Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1975, Side 43

Læknablaðið - 01.12.1975, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ 109 reikna með að aðstaða til lækninga sé sóma- samleg og miðuð við það svið, sem læknirinn á að þjóna. Ferðir læknis og fjölskyldu, svo og húsnæði og annan kostnað ætti að greiða úr ríkissjóði. Til að laða unga lækna að stöðum þessum og vega upp á móti þeirri áhættu og röskun á starfsháttum og heimilislífi, sem þær feia í sér, yrði trúlega að greiða hærri laun en svar- ar fastakaupi skv. samningum stjórnarnefndar ríkisspítalanna og L.R., og þyrftu því að koma til sérsamningar við L.R. vegna þessa. Auk þess væri æskilegt, að læknar, sem gegnt hefðu stöðum þessum, nytu í einhverju góðs af því á annan hátt, svo sem í sambandi við veitingar á öðrum námsstöðum. Að lokum vill stjórn L.I. taka fram, að til- laga þessi er fyrst og fremst hugsuð sem til- tölulega skjótvirk tilraun til að ráða til bráða- birgða bót á vandkvæðum læknisþjónustu dreifbýlisins, þ.e.a.s. á því neyðarástandi, sem skapast, þegar eigi fást læknar eftir venju- legum leiðum til starfa á þeim stöðum úti á landi og þegar þær aðstæður ríkja, sem krefj- ast tvímælalaust dvalar læknis á staðnum að dómi landlæknis. Grundvöllur að varanlegri úrbótum hefur að nokkru leyti verið Iagður með setningu laga um læknamiðstöðvar, og verður hann væntanlega treystur að mun með störfum heilbrigðismálanefndar, er nú vinnur m.a. að því máli á vegum Alþingis og byggir þar að verulegu leyti á niðurstöðum og grein- argerð læknamiðstöðvarnefndar L.I. frá 17. júní 1970. Ekki er þó unnt að vænta verulegs almenns árangurs af því starfi fyrr en eftir nokkur ár, auk þess sem það leysir trúlega ekki allan vanda, enda ekki ráð fyrir því gert í tillögum læknamiðstöðvarnefndar L.I. Ofangreindar aðstoðarlæknisstöður yrðu þvi eftir sem áður mikilvægur öryggishlekkur í læknisþjónustu dreifbýlisins, tengdu hana traustari böndum við stærstu heilbrigðisstofn- anir landsins, auk þess sem kostir þeirra eru augljósir í sambandi við eflingu læknamennt- unar og rannsóknastarfa, ef vel tekst til. Þá var erindi þetta sent til umsagnar Félags læknanema (bréf. dags. 8.9. ’71) og því svarað með bréfi Félags læknanema dags. 10.9. ’71, og fara þau bréf hér á eftir. (Svarbréf milli síðna í fyrirspurnarbréfi). Félag læknanema, hr. formaður, Guðmundur Þorgeirsson, Álfheimum 26, R. Svo sem Félagi læknanema er kunnugt, hef- ur Læknafélag Islands gert tillögur um að stofnaðar yrðu stöður við ríkisspítalana og jafnvel aðrar heilbrigðisstofnanir, einkum í þeim tilgangi að leysa viss bráð vandkvæði, sem vitað er um að eiga sér stað hvað varðar læknisþjónustu dreifbýlisins. Þau vandkvæði, sem einkum eru höfð í huga að leysa megi með þessum hætti, eru eftirfarandi: a) Að læknar geti fremur en nú komist í sín árlegu eðlilegu fri, hvort sem þeir starfa einir í héraði eða í læknamiðstöð. b) Að læknar geti átt það öruggt að fá veikindafri fyrirvaralaust, hvenær sem þeir þurfa á að halda, án þess að skilja starf sitt eftir í óreiðu, þ.e. að fólk á starfssvæði þeirra verði að mestu læknis- þjónustulaust. c) Að læknar geti fengið frí til að sækja læknafundi. d) Að læknar geti fengið frí og staðgöngu- menn að kostnaðarlausu, þegar þeir sækja skipulagsbundið viðhaldsnám. e) Þá er einnig gert ráð fyrir, að stöður þessar geti að nokkru leyti komið að gagni við heilbrigðisstofnanir, þannig að mannaflaskortur hindri ekki, að læknar geti tekið sér eðlileg frí til að sækja skipulagsbundna viðhaldsmenntun og læknaþing. Stöður þessar eru hugsaðar sem námsstöður, og munu þær opna nýjar og að nokkru leyti fjölbreyttari leiðir til framhalds- og sérnáms fyrir unga lækna. Þar sem almennt er skilningur á þvi, að vandkvæði læknisþjónustu dreifbýlisins og í rauninni læknaskorturinn i landinu almennt verði eingöngu leystur af ungum læknum og skuli leystur í samvinnu við þá, óskum við eftir, að Félag læknanema, þ.e. læknar fram- tíðarinnar, segi álit sitt á framangreindum til- lögum, einkum varðandi eftirfarandi atriði: 1. Teljið þið, að ungir læknar, er lokið hafa kandidatsári, mundu hafa áhuga á stöðum þessum, eins og þeim er lýst í tillögum Læknafélags Islands? 2. Teljið þið æskilegt, að gerðar séu breyting- ar á þessum tillögum, þannig að þær yrðu aðgengilegri og eftirsóknarverðari fyrir unga lækna? 3. Teljið þið, að stöður þessar séu ómaksins verð tilraun til þess að leysa þá þætti, er að ofan greinir, í læknisþjónustunni, og hvort stöður þessar mundu tengja nánar en nú er læknisþjónustu innan og utan heilbrigðis- stofnana og þar með auka áhuga ungra lækna á störfum utan sjúkrahúsa? Æskilegt er að fá svar við bréfi þessu hið fyrsta. Virðingarfyllst, f.h. stjórnar Læknafélags Isiands Arinbjörn Kolbeinsson formaður Reykjavík, 10. sept. 1971. Læknafélag íslands, hr. formaður, Arinbjörn Kolbeinsson, Domus Medica, R. Þakka bréf yðar, dagsett 8. sept. 1971, Þar sem óskað er umsagnar Félags læknanema um tillögur þær, sem Læknafélag Islands hefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.