Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1975, Síða 35

Læknablaðið - 01.12.1975, Síða 35
LÆKNABLAÐIÐ 105 barna ísl. lækna: I stjórn eru: Bergsveinn Ól- afsson, Kjartan Jóhannsson og Halldór Hansen. Samninganefnd Samninganefnd L.I. hélt fundi með samn- inganefnd Tryggingastofnunar ríkisins og gengið var frá samningum um kjör fyrir al- mennan praksis utan Reykjavíkursvæðisins skv. samningi undirrituðum 30. júlí 1970. Hins vegar hafa ekki verið gerðir samningar fyrir sérfræðinga, sem vinna utan Reykjavíkur, og er það mál, sem taka þarf upp hið fyrsta. Eðlilegt virðist, að þessir samningar verði al- gerlega sniðnir eftir samningum Læknafélags Reykjavíkur. Þá hafði samninganefnd fund með fulltrúum fjármálaráðuneytisins varðandi launaskipan héraðslækna, en þar hefur L.I. ekki samnings- aðild aðeins ráðgefandi aðild, og eru ákvarð- anir teknar af stjórnvöldum. Nánari greinar- gerð um það mál vísast til sérstaks kafla i skýrslunni, sem fjallar um niðurröðun héraðs- lækna í flokka skv. hinum nýju samningum B.S.R.B. Samningar fyrir skólalæJcna Stjórn L.I. hélt fund með samninganefnd L.R. fyrir skólalækna, en hana skipuðu Snorri Jónsson og Geir Þorsteinsson, en til vara Einar Lövdahl og Magnús Þorsteinsson. Formaður L.R. hafði tjáð formanni L.I., að samningar við skólalækna i Reykjavík væru komnir í strand vegna afskipta ríkisins, en það endur- greiðir kostnað af skólalækningum um allt land. Taldi stjórn L.L rétt að skipa nefnd til samninga og skyldu vera í henni sömu menn og annazt höfðu málið undanfarið á vegum L.R. Var samþykkt að skipa Einar Lövdahl formann og með honum Snorra Jónsson og Brynleif Steingrímsson, en hinn síðarnefndi er formaður kjaranefndar L.I. Varamenn eru Geir Þorsteinsson og Magnús Þorsteinsson. Var til þess ætlazt, að Einar Lövdahl og Snorri Jónsson mundu aðailega annast samninga þessa, en hafa samráð við Brynleif, áður en gengið yrði endanlega frá þeim, þannig að tryggt yrði, að sjónarmiða og hagsmuna hér- aðslækna yrði gætt í sambandi við samninga þessa. OrSanefnd I nefndinni átti sæti Snorri P. Snorrason, Guðsteinn Þengilsson, Helgi Ingvarsson, Hall- dór Baldursson og Karl Strand. Mun nefndin litið hafa starfað á árinu. FræSslunefnd L.l. og lœknanámskeiö Óskar Þórðarson, sem verið hefur formaður fræðslunefndar frá þvi, að hún var skipuð, óskaði eftir að hverfa frá störfum, og var i hans stað Tómas Árni Jónasson skipaður for- maður nefndarinnar. Boðað var til læknanámskeiðs í sept. 1970, en þátttaka lækna var þar svo lítil, að nám- skeiðinu var aflýst. Fræðslufund þann, sem haldinn var í febrúar og áður er getið um, um þátt lækna í stjórnun heilbrigðisstofnana, má líta á sem fræðslustarfsemi, en auk þess hafa L.I. og L.R. með aðstoð Norræna hússins kom- ið á fót sérstöku námskeiði i rannsóknum á sviði læknisfræði, og er þetta námskeið sniðið algjörlega eftir þeim námskeiðum, sem haldin eru í Danmörku. Voru fengnir danskir fyrirlesarar á námskeiðið, en þeir voru: Björn Andersen, Olaf Bonnevie, Povl Riis og Henrik R. Wulff. Námskeiðið var haldið í Reykjavik dagana 7.—11. sept. Þátttakendur voru 25, þar af 2 læknasitúdentar. Námskeiðið var styrkt af opinberum aðilum. Námskeiðsnefnd skipa auk Tómasar Á. Jóns- sonar þeir Árni Björnsson og Tómas Helgason. LœknablaÖiO I upphafi árs barst bréf frá Ólafi Jenssyni, þar sem hann biðst lausnar sem ritstjóri Læknablaðsins, en hann hefur gegnt Því starfi í 5 ár. Stjórn L.I. og L.R. leituðu fyrir sér um mann í starf þetta, en ekki tókst að fá neinn lækni til að taka það að sér að svo stöddu, og féllst Ólafur Jensson á að starfa við blaðið til ársloka 1971. Stjórn L.I. hélt sameiginlega fundi með stjórn L.R. um Læknablaðið og breytingar á fyrirkomulagi þess og útgáfu. Hagnaður hefur verið allmikill af rekstri Læknablaðsins eftir að blaðið hefur verið fjár- hagslega endurskipulagt og auglýsingaverð sett í samræmi við nútíma verðlag. Efni er venju- lega miklu meira fyrir hendi en hægt er að koma í blaðið, og er Því eðlilegt að auka út- gáfustarfsemina. Læknaféiag Islands hefur í samvinnu við Læknafélag Reykjavíkur gert drög að áætlun um breytingu á Læknablaðinu, þannig að blaðið sinni betur en verið hefur hinu tviþætta hlutverki, þ. e. félagsmálakynn- ing og fræðileg þjónusta við félagsmenn. Var um það rætt á fundum stjórna L.I. og L.R., að ritstjórn blaðsins yrði tvískipt, þannig að þar yrðu tveir ritstjórar, annar, sem aðallega fjallaði um hin faglegu mál, og hinn um fé- lagsleg efni í blaðinu. Nordisk Medicin Tekin var ákvörðun um, að L.I. skyldi ger- ast aðili að útgáfu tímaritsins Nordisk Medlcin i stað læknafélagsins Eir, sem verið hefur slík- ur aðili af Islands hálfu frá árinu 1957. Hafði málið áður verið rætt óformlega við dr. Óskar Þórðarson, sem verið hefur ritstjóri frá því að Eir gerðist aðili að útgáfu ritsins. Á árinu 1956 skrifaði próf. Meulengracht dr. Sigurði Sigurðssyni, þáverandi berkayfirlækni, bréf þess efnis, að ritstjórn tímaritsins væri áhugamál, ef islenzk læknasamtök yrðu aðili að útgáfu þess. Nordisk Medicin er samsteypa úr ýmsum læknaritum, sem áður höfðu verið gefin út á Norðurlöndum, og er sjálfseignar- stofnun. Valtýr Albertsson, scm var við málið riðinn, hafði rætt það við stjórn L.R., sem taldi fráleitt, að Læknablaðið hætti að koma út á íslenzku sem sjálfstætt rit. Dr. Sigurður, Valtýr og Óskar Þórðarson ræddu málið sín á milli og kom saman um, að heppilegast yrði,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.