Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
129
þ.e.a.s. aðstoðarlæknum, sem lokið hafa kandi-
datsári og hafa auk þess að baki tveggja til
þriggja ára starf á sjúkrahúsunum.
Rdðstefnur
3. okt. 1971 var haldinn umræðufundur í
Helsinki um menntun og framhaldsmenntun
heimilislækna. Sat Þóroddur Jónasson, héraðs-
læknir á Akureyri, þennan fund á vegum
Læknafélags Islands. Skýrsla hans um þessa
ferð birtist í fréttabréfi L.í. i janúar 1972.
Tómas Árni Jónasson mun sækja alþjóðlegt
þing um læknanám, World Medical Congress
on Education, sem fram fer i Kaupmannahöfn
i september n.k.
Boð hafa borizt á mjög margar ráðstefnur
og þing víðsvegar um heim, sem ekki hefur
verið fært að sækja.
Ávana- og fíknilyf
I janúar sl. birtist í öllum fjölmiðlum höfuð-
borgarinnar viðtal við ónafngreindan mann, er
setti fram harða ádeilu á lækna fvrir misferli
í ávísun ávana- og fiknilyfja. Hafði stjórn L.I.
reyndar áður orðið þess vís, að sögusagnir voru
á kreiki um misferli lækna í þessu efni. Skip-
aði stjórnin þá Guðmund Oddsson, Jóhannes
Bergsveinsson og Guðstein Þengilsson í nefnd
til að kanna Þetta mál, svo og til að gera til-
lögur til úrbóta, ef þörf væri á. Þessi nefnd
hefur haldið nokkra fundi, en hefur enn ekki
iokið störfum, aðallega vegna þess að mikill
dráttur varð á að nefndin fengi nauðsynlegar
upplýsingar frá heilbrigðisyfirvöldum. Nefnd-
in mun ljúka störfum mjög bráðlega og mun
væntanlega hægt að skýra frá niðurstöðum
hennar á aðalfundinum.
Vegna þeirrar ádeilu á læknastéttina, sem
áður var um getið um. og vegna þess að í þeirri
ádeilu fólst enginn rökstuðningur eða sönnun,
var ákveðið í samráði við stiórn L R. að óska
eftir því við saksóknara rikisins, að fram færi
opinber rannsókn á ummælum þess manns,
sem áður er nefndur, og stendur sú rannsókn
enn yfir.
Aðalfundur L.I. 1971 samþykkti ályktun, þar
sem skorað er á heilbrigðisvfii-völd að taka að
sér skrásetningu fleiri lyfia en nú er, sérstak-
lega hynnotica og sedativa. en iafnframt var
þvi bætt við. að haft yrði samráð við lækna-
sanitökin um allar slik°r brevtingar. Stjórn
L I. er kunnugt um að i lyfiaskrárnefnd hefur
mikið verið fiallað um brevtingu á reglugerð
um útgáfu lyfseðla og útgáfu lvfia. Hafa þar
verið ræddar ýmsar leiðir, er til greina koma
til að auka eftirlit með afgreiðslu hinna svo-
kölluðu ávana- og fíknilyfja. Að bvi er bezt er
vitað hefur lyfiaskrárnefnd bó ekki komizt að
neinni niðurstöðu í þessu máli.
Félag ungra lœkna
Þann 2. desember sl. var stofnað í Reykjavík
Félag ungra lækna. Félagið er samtök ungra
lækna, sem leitast við að halda reglulega fundi
og ræða og kynna sér ýmis mál, er þá varðar.
Félagsmenn geta allir orðið, sem lokið hafa
embættisprófi í læknisfræði og áhuga hafa á
málefnum félagsins. Félagsaðild er óformleg
og mega allir, sem hafa látið skrá sig sem fé-
laga, skoðast fullgildir meðlimir.
I febrúar sl. var haldið norrænt þing ungra
lækna, og var Læknafélagi Islands boðið að
senda fulltrúa á þetta þing, en vísaði því boði
til Félags ungra lækna, sem sendi tvo fulltrúa.
Skv. beiðni L.l. tóku þrír félagsmenn hins
nýja félags að sér að útbúa og senda út spurn-
ingalista til lækna, er dveljast við nám eða
störf erlendis, til að kanna skiptingu í sér-
greinar, hvort viðkomandi ætlaði sér að starfa
hér á landi að loknu námi o.fl.
Stjórn Félags ungra lækna skipa: Skúli
Johnsen, formaður, Þórir Dan Björnsson, rit-
ari og Þórarinn Arnórsson.
Formannaráðstefnan
Þann 13. maí 1972 var haldinn í Domus
Medica fundur stjórnar L.l. og svæðafélaga
L.I. Mættir voru fulltrúar frá öllum svæðafé-
lögunum og voru fundarmenn 16. Það helzta
sem rætt var á þessum fundi var skrifstofu-
rekstur félagsins, fræðslustarfsemi L.I. og
frumvarp að nýrri heilbrigðislöggjöf, sem Þór-
arinn Guðnason gerði grein fyrir.
Félag isl. kekna í Bretlandi
Þann 14. marz sl. var stofnað Félag ísl.
lækna í Bretlandi. Stofnendur voru: Ársæll
Jónsson, Bjarni Þjóðleifsson, Eyjólfur Haralds-
son, Gísli Auðunsson. Guðrún Agnarsdóttir,
Gunnar Sigurðsson, Helgi Þ. Valdimarsson,
Ingvar Kristjánsson, Matthías Kjeld, Snorri
Þorgeirsson, Unnur Pétursdóttir, Valgarður
Egilsson og Þórður Harðarson.
Megintilgangur félagsins er að stuðla að því
að félagsmenn verði virkari Islendingar með-
an þeir dveljast erlendis, og er ætlunin að efna
til tjáskipta við íslenzka kollega í öðrum
löndum og örva upplýsingastreymi milli ís-
lenzkra lækna á Bretlandseyjum og Islandi.
I stjórn hins nýja félags voru kjörnir: Gunn-
ar Sigurðsson, formaður, Helgi Þ. Valdimars-
son, ritari. Þórður Harðarson, gjaldkeri.
Hefur félagið farið þess á leit við stjórn L.I.
að það fái áheyrnarfulltrúa á aðalfund fé-
lagsins á Blönduósi, og hefur stjórnin sam-
þykkt það fyrir sitt leyti.
28. marz 1972
Fjármálaráðuneytið,
Arnarhvoli
Reykjavík.
Erindi: Embættislaun liéraðslækna i þeim
lœknishéruðum á Islandi, sem fjallað
er um í 6. gr. lœknaskipunarlaga nr.
43 frá 1965.
Eftir starfsmat var öllum héraðslæknum
landsins skipað í 26. launaflokk í samningum
B.S.R.B. og fiármálaráðuneytisins árið 1970. I
2. mgr. sbr. 3. mgr. 20. gr. samningsins segir,
að ráðuneytinu sé heimilt að lækka laun