Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 78
132
LÆKNABLAÐIÐ
neytinu verið send þessi ályktun með greinar-
gerð.
Stjórn Læknafélags Islands fer þess á leit
við ráðuneytið, að komið verði á fastri lækna-
vakt í sambandi við sjúkraflug. Er hér átt við,
að í neyðartilfellum sé unnt að senda lækni
með sjúkraflugvél, þegar kall berst og þess er
talin þörf. Kæmi vel til greina að semja við
lækna svæfingadeilda Borgarspitalans og
Landspítalans um að taka að sér þessa þjón-
ustu.
Eru þess nokkur dæmi, að nauðsynlegt hafi
verið að fá lækni í sjúkraflug, hefur þá reynzt
tafsamt og oft óframkvæmanlegt að fá lækni
með þeim stutta fyrirvara, sem ávallt er í
bráðatilfellum. Er þess að vænta, að vaktþjón-
usta sem þessi bæti læknisþjónustu í dreifbýli
og auki nokkuð á öryggi þeirra, er þar búa.
Hugsanlegt er einnig, að i náinni framtíð verði
unnt að bæta enn frekar þessa þjónustu, þann-
ig að ávallt séu til taks sérlærðir skurðlæknar
og fæðingarlæknar, eins og er sums staðar er-
lendis.
Stjórn Læknafélags Islands væntir þess, að
ráðuneytið taki þessa málaleitan til athugun-
ar og óskar svars við fyrsta tækifæri.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Snorri P. Snorrason, Guðjón Magnússon,
formaður. ritari.
7. des. 1971
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Laugavegi 172,
Reykjavík.
Aðalfundur Læknafélags Islands 1971, hald-
inn 16.—18. sept. í Reykjavik, gerði eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur L.I. 1971 beinir þeirri áskorun
til menntamálaráðherra, að nú þegar verði
stofnað prófessorsembætti í almennum lækn-
ingum við iæknadeild Háskóla íslands.“
GreinargerÖ
Á aðalfundi Læknafélags Islands og á fjöl-
mennu læknaþingi var það samdóma álit, að
með stofnun kennarastóls í heilmilislækning-
um við Háskóla Islands, eins og ráð er fyrir
gert í nýrri reglugerð, mætti ráða bót á meg-
ingalla læknakennslunnar. Með tilkomu sér-
staks kennara í heimilislækningum mundi á-
hugi nemenda fyrir heimilislækningum aukast
og þekking nemenda á því sviði vaxa. Að námi
i læknadeild loknu mundu því fleiri ungir
læknar kjósa heimilislækningar sem ævistarf
og haga framhaldsnámi sínu i samræmi við
það. Það verður æ augljósara, að læknisþjón-
ustan verður ekki nema að takmörkuðu leyti
leyst innan veggja sjúkrahúsanna. Það er því
áriðandi frá þjóðhagslegu sjónarmiði að efla
heimilislækningar. Stefna verður að því, að
koma á fót sérmenntaðri heimilislæknEistétt,
en forsenda þess er, að kennsla i heimilislækn-
ingum verði hafin hið allra fyrsta við Háskóla
íslands. Stjórn L.I. leggur því áherzlu á, að
flýtt verði svo sem auðið er, að ákvæði reglu-
gerðar H.I. um prófessorat i heimilislækning-
um komi til framkvæmda.
Flestar þjóðir búa nú við alvarlegan heim-
ilislæknaskort. Það er álit margra þeirra, er
hafa látið þetta vandamál heilbrigðisþjónust-
unnar til sín taka, að háskólar verði að endur-
skipuleggja iæknanámið, þannig að lækna-
nemendur kynnist í ríkari mæli en verið hef-
ur vandamálum þeim, sem heimilislæknar og
héraðslæknar eiga við að glíma, og jafnframt
sé reynt að vekja áhuga nemendanna fyrir
heimilislæknisstarfinu.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Læknafélags Islands,
Snorri P. Snorrason, Guðjón Magnússon,
formaður. ritari.
Skýrsla námskeiðsnefndar
Á sl. ári sagði dr. Öskar Þórðarson af sér
sem formaður námskeiðsnefndar L.I. eftir
margra ára starf. I hans stað var Tómas Á.
Jónasson skipaður formaður, en aðrir nefndar-
menn eru Árni Björnsson og Tómas Helgason.
Nefndin mætti á sameiginlegum fundi
stjórna L.I. og L.R. sl. haust, þar sem ákveðið
var að tilsvarandi nefndir beggja félaganna
skyldu vinna saman að fræðslumálum, og hef-
ur verið unnið eftir þessum hugmyndum sl.
vetur, eins og unnt var. Af þeirri ástæðu leyfi
ég mér að láta fylgja hér með skýrslu til
stjórnar L.R. og vísa til hennar. Auk þess sem
þar kemur fram er ástæða til að taka fram
eftirfarandi:
1. Námskeið í iæknisfræðilegum rannsóknar-
aðferðum var haldið 8.-11. september 1971 í
samvinnu við Norræna húsið, og vísast til
frásagnar í Læknablaðinu, des. 1971. Þátt-
takendur iuku miklu lofsorði á þetta nám-
skeið og hafa verið lögð drög að þvi að
samskonar námskeið verði endurtekið haust-
ið 1973.
2. Læknum norðanlands var boðið að efni 2ja
fræðslufunda sl. vetrar um háþrýsting og
um lungnasjúkdóma yrði flutt á Akureyri
3. júni og 5 flytjendur sendir þangað á
kostnað námskeiðsnefndar.
3. Ráðgert er að halda 4 daga námskeið fyrir
héraðslækna og almenna iækna í september
n.k., og verða aðalefni þess fjögur: psychia-
tri, petiatri, gynecalogy og umræður um
tvo flokka lyfja. I framhaldi af námskeið-
inu er læknum boðið upp á dvöl á sérdeild
í Reýkjavik eftir eigin vali, og fylgjast þeir
þar með störfum sérfræðinga, en verði jafn-
framt séð fyrir skipulagðri kennslu.
4. Þá er í ráði að halda kvöldnámskeið um
hjartaafrit tvisvar í viku, 7 skipti. Gert er