Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 32
102
LÆKNABLAÐIÐ
KAFLAR ÚR ÁRSSKÝRSLU L.l. STARFS-
ÁRIÐ 1970-1971
Inngwngur
Skýrsla þessi, sem flutt var af Arinbirni Kol-
beinssyni formanni L.l. á aðalfundi L.I. 16.
september 1971 nær yfir tímabilið 18. júní 1970
til 15. sept. 1971.
Gjaldskyldir félagar i L.I. 1. janúar 1971 voru
321, þar af 252 í Læknafélagi Reykjavíkur. 15.
júni 1971 voru íslenzkir læknakandidatar sam-
tals 446, þar af með lækningaleyfi 360, búsettir
á Islandi 369, búsettir erlendis 89. Sérfræðing-
ar voru 212, og skiptust þeir niður á 25 sér-
greinar. Læknakandidatar án lækningaleyfis
voru samtals 86.
Stjórn og stjórnarfundir
Á aðalfundi L.I. i júní 1970 voru þessir menn
kosnir í stjórn: Guðmundur Jóhannesson end-
urkjörinn gjaldkeri til 2ja ára, Baldur Fr. Sig-
fússon ritari til 2ja ára. I varastjórn voru
kosnir til tveggja ára Sigursteinn Guðmunds-
son og Guðsteinn Þengilsson. Stjórnin var því
á starfsárinu þannig skipuð: Arinbjörn Kol-
beinsson, formaður, Guðmundur Jóhannesson,
gjaldkeri, Baldur Fr. Sigfússon, ritari. I vara-
stjórn: Brynleifur Steingrimsson, Sigursteinn
Guðmundsson, Guðsteinn Þengilsson.
Stjórnin hefur haldið 41 fund á Starfstíma-
bilinu, þar af 4 fundi sameiginlega með stjórn
L.R., en þar hefur verið fjallað um þau mál,
sem sérstaklega varða bæði félögin, svo sem
rekstur skrifstofu, viðbyggingu við Domus
Medica, samninga og tillögur um nýja heil-
brigðislöggjöf. Þá hefur stjórnin haldið tvo
fundi með stjórn og bráðabirgðastjórn hins
nýja Embættislæknafélags, sem stofnað var á
árinu.
Starfsemi skrifstofu
HtJSNÆÐIÐ
Engar breytingar urðu á húsnæði skrifstof-
unnar á árinu, en sökum vaxandi starfsemi
hennar og aukinna þarfa fyrir geymslurými,
hafa þrengsli gert meira vart við sig en áður.
ÁHÖLD
Keypt hefur verið ný Ijósritunarvél af mjög
fullkominni gerð fyrir skrifstofuna, þannig að
hægt er að taka ljósrit úr tímaritum og bókum
á fljótari og ódýrari hátt en hægt var með vél-
inni, sem skrifstofan átti fyrir, en hún hefur
verið seld. Þá hefur verið ákveðið að kaupa
nýja orðabelgi fyrir skrifstofuna.
STARFSLIÐ
Fast starfslið skrifstofunnar hafa verið þrjár
stúlkur, þar til í mai, að ráðin var auk þess
stúlka hálfan daginn. Lára M. Ragnarsdóttir
er skrifstofustjóri, María Kristleifsdóttir ann-
ast bókhald og Birna Loftsdóttir almenna af-
greiðslu og auk þess nokkra vélritun. 1 maí var
Elín Banine ráðin hálfan daginn til vélritunar-
starfa. Bókhaldslega umsjón með skrifstofunni
og endurskoðun á reikningum Læknafélags Is-
lands og einnig þeirra sjóða, sem eru í vörzlu
skrifstofunnar, hefur Guðjón Eyjólfsson, lögg.
endurskoðandi, annazt. Rætt hefur verið um
að ráða framkvæmdastjóra að skrifstofunni, og
hafði Læknafélag Reykjavíkur aflað sér fjár-
hagslegrar heimildar til þess að taka þátt í
launagreiðslum fyrir framkvæmdastjóra, en að
svo komnu máli hafa engar ákvarðanir verið
teknar, einkum vegna þess, að húsnæði mundi
ekki vera fyrir hendi, til þess að hægt væri
virkilega að nýta starfskrafta sérmenntaðs
framkvæmdastjóra, en yfirleitt hafa þær skoð-
anir komið fram. að æskilegt sé, að hann hafi
háskólapróf i viðskiptafræðum, geti annazt öll
erlend bréfaviðskipti, séð um bókhald, haft
yfirsýn yfir alla samninga og verið samninga-
nefndum til aðstoðar, hjálpað til að samræma
samninga og þannig að nokkru leyti sparað
lögfræðilega aðstoð. Þá er einnig talið æski-
legt, að framkvæmdastjóri annist eftirlit með
því, að launagreiðslur til lækna færu skv.
samningum, en skv. erlendum rannsóknum
hefur komið í Ijós, að stéttarfélög, sem ekki
annast slikt eftirlit, tapa u.þ.b. 2% af launum
félagsmanna sinna. Hvernig þessu er háttað
hér á landi, er ekki vitað, þó er kunnugt um
mistök í launagreiðslum.
VERKEFNI SKRIFSTOFUNNAR
Starfsþættir skrifstofunnar eru í aðaldrátt-
um þeir sömu, en viðfangsefnum fjölgað til
muna, t.d. hefur vélritun aukizt um 30%.
Minni háttar fjölritun hefur verið framkvæmd
á skrifstofunni, en fjölritun fréttabréfa, sem
gerð er með sérstakri ljósprentunartækni, hef-
ur verið fengin hjá Fjölritunarstofu Daníels
Halldórssonar. Innkomin velta s.l. árs var 22
millj. króna. Um sundurliðun verkefna visast
til ársskýrslu 1969—1970.
Lögfræðileg aöstoö
Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., hefur
verið lögfræðilegur ráðunautur félagsins eins
og undanfarin ár. Hefur stjórn félagsins leitað
álits hans í öllum þeim atriðum, sem talið er,
að séu lögfræðilegs eðlis, en einkum hefur
þjónusta hans verið í sambandi við Húsavíkur-
málið svo og breytingar á kjörum héraðslækna.