Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 36

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 36
106 LÆKNABLAÐIÐ að læknafélagið Eir gerðist aðili að útgáfu ritsins. Hafði Valtýr framsögu í málinu á fundi í Eir þ. 6. des. 1956, og voru þeir þre- menningarnir eftir nokkrar umræður skipaðir í nefnd, sem skyldi undirbúa málið, og skilaði hún áliti á fundi þ. 28. febr. 1957. Skýrði Val- týr frá þvi, að af hálfu L.R. og L.I. væru engir meinbugir á aðild Eirar að útgáfu ritsins, sem síðan var samþykkt með öllum greiddum at- kvæðum, og var dr. Oskar Þórðarson kosinn ritstjóri. Á fundi í Nordisk Medicin þ. 1. júní 1957 var aðild Eirar samþykkt og jafnframt, að Eir skyldi vera undanþegin öllum fjárhagslegum skuldbindingum við útgáfu ritsins. Skyldi full- trúi Eirar hafa rétt til fundarsetu, en án at- kvæðisréttar. Hefur dr. Öskar setið nokkra aðalfundi og fyigzt með gangi mála. Alls hafa til þessa birzt sjö ritgerðir í Nordisk Medicin eftir íslenzka höfunda, þar af þrjár frá lyf- lækningadeild Borgarspítalans. Nordisk Medicin hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu, þar eð önnur læknarit hafa vaxið því yfir höfuð, og virðist ekki lengur grundvöllur fyrir útgáfu þess í sama formi og verið hefur. Var því samþykkt á ritstjórnar- fundi þ. 6. marz 1971 að breyta ritinu þannig, að framvegis birti það ritgerðir um lækna- kennslu, spítaiamál, rannsóknastarfsemi og félagsmál lækna. 1 skýrslu frá fundinum er gert ráð fyrir, að íslenzkt læknafélag verði áfram aðili að hinu endurskipulagða riti, og var aðild Eirar því tekin til endurskoðunar á fundi í félaginu þ. 31. marz 1971. Eftir nokkrar unjiræður var stjórn félagsins falið að ganga frá þvi við stjórn L.I., hvort Eir eða L.I. yrði aðili p.ð útgáfu Nordisk Medicin. Stjórn L.I. lítur svo á, að eðlilegt sé, að L.I. gerist aðili að útgáfu ritsins, einkum m.t.t. fyrirhugaðs efnis- vals og einnig þess, hvaða menn hafa valizt þegar í stjórn þess. Gera verður ráð fyrir, a.m. k. í bili, að aðild félagsins verði sama eðlis og Eirar áður, en telur rétt að afla stjórn L.I. heimildar á aðalfundi til fjárhagslegra skuld- bindinga, ef til þeirra skyldi verða að koma og félagið telur slíka aðild æskilega. Ritað var bréf til ritstjórnar Nordisk Medi- cin, þar sem skýrt er frá ofangreindri niður- stöðu, jafnframt því að stungið er upp á próf. Tómasi Helgasyni sem ritstjóra í stað dr. Ósk- ars, sem óskar að láta af störfum. Fundur um lieilbrigöismál á IsafirÖi Bæjarstjórn ísafjarðar ritaði stjórn Lækna- félags Islands bréf dags. 6. okt. 1970 og bauð stjórn L.I. að senda 4 fulltrúa á fund, sem bæjarstjórn ætlaði að efna til 1. nóv. 1970. Boð þetta var Þegið, og sóttu fundinn af hálfu L.I. Arinbjörn Kolbeinsson, Guðmundur Jó- hannesson, Örn Bjarnason og Baldur Fr. Sig- fússon. Örn Bjarnason flutti á fundinum fram- söguerindi um læknamiðstöðvar, en aðrir full- trúar L.I. gerðu grein fyrir stefnu félagsins varðandi læknamiðstöðvamálin. Fundinn sóttu bæjarstjórn Isafjarðar, sveitastjórnir í ná- grannahéruðunum og flestir alþingismenn hér- aðsins. Mikill áhugi rikti meðal fundarmanna um stofnun læknamiðstöðvar á Isafirði fyrir Isafjörð og nágrannahéruð, svo og endurbygg- ingu sjúkrahússins. Á fundinum var rætt urn það, hvort lagfæra ætti núverandi sjúkrahús og byggja við það læknamiðstöð eða reisa nýjar byggingar fyrir þessa starfsemi. Var það álit fulltrúa L.I., að fyrst af öllu ætti að reisa læknamiðstöð og síðan ætti að byggja nýtt sjúkrahús, en gamla sjúkrahúsið ætti að taka til annarra afnota og leggja það niður sem slíkt. Seint i nóvember bárust L.I. tillögur og teikningar um nýbyggingu i sambandi við gamla sjúkrahúsið, og ritaði stjórn L.I. eftir- farandi bréf með athugasemdum við þessa tillögu: Reykjavík 12. des. 1970. Bæjarstjóri ísafjarðar hr. Jón Guðlaugur Magnússon Isafirði. Þökkum bréf yðar frá 6. nóv. ásamt fundar- gerð frá heilbrigðismálafundi höldnum á Isa- firði 1. nóv. og teikningum, sem lýsa fyrirhug- uðum byggingaframkvæmdum fyrir heilbrigð- isþjónustu á ísafirði. Þar sem við treystum okkur eigi til að gefa endanlegt svar við fyrir- spurn yðar fyrir 15. des. 1970 viljum við taka eftirfarandi fram: 1) Við teljum, að gamla sjúkrahúsið á ísafirði sé Mgjörlega úrelt og henti ekki sem sjúkrahús í nútíð né framtíð og mjög vafasamt sé, að unnt verði að breyta því þannig, að þar muni hægt að framkvæma þá heilbrigðisþjónustu, sem krafizt verður á fjórð- ungssjúkrahúsi á Isafirði. 2) Þá teljum við fjarlægðir viðbótarbygginga frá gamla sjúkra- húsinu, sé það hugsað sem legudeild eingöngu, of miklar og muni þær torvelda starfsemi, bæði bráðaþjónustu og vegna legusjúklinga. Benda má á nokkur atriði, sem torvelda mundu reksturinn og gera hann mun dýrari vegna fjarlægða, sem yrðu á milli rannsókna- og bráðaþjónustu nýbyggingar annars vegar og iegudeildar hins vegar. a) Sogkerfi og súr- efniskerfi þarf að vera á báðum stöðum. b) Tvöfalda samstæðu þyrfti af monitorum, hjartaritum og jafnvel öðrum dýrum læknis- fræðilegum tækjum, ef vel ætti að vera, þar sem að öðrum kosti mætti komast af með eitt tæki í mörgum tilvikum. Flutningur þessara tækja er tímafrekur, getur verið óhentugur fyrir þjónustuna, og hættara er við hnjaski. c) Nýting starfsliðs og vaktþjónustu mundi líka torveldast mikið með þeim fjarlægðum, sem þarna er um að ræða og við teljum óeðli- lega mikla fyrir svona litla starfsemi. I raun- inni eru stórir spítalar samsettir af mörgum einingum, en heppilegast er að reisa þetta litla sjúkrahús ásamt læknamiðstöð, sem eina heildareiningu T.d. er líklegt, að tvöfEilda vaktaþjónustu þyrfti fyrir spítala með þessu fyrirkomulagi. Meira starfslið þyrfti vegna mikillar vinnu við flútninga á sjúklingum lang- ar leiðir, þvotti, mat o.s.frv., auk þess sem öll slík vinna verður með þessu móti óeðlilega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.