál, og lofaði landlæknir að
láta málið ganga áfram með skýringum hans
og umsögn. Einnig var læknaráði Landspítal-
ans sent afrit af bréfi þessu (fylgir það hér á
eftir ásamt fylgiskjölum).
Reykjavík 30. marz 1971.
Hr. landlæknir,
Sigurður Sigurðsson,
Arnarhvoli, R.
Með tilvísun til viðræðna yðar og stjórnar
L.I. þ. 20. marz sl., þar sem m.a. bar á góma
vandamál læknisþjónustu dreifbýlisins, vill
stjórn L.I. taka fram eftirfarandi:
Hugmynd sú, sem stjórnin varpaði fram á
fundinum, um nýjar stööur aöstoöariœkna við
Landspítalann, tengdar læknisþjónustu dreif-
býlisins, þannig, að Iæknarnir séu til taks til
bráðabirgða, ef neyöarástand skapast í læknis-
þjónustunni úti um land, er ekki ný af nálinni.
Að lokinni formannaráðstefnu L.I. þ. 18.
apríl 1970 sendi stjórn L.I. samdægurs tillögur
til þingsályktunar þessa efnis til heilbrigðis-