Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 73
LÆKNABLAÐIÐ
127
víða úti á landsbyggðinni, er mjög illa gekk að
manna viss héruð. Enda þótt sjá hefði mátt
fyrir þá þróun, var ekkert aðhafst af hálfu
þess opinbera fyrr en í septemberlok, að heil-
brigðisráðherra boðaði til fundar með stjórn-
um læknafélaganna, en þann fund sátu land-
læknir og ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneyt-
isins. Á fundi þessum fór heilbrigðismálaráð-
herra þess á leit við stjórnir læknafélaganna,
að þær aðstoðuðu heilbrigðisstjórnina við að
finna iausn á þessu vandamáli.
Á þessum fundi kom fram, að tilfinnanlegur
skortur hefur verið á kandidötum, og lætur
nærri að læknanemar hafi gegnt % af kandi-
datsstöðum á sjúkrahúsum í Reykjavík frá
sumrinu 1971. Skrifaði heilbrigðismálaráðherra
síðan öllum starfandi læknum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, og fór þess á leit að þeir gegndu
störfum í héraði 1—2 mánuði á ári, ef það
mætti verða til að bjarga því neyðarástandi,
sem skapazt hefði. Læknafélag Reykjavíkur
hélt síðan almennan félagsfund um þessa mála-
leitan heilbrigðismálaráðherra 13. okt. Á þess-
um fundi kom fram eindreginn vilji lækna til
að hjálpa til við lausn þessa vanda. Hafa síðan
fjölmargir sjúkrahúslæknár, svo og nokkrir
heimilislæknar gegnt störfum í héraði nokkr-
ar vikur i senn.
Heilbrigöismálafrumvarpiö
Aðalfundur L.I. 1971 fjallaði allítarlega um
tillögur og greinargerð um heilbrigðismál, sem
voru frumdrög að frumvarpi. Hafði stjórn L.I.
skipað nefnd til að undirbúa þetta mál fyrir
aðalfundinn. Var álit þessarar nefndar sam-
þykkt á aðalfundi ásamt greinargerð, og vísast
í því sambandi til fréttabréfs L.I. í janúar 1972.
Þessi ályktun aðalfundarins var síðan send
heilbrigðismálaráðuneytinu, og hefur stjórn
L.I. síðan fylgt eftir breytingartillögum, er
gerðar voru, og í því sambandi átt fundi með
landlækni, borgarlækni og Páli Sigurðssyni,
ráðuneytisstjóra. Hafa breytingartillögurnar
verið áréttaðar bréflega.
Að lokinni endurskoðun á upphaflegu tillög-
unum, voru þær síðan lagðar fyrir Alþingi í
formi frumvarps til laga, þó aðeins til kynn-
ingar á því Þingi, sem nú er nýlokið. Verður
ekki annað séð, en að læknasamtökin geti ver-
ið sæmilega ánægð með þær undirtektir, er
breytingartillögurnar frá L.I. fengu við endur-
skoðun á frumvarpinu, því að allar helztu
breytingartillögur aðalfundarins voru teknar
til greina.
Þess ber þó að geta, að aðalfundurinn 1971
fjallaði ekki um skiptingu landsins í héruð,
staðsetningu heilsugæzlustöðva né læknissetra.
Það atriði var hins vegar rætt á formannaráð-
stefnunni, sem fram fór 13. maí sl. Var niður-
staða umræðna að nauðsynlegt væri að um
þetta mál yrði fjallað í svæðafélögunum, en
þau sendu siðan álit sitt til stjórnar L.í. Ljóst
er að margt er enn í hinu nýja frumvarpi, sem
þarfnast athugunar af hálfu læknasamtak-
anna. Hefur í því sambandi sérstaklega verið
bent á að hlutur læknissetra (einmennings-
héraða), er mjög rýr og nauðsynlegt að á-
kvarða betur í lögum, heldur en gert er ráð
fyrir í hinu nýja frumvarpi, um búnað og
starfslið á þessum stöðum.
Nordisk Medicin
Stjórn L.I. ákvað að taka boði stjórna lækna-
samtaka á hinum Norðurlöndunum og gerast
þátttakandi í útgáfu ritsins Nordisk Medicin,
en fyrirhugaðar eru miklar breytingar á út-
gáfu þessa rits. Er breytingin reyndar þegar
orðin, og kom fyrsta hefti N.M. i hinu nýja
formi út í janúar sl. Mun þetta tímarit fyrst
og fremst fjalla um félagsleg málefni, mennt-
un lækna, bæði grunnmenntun, sérfræðimennt-
un og viðhaldsmenntun, einnig um vísinda-
starfsemi, skipan heilbrigðismála o.fl. Fór
stjórn L.I. þess á leit við Baldur Fr. Sigfússon,
fyrrverandi ritara L.I., sem nú dvelur við
framhaldsnám í Svíþjóð, að hann tæki að sér
ritstjórn af okkar hálfu. Féllst hann fúslega á
það. Með aðild að útgáfu N.M. hefur L.I. tek-
ið á sig fjárhagslegar skuldbindingar, sem
munu nema um 100.000 krónum á ári, en ætl-
unin er að islenzkir læknar fái ritið sent án
aukagreiðslu.
StaÖall fyrir einmenningshéruö
Stjórn L.I. hefur beitt sér fyrir því, að sett-
ur verði staðall um lækningatæki og búnað í
einmenningshéruðum. Skipaði stjórnin þá Örn
Bjarnason og Guðjón Magnússon til að vinna
að þessu máli. Áttu þeir viðræður við Pál Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóra, og óskaði hann eftir
að L.I. gerði drög að slíkum staðli, sem ráðu-
neytið gæti síðan fengið til umsagnar. Varð að
ráði, að skipuð var 5 manna nefnd til að vinna
að þessu máli áfram, og áttu í henni sæti: Ól-
afur Ólafsson, formaður, Örn Bjarnason, Guð-
jón Magnússon, Kjartan Árnason og Páll Þórð-
arson.
Er nú lokið við að gera uppkast að slíkum
staðli, og hefur það verið sent héraðslæknum,
sem nú sitja í einmenningshéruðum og fleiri
aðilum til umsagnar. Er síðan ráðgert að birta
þennan staðal í Læknablaðinu.
I sambandi við þetta verkefni, var kannað,
hvort unnt yrði að hafa nóg af neyðarbúnaði,
sem ætlunin er að almannavarnanefndir komi
sér upp úti á landi. Voru í því sambandi haldn-
ir fundir með þeim Árna Björnssyni og Valtý
Bjarnasyni, sem starfað hafa að þessum mál-
um fyrir almannavarnaráð, og Ólafi Ingi-
björnssyni og Guðmundi Steingrímssyni, lyfja-
fræðingi, sem unnið hafa við að útbúa slíka
pakka fyrir Reykjavíkurborg. Einnig sátu
þessa fundi þeir Erling Edwald og Jón Edwald
frá Lyfjaverzlun ríkisins. Kom fram, að ekki
yrði hægt að byggja á þessum neyðarpökkum,
þegar settur yrði staðall um ársþörf lækninga-
tækja og búnaðar í einmenningshéruðum.
Spjaldskrá
Á sl. hausti hugðist stjórn L.I. beita sér fyrir
auknum samskiptum við íslenzka lækna, er