Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 94

Læknablaðið - 01.12.1975, Page 94
140 LÆKNABLAÐIÐ ráöuneytið skv. frumvarpinu málaflokka, sem að mati Læknafélags Islands eiga að heyra undir landlækni. 3. Stjórn Læknafélags Islands vill minna a, að alger samstaða var um breytingatillögur fe- lagsins á fundi stjórnar L.I. með fulltrúum frá eftirtölum aðildarfélögum Læknafélags Islands: Læknafélagi Reykjavíkur, Lækna- félagi Vesturlands, Læknafélagi Vestfjarða, Læknafélagi Norð-Vesturlands, Læknafélagi Norð-Austurlands, Læknafélagi Austurlands og Læknafélagi Suðurlands. Við afgreiðslu frumvarpsins var tekið tillit til tillagna L.I. varðandi yfirstjórn heilbrigðis- mála, en fjölmargar aðrar tillögur læknafé- lagsins um aðra þætti frumvarpsins yoru ekki teknar til greina. Má Þar nefna sérstaklega tillögur um stjórnun sjúkrahúsa og heilsu- gæzlustöðva, fjármögnun sjúkrahúsa og heilsu- gæzlustöðva, námsferðir lækna, er starfa við heilsugæzlustöðvar, um flokkun sjúkrahúsa o.fl. . , * * Er þvi ekki að leyna, að stjórn L.I. varð fyrir nokkrum vonbrigðum með afgreiðslu Al- þingis á frumvarpinu, en á hitt ber að líta, að atlaga sú, er gerð var að landlæknisembætt- inu, mistókst með öllu. Þá má ekki gleyma því, að mörg ákvæði laganna eru mjög til bóta, sérstaklega að því, er varðar skipulag heil- brigðisþjónustu i dreifbýli og skiptingu lands- ins í heilsugæzluumdæmi og byggingu heilsu- gæzlustöðva. Umsögn L.I. um frumvarpið birt- ist í fréttabréfi L.J., apríl 1973. 2. Frumvarp til laga um lyfjastofnun ríkisins Frumvarp þetta var samið af nefnd, er skip- uð var af heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra í febrúar 1972 til að endurskipuleggja lyfjaverzlunina með það fyrir augum að tengja hana við heilbrigðisþjónustuna og setja hana undir félagslega stjórn. L.I. fékk þetta frum- varp til umsagnar frá Alþingi, en frumvarpið var ekki afgreitt á þessu þingi. 3. Frumvarp til laga um lyfjaframleiöslu Þetta frumvarp var samið af sömu nefnd og þeirri, sem samdi frumvarp til laga um lyfja- stofnun rikisins. Fékk L.I. þetta frumvarp til umsagnar, en frumvarpið var ekki afgreitt a þessu þingi. 4. Frumvarp til laga um sérstakan dómstól i ávana- og fikniefnamálum L.I. fékk þetta frumvarp til umsagnar, en þar var gert ráð fyrir að stofnaður yrði sér- stakur dómstóll i ávana- og fíkniefnamálum. Fagnaði L.I. þessu frumvarpi og mælti með samþykkt þess. Varð frumvarpið að lögum a síðasta þingi. 5 Drög aö Ijósmœörálögum Félagið fékk drög að ljósmæðralögum til umsagnar frá heilbrigðis- og tryggingamala- ráðuneytinu. Drög þessi eru mjög ófullkomin og þarf greinilega að umsemja algjörlega. Aln hefur ekki verið sent. 6. Drög aö frumvarpi um fóstureyöingar og ófrjósemisaögeröir Álit þetta er frá nefnd, er fyrrverandi heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra skipaði 1970, en lauk störfum á miðju ári 1973. Félagið fékk álit nefndarinnar sent frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, án þess að beiðst væri umsagnar. Hefur stjórn L.I. falið Guð- mundi Jóhannessyni, Snorra P. Snorrasyni og Guðsteini Þengilssyni að fara yfir drög þessi og verður álit þremenninganna lagt fyrir að- alfund. Gert er ráð fyrir, að þessi drög að frumvarpi verði lögð fram á næsta þingi. 7. Sérstakar aöstoöariœknisstööur viö ríkis- spítalaiui tengdar þjónustu í héraöi I apríl 1972 var samþykkt breyting á lækna- skipunarlögum frá 1965, þar sem heimilað var að stofna 6 sérstakar læknisstöður við ríkis- spítalana, er tengdar verði þjónustu í héraði. Var gert ráð fyrir, að ráðherra setti reglugerð um þessar stöður. Skrifaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið L.I. og Stjórnarnefnd ríkisspítalanna bréf, þar sem óskað er eftir tillögum að reglugerð. Skrifaði stjórn L.I. þá stjórnarnefndinni og óskaði eftir samstarfi. Tilnefndi Stjórnarnefnd ríkisspítalanna til við- ræðna Þór ' Vilhjálmsson og læknana Víking H. Arnórsson og Jakob Jónasson, en af hálfu L.I. tóku þátt í viðræðunum Guðjón Magnús- son og Guðmundur Jóhannesson. Hittust þessir aðilar á nokkrum fundum, en ekki varð sam- komulag í nefndinni. Varð því úr, að stjórn L.l. sendi tillögur sínar að reglugerð til ráðu- neytisins. Tillögur þessar birtust í fréttabrefi L.I. i apríl 1973. Ekkert bólar á áðurnefndn reglugerð og áðurgreindar stöður hafa ekki verið stofnaðar. 81. Lyfjamál Stjórn L.I. gerði tillögur til landlækms um afgreiðslu lyfja, þar sem lagt var til: a) Að heilbrigðisyfirvöld hlutist til um, að betra fyr- irkomulag verði á upplýsingastreymi frá heil- brigðisyfirvöldum til lyfjaverzlana um hvern þann lækni, er leyfi hefur til að gefa út lyf- seðla. b) Að gefin verði út Lyfjaskrá Islands, er samin verði til hagræðis fyrir iækna og hafi að geyma upplýsingar um öll þau lyf, sem flutt eru inn til landsins eða framleidd innanlands. c) Að aukin verði framleiðsla lyfja innanlands. Skömmu eftir að Þetta erindi barst land- lækni, hélt hann fund með fulltrúum L.I., Apótekarafélagi Islands og deildarstjóra lyfja- mála i heilbrigðismálaráðuneytinu, Þar sem þessar tillögur voru ræddar. Var samstaða um, að nauðsynlegt væri að hefja nú þegar útgáfu Lyfjaskrár íslands. Hafðar verði til hliðsjónar sams konar lyfjaskrár, er gefnar eru út á hin- um Norðurlöndunum, svo sem FASS og Læge- foreningens medicinske fortegnelser. Ekki hef- ur verið ráðizt í útgáfu þessa rits ennþá. 9. Ný reglugerö Ólafur Jónsson, Þóroddur Jónasson og Jo- hannes Bergsveinsson voru i september s.l. skipaðir í nefnd til að gefa umsögn um drög
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.