Læknablaðið - 01.12.1975, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ
123
nefndar frá sl. vori, en rétt er að koma erindi
þessu á framfæri við nefnd þá, er enn situr og
hefur það verkefni að endurskoða heilbrigðis-
löggjöfina, þ.e. heilbrigðismálanefnd. Takist
ekki að fá hana til að taka þetta mál upp,
verður að leita annarra úrræða til að koma
þessu til Alþingis.
Tillaga X. Aðalfundur L.I. 1971 felur stjórn
félagsins að kanna möguleika á nánara sam-
starfi skrifstofu læknafélaganna við ráðninga-
stjóra kandidata og læknanema um ráðningu
staðgengla.
Jafnframt verði athugað, hvort unnt muni
að veita ráðningastjóra kandídata aðstöðu á
skrifstofu félaganna.
Tillaga XI. Aðalfundur L.I. 1971 telur á-
stæðu til, að athugað verði, hvort skrifstofa
læknafélaganna geti í framtíðinni tekið að sér
undirbúning og skipulagningu læknaþinga, sem
haldin verða hér á landi. Felur fundurinn
stjórn L.I. að kanna þennan möguleika.
Greinargerö. Á síðari árum hafa alls konar
þinghöld farið allmikið i vöxt hér á landi og
þ.á.m. hafa læknar haldið nokkrar ráðstefnur,
oftast með þátttöku lækna erlendis frá.
Undirbúningur slikra funda kostar mikla
vinnu og væri æskilegt, að sú reynsla, sem
þannig skapaðist, safnaðist saman á einum
stað, en hingað til hefur ekki verið um slíkt að
ræða, þar sem hin einstöku félög eða sér-
fræðihópar, sem að ráðstefnum hafa staðið,
hafa séð um alian undirbúning hver um sig.
Ef skrifstofa læknafélaganna tæki að sér að
sjá um allan undirbúning, svo sem útvegun
húsnæðis, farmiða milli landa og ferðalaga
innanlands, kynni að vera möguleiki á að ná
hagstæðum kjörum hjá ferðaskrifstofum. Að
sjálfsögðu yrði öll sú undirbúningsvinna, sem
skrifstofan innti af hendi, undir stjórn þeirra
lækna, sem ráðstefnuna skipulögðu að öðru
leyti.
Tillaga XII. Aðalfundur L.I. 1971 heimilar
stjórninni að ráða framkvæmdastjóra til að
veita skrifstofu læknasamtakanna forstöðu.
Greinargerð. Skrifstofurekstur læknasam-
takanna er raunar allumfangsmikill og fer
stöðugt vaxandi. Mörg erindi og viðfangsefni,
sem hafa borizt, hafa verið þess eðlis, að stjórn
L.I. eða L.R. hafa orðið að taka þau að sér til
úrlausnar og við ýmis önnur hefur þurft að
leita sérfræðilegrar aðstoðar utan frá. Væri
ráðinn framkvæmdastjóri á skrifstofuna með
akademiska sérmenntun, t.d. viðskiptafræðing-
ur eða lögfræðingur, gæti hann sinnt mörgum
eða e.t.v. flestum þessara verkefna og Þar með
bæði létt störfum af stjórnum félaganna, sem
eru nú óhóflega mikil og tímafrek, og einnig
sparað félögunum mikið til aðkeypta sérfræði-
lega aðstoð. Að sjálfsögðu mundu stjórnir fé-
laganna áfram hafa með höndum yfirstjórn
skrifstofunnar. Væri farið út í ráðningu fram-
kvæmdastjóra, væru og líkur til, að skrifstofan
gæti veitt læknum enn frekari þjónustu og
jafnvel tekið að sér ný verkefni, sem tekjur
kæmu inn fyrir án frekari aukningar starfs-
fólks. Mætti þar til nefna eftirlit með að launa-
útreikningar séu réttir og skv. samningum,
könmm á þróun launamála i þjóðfélaginu
læknasamtökunum til viðmiðunar, undirbún-
ingur læknaþinga, bókhald og rekstur Náms-
sjóðs lækna o.fl. o. fl. Framkvæmdastjórinn
mundi og vera samninganefndum félaganna til
ráðuneytis og raunar vera hinn fasti tengiliður
hinna ýmsu þátta félagsstarfseminnar.
Tillaga XIII. Aðalfundur L.I. 1971 beinir
þeirri áskorun til menntamálaráðherra, að nú
þegar verði stofnað prófessorsembætti i al-
mennum lækningum við læknadeid Háskóla
Islands.
Tillaga XIV. Aðalfundur L.I. samþykkir að
kjósa þriggja manna nefnd til að endurskoða
lög félagsins. Skal nefndin hafa lokið störfum
1. marz 1972.
Greinargerð. Lög L.I. þurfa ýmissa smá-
vægilegra breytinga við, en varla í nokkrum
grundvallaratriðum. Nefndin þyrfti að hafa
lög allra svæðafélaganna við höndina og líta
eftir, að ekki sé misræmi á milli laga þeirra
og laga heildarsamtakanna. I 7. gr. laga L.I.
er tekið fram, að fulltrúar aðildarfélaga á að-
alfundi L.I. skulu kosnir til tveggja ára, en
hingað til virðast svæðafélögin úti á landi hafa
kosið fulltrúa sinn til 1 árs í senn, og ekki
mun alltaf hafa verið farið eftir þessu ákvæði
í L.R., en í lögum þess félags er ekki tekið
fram um þetta tveggja ára kjörtimabil full-
trúa. Þá er og tekið fram í 14. gr. laga L.I., lið
9, að kosinn skuli 1 fulltrúi í ritstjórn Lækna-
blaðsins. Þessi liður virðist vera óþarfur eða
þyrfti a.m.k. ekki að hafa hann svona ríg-
skorðaðan. Hins vegar væri rétt, að málefni
blaðsins væru rædd undir sérstökum dagskrár-
lið, sem héti t.d. Læknablaðið. Núverandi orða-
lag gerir erfiðara um vik með breytingar á rit-
stjórn blaðsins.
Tillaga XV. Aðalfundur L.I. 1971 felur
stjórn L.l. að láta kanna, hvort Lifeyrissjóður
lækna geti tekið að sér hóptryggingu lækna
eða einstaka þætti hennar, t.d. sjúkratrygg-
ingu.
Greinargerð. Lífeyrissjóður lækna á við
sama vanda að stríða og aðrir óverðtryggðir
sjóðir í verðbólguþjóðfélagi —• siminnkandí
verðgildi peninganna. Tekjur af tryggingum
gætu vegið eitthvað upp á móti slíkri rýrnun.
Leita þarf álits tryggingafræðings um frekari
framgang þessa máls.
Tillaga XVI. Aðalfundur L.I. 1971 felur
stjórn L.I. að skipa 3—5 manna nefnd til end-
urskoðunar á Codex Ethicus, sérstaklega með
tilliti til réttarfarsákvæða.
Greinargerð. Eins og læknum er kunnugt
hefur gerðardómur fengið nokkur umfangs-
mikil mál til meðferðar nú að undanförnu,
þ.á.m. mál gegn stjórn L.I. I þessum mála-
rekstri hefur komið i ljós, að ýmis ákvæði
varðandi gerðardóma eru óljós og vandasöm að
túlka. Gerðardómur hefur með höndum rann-
sókn máls og dómskvaðningu, en hefur ekki
valdsvið til að beita refsingu. Það er hlutverk
stjórnar L.I., en sé hún annar deiluaðili og