Læknablaðið - 01.12.1975, Qupperneq 22
98
LÆKNABLAÐIÐ
glaucom, sem ekki er því skýrara,
hvað þá heldur að þeir sjeu því vaxn-
ir að taka það undir skynsama með-
ferð. Ekki man jeg heldur til þess að
jeg hafi sjeð nokkra grein um sjúkd.
þennan í blöðunum og hefði þó mátt
vænta hennar, einkum frá Birni Ólafs-
syni augnlækni — þetta allt er svartur
blettur. —
Einkum væri þetta ástand algjör-
lega ófyrirgefanlegt, ef svo væri sem
flestar bækur segja, að lækning sjúkd.
sje auðveld, ef rjett er með hann
farið, þá bæru læknarnir fullkomna
ábyrgð á blindu landsmanna. En eptir
minni reynslu er þetta nokkuð á ann-
an veg því ísl. glaucom er, eptir henni
að dæma, vanþakklátur kvilli, sem opt
blindar menn hvað svo sem læknirinn
reynir. Eigi að síður er það skylda vor
að þekkja sjúkd. og vita hvað við skal
gjöra“.
Er Guðmundur Hannesson flyzt tiT
Reykjavíkur í ársbyrjun 1907, þá fertugur
að aldri ag gerist þar héraðslæknir og
kennari við læknaskólann, leggur hann
augnlækningar á hilluna. Sjúklinga sína
leggur hann inn á spítala St. Jósefssystra
að Landakoti og þar gerir hann ásamt nöfn-
um sínum allmargar stóraðgerðir um skeið,
en ekki kemur fram í sjúkradagbókum
Landakots að hann hafi gert neinar augn-
aðgerðir þar. Guðmundur Hannesson legg-
ur fyrsta sjúkling sinn á Landakotsspítala
31. maí 1907 og stundar sjúklinga sína þar
unz hann hættir að stunda lækningar ár-
ið 1917.10
Ég hygg að fáir viti um starf Guðmund-
ar Hannessonar sem augnlæknis. Augn-
lækningar hans hafa horfið í skugga hér-
aðslæknisins, kennarans, vísindamannsins,
Við heimili Guðmundar Hannessonar á
Akureyri um aldamótin. — Karólína fs-
leifsdóttir, kona G. H., Guðmundur Hann-
esson, Sigurður Hjörleifsson, læknir Guð-
rún Jónsdóttir, fósturdóttir G. H. og K. í.,
Anna Breiðfjörð, kona Valgarðs O. Breið-
fjörð, kaupmanns í Reykjavík, og Guðrún
þjónustustúlka.
HEIMILDARRIT
1. Blöndal, L. H. og Jónsson, V. Læknar á Is-
landi, 2. útg. Reykjavík 1970.
2. Ársskýrslur héraðslækna til landlæknis.
Þjsk.
3. Jónsson, B. ísafold, XXXVI. árg. Reykjavík
1909.
4. Hjörleifsson, S. Norðurland. Akureyri 1909.
5. Jónsson, V. Lækningar og saga, Reykjavík
1969.
6. Sjúkradagbækur Björns Ólafssonar. Hand-
ritasafn.
7. Hannesson, G. Algengustu augnsjúkdómar.
LæknablaÖ, III. árg. Akureyri 1904.
8. Thinemann, F. A. L. Reise in Norden
Europas vorzúglich in Island in den Jahren
1820 bis 1821. Leipzig 1824 og 1827.
9. Björnsson, G. Iceland through the opht-
halmoscop at the turn of the century.
Nordisk medicinhistorisk Arsbog 1973.
10. Sjúkradagbækur Landakotsspítala.
11. Dungal, N.: Guðmundur Hannesson pró-
fessor. Andvari. Tímarit hins íslenzka þjóð-
vinafélags. Reykjavík 1958.