Læknablaðið - 01.12.1975, Side 90
136
LÆKNABLAÐIÐ
gangast og að beðið sé með varnarráðstaf-
anir Þar til heilsutjón hlýst af. Fundurinn
ályktar ennfremur að ef varnir gegn meng-
un eru taldar óframkvæmanlegar vegna
kostnaðar, eigi viðkomandi starfsemi ekki
rétt á sér.“
8. Tillaga frá stjórn L.I.:
„Aðalfundur L.I. haldinn dagana 23.—25.
júni 1972, ályktar að það sé þjóðfélagslegt
hagsmunamál, að læknisþjónusta utan
sjúkrahúsa verði efld. Þar eð frumvarp til
laga um heilbrigðisþjónustu, sem nú liggur
fyrir alþingi, nær ekki til allrar heilbrigð-
isþjónustu utan sjúkrahúsa, einkum ekki
til einmenningslæknissetra, leggur fundur-
inn áherzlu á að viðkomandi heilbrigðisyf-
irvöld, bæjar- og sveitarfélög taki höndum
saman við læknastéttina um að gera þessi
læknissetur sem bezt úr garði og að efla
þar með læknisþjónustuna í dreifbýiinu.
Verði ákvæði um þetta felld inn í frumvarp
til laga um heilbrigðisþjónustu." Þessari
tillögu vísaði fundurinn aftur til stjórnar
L.I.
9. Tillaga frá stjórn L.I:
„Aðalfundur L.I. haldinn dagana 23.—25.
júní 1972, hvetur hin ýmsu sérgreinafélög
innan svæðafélaganna til að hefja nú þegar
í samráði við L.I. undirbúning að útgáfu að
fræðsluefni bæði fyrir sjúklinga og allan
almenning, hvert á sínu sérgreinasviði, sem
dreift sé meðal lækna og þeir hafi til ráð-
stöfunar."
10. Tillaga frá stjórn L.I.:
„Aðalfundur L.I. haldinn dagana 23.—25.
júní 1972, ályktar að þörf sé raunhæfra
aðgerða vegna hinna tíðu og alvarlegu um-
ferðaslysa. Fundurinn gerir það að tillögu
sinni, að lágmarksaldur þeirra, sem fá
ökuleyfi, verði endurskoðaður með tilliti
til aldurshækkunar og jafnframt verði at-
huguð sú leið að lengja gildistíma bráða-
birgðaökuleyfa. Kannaðar verði leiðir til
þess að koma í veg fyrir háskalega hraðan
akstur, t.d. með sérstökum búnaði í bif-
reiðar, sem takmarka hraða. Gerðar verði
strangar kröfur til öryggisbúnaðar bifreiða,
sem fluttar eru til landsins. Nauðsynlegt er
að stórauka fræðslu fyrir almenning um
umferðarmál, sérstaklega í ríkisútvarpi,
(hljóðvarpi og sjónvarpi)."
11. Tillaga frá stjórn L.I.:
„Aðalfundur L.I. haldinn dagana 23.—25.
júní 1972, áminnir alla meðlimi félagsins
að hafa jafnan í huga og halda í heiðri
siðareglur lækna, eins og þær eru settar
fram í Codex Ethicus. Ennfremur óskar
fundurinn eftir að stjórnir L.I. og aðildar-
félagar framfylgi ákvæðum 16. gr. laga.“
12. Tillaga frá stjórn L.I.:
„Aðalfundur L.I. haldinn á Blönduósi 23.
—25. júní 1972, telur að fullkomins ósam-
ræmis gæti í afstöðu almennings og yfir-
valda til neyzlu fíkniefna, lyfja sem hafa
ávanahættu í för með sér, og neyzlu á-
fengis.
Eins og nú standa sakir, er áfengisneyzla
landsmanna langsamlega mesta vandamál-
ið af framangreindum atriðum og er rétt-
nefnt áfengisböl.
Aðalfundurinn ályktar þvi, að sérstakra að-
gerða sé þörf til að koma í veg fyrir neyzlu
áfengis. Þar eð ekki hefur tekizt að skapa
sterkt almenningsálit gegn ofneyzlu áfeng-
is, telur fundurinn að ekki verði komizt
hjá því að sala áfengra drykkja verði tak-
mörkuð. Skorar fundurinn því á viðkom-
andi yfirvöid að hefja nú þegar aðgerðir
til að draga úr sölu áfengra drykkja."
13. Tillaga frá Baldri Johnsen:
„Aðalfundur L.I. haldinn dagana 23.—25.
júní 1972, ályktar að nauðsynlegt sé að
gerðar verði auknar ráðstafanir á vegum
heilbrigðisráðuneytis til að komið verði upp
hælum til að vista, hjúkra og lækna
drykkjusjúklinga, og lögum og reglugerð-
um breytt til þess að gera mögulegar slík-
ar framkvæmdir."
Síðan voru bornar fram tillögur til laga-
breytinga.
14. Tillaga frá Læknafélagi Suðurlands:
„Viðbót við næstsíðustu málsgrein 9. grein-
ar: Ekki má kjósa alla aðalstjórn frá sama
svæðisfélagi."
15. Tillaga frá Breynleifi Steingrímssvni:
..Aðalfundur kýs 7 manna stiórn til tveggia
ára. formann. ritara. féhirði. ennfremur 4
meðstjórnendur og 3 menn til vara. Stiórn-
arkosning er skrifieg og skal hver stjórn-
armaður kosinn sérstaklega, þó má kiósa
meðstiórn og varastjórn samtímis. Ekki
má kiósa meira en 2 aðalstjórnarmenn úr
sama svæðisfélagi." Þessari tillögu var vís-
að tU laganefndar L I.
16. 1 annarri málsgrein 9. gr. komi júní í stað
iúlí og fellt út „að jafnaði".
17. Tillaga frá Læknafélagi Norð-vesturlands:
..10. greinin verði svohljóðandi:
Stiórn hvers aðildarfélags skal senda stjórn
L.I. ársskýrslu sína, ásamt tölu gjald-
skyldra félaga og aukafélaga fyrir lok
septembermánaðar ár bvert. Lög aðildar-
félaga eru þvi aðeins gild. að þau hafi ver-
’ð samþykkt af stiórn L.t. Nú æskir að-
ildarfélag að aðalfundur L.I. taki einhver
mál til meðferðar; skal þá tilkvnning um
bað ásamt greinargerð send stiórn L.l.
þrem vikum fvrir aðalfund. Telji stiómin
slíkt mál varða öil aðildarfélögin. skal bún
senda þeim afrit þessara gagna fyrir aðal-
fund.
Nú greiðir gialdskyldur félagi ekki árstil-
lag sitt til L.I. innan 6 vikna frá gialddaga,
bá getur stiórn L.I. svift hann félagsrétt-
indum, enda hafi hann verið aðvaraður."
15. gr. verði orð"ð svo:
..Aðalfundur L.I. ákveður árgiald fyrir
hvern gialdskyldan félaga til L.I. Aðildar-
félög geta ákveðið að læknar, sem verið
hafa virkir félagar i 40 ár, eða hætt störf-