Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1975, Side 44

Læknablaðið - 01.12.1975, Side 44
110 LÆKNABLAÐtÐ sent heilbrigðisyfirvöldum, og lúta að úrlausn ýmissa brýnna vandamála. í heilbrigðisþjónustu dreifbýlisins. Um tillögur þessar var fjallað á fundi í stjórn Félags læknanema 10. sept. ’71 og svohljóðandi afstaða tekin til fyrirspurna þeirra, sem til félagsins var beint: 1. Torvelt er að spá með sæmilegri vissu um áhuga ungra lækna á tilteknum stöðum i heilbrigðiskerfinu, sem ótvírætt ræfist m.a. af framboði á öðrum stöðum. Einnig er ljóst, að óvissa sú um bólsetu og vinnustað, sem stöðu fylgir, mun ekki öllum henta. Hins vegar er það skoðun flestra stjórnar- manna Félags læknanema, að stöður, sem í senn bjóða upp á þátttöku i rannsóknar- störfum á sjúkrahúsi og úrlausn vandamála þeirra sem við er að etja í dreifbýli, verði fýsilegar í augum ungra lækna. Einnig virð- ist okkur téðar stöður bjóða upp á mjög æskilega námsbraut fyrir lækna, sem hyggja á almennar lækningar eða embættislækn- ingar, og tækifæri til öflunar dýrmætrar reynslu til undirbúnings undir flest störf á sviði læknisfræði. 2. Eins og tillögurnar eru fram settar í grein- argerðum Læknafélags Islands virðast þær líklegar til að þjóna tilgangi sinum og laða unga lækna til starfa. Við viljum þó leggja sérstaka áherzlu á, að ekki verði slakað á áformum um, að stöðurnar verði rannsókn- arstöður, og læknum þeim, sem stöðurnar hljóta, verði sköpuð viðunandi aðstaða til rannsókna við hlutaðeigandi stofnanir. 3. Eins og fram kemur í ofanrituðu, teljum við tillögur Læknafélags Islands líklegar til að efla tvo vanrækta þætti í starfssviði ís- lenzkrar læknastéttar: iæknisþjónustu i dreifbýli og læknisfræðilegar rannsóknir. Þær eru líklegar til að Iétta átthagafjötrum af héraðslæknum, brúa óbærileg tómarúm í læknisþjónustu sumra héraða og skapa ung- um læknum skilyrði til framhaldsnáms og liðveizlu á mikilvægu sviði læknisþjónustu. Tillögurnar teljum við því merka tilraun til úrlausnar á brýnum vanda. f.h. Félags læknanema, Guðmundur Þorgeirsson formaður LceknamiOstöÖvar 4 bréf bárust á starfsárinu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, þar sem óskað var eftir áliti L.l. um stofnun læknamiðstöðva á eftirtöldum stöðum: 1. Borgarnesi, bréf dags. 30.10. 1970. Samþykkt var að mæla með stofn- un læknamiðstöðvar þar fyrir Borgarness- og Kleppjárnsreykjahérað athugasemdalaust. 2. Isafjörður, bréf dags. 27.10. 1970. Samþykkt var að mæla með stofnun læknamiðstöðvar þar fyrir Isafjörð og Súðavíkurhérað. Jafnframt taldi stjórn L.l. rétt að benda á nauðsyn þess, •að læknamiðstöðin næði yfir stærra svæði, eins iDg segir í eftirfarandi bréfi: 23. nóv. 1970. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Laugavegi 172, Reykavík. Vér þökkum bréf yðar dags. 30.10. 1970 varð- andi erindi landlæknis um stofnun læknamið- stöðvai' á Isafirði, sem fyrst um sinn yrði fyrir Isafjarðarlæknishérað og Súðavíkurlæknishér- að. Stjórn Læknafélags Islands samþykkti á fundi 12. nóvember 1970 að mæla með erindi þessu. Jafnframt vill stjórn Læknafélags Is- lands benda á nauðsyn þess, að læknamiðstöð á ísafirði verði miðuð við það, að síðar muni önnur héruð sameinast Isafjarðarhéraði, þ.e.a.s. Bolungarvíkurhérað, Suðureyrarhérað, Flat- eyrarhérað og jafnvel Þingeyrarhérað. Telur stjórn Læknafélags Islands nauðsynlegt að miða starfsaðstöðu í læknamiðstöðinni við heildarfjölda þeirra lækna, sem starfa þurfa á ísafirði eftir sameiningu þessara héraða, svo og að þar verði aðstaða fyrir tannlækni og sérfræðinga, sem kæmu til starfa öðru hverju. Þá telur stjórn læknafélagsins rétt að benda á, að gamla sjúkrahúsið á Isafirði hentar ekki sem slíkt til frambúðar og verður því væntan- lega innan tíðar tekið til annarra þarfa. Þarf því að gera ráð fyrir nánum tengslum lækna- miðstöðvarinnar við nýtt sjúkrahús, þegar hún verður reist. Virðingarfyllst, f.h. stjórnar Læknafélags Islands, Baldur Fr. Sigfússon ritari 3. Laugaráshérað, bréf dags. 2.11. 1970. Þar var ekki um að ræða sameiningu héraða held- ur fjölgun héraðslækna í 2 með tilliti til fólks- fjölgunar á síðustu árum, einkum vegna skóla og tilkomu þorps við Búrfellsvirkjun. Fundar- menn töldu rétt að mæla með erindi þessu, en jafnframt taka skýrt fram það álit stjórnar L.Í., að þarna sé ekki um framtíðarskipun læknisþjónustu að ræða, sbr. eftirfarandi bréf: 23. nóv. 1970 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Laugavegi 172, Reykjavík. Við þökkum bréf yðar dags. 2.11. 1970 varð- andi erindi landlæknis um stofnun læknamið- stöðvar í Laugarási fyrir Laugaráslæknishér- að, þar sem gert er ráð fyrir tveimur héraðs- læknum, er starfi við stöðina, án sameiningar héraða. Stjórn Læknafélags íslands samþykkti á fundi 12. nóv. 1970 að mæla með erindi þessu, enda þótt það sé álit stjórnarinnar, að hér sé ekki um framtíðarfyrirkomulag að ræða. Ibú-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.