Læknablaðið - 01.12.1975, Qupperneq 99
LÆKNABLAÐIÐ
141
að reglugerð uni gerð lyfseðla og afgreiðslu
lyfja og um drög að reglugerð um ávana- og
fíknilyf í lyfjasölu. Var álit þeirra samþykkt
af stjórn L.I. og sent heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu.
10. Endurliœfing — aöstoö
I júní s.l. boöaði landlæknir til fundar með
yfiriæknum sjúkrahúsa í íteykjavík og full-
trúa L.í. til að ræða vandamál þeirra kollega,
er gerzt hafa sekir um abusus medicamentor-
um með það í huga að ræða, hvort og þá
hvernig hægt væri að lækna og endurhæfa
þessa menn. Fundurinn tók enga ákvörðun,
enda ekki til þess ætlazt, en skipzt var á
skoðunum. Innan stjórnarinnar hefur verið
rætt um þennan vanda og þá sérstaklega, að
læknasamtökin hafa enga möguleika á að
veita kollegum fjárhagsaðstoð í slíkum tilvik-
um og hóptrygging lækna tekur ekki til þess-
ara veikinda.
11. Lœknaritaraskóli
I samræmi við ályktun síðasta aðalfundar
beitti L.I. sér fyrir, að sett var á laggirnar
nefnd til að vinna að undirbúningi læknarit-
araskóla. I nefndina voru skipaðir Magnús
Karl Pétursson af hálfu Læknafélags íslands,
formaður, Rósa Steingrímsdóttir af hálfu
Læknaritarafélags Islands og Bergljót Guð-
mundsdóttir af hálfu heilbrigðismálaráðuneyt-
isins. Nefndin hefur haldið nokkra fundi og er
unnið að uppkasti að reglugerð um slíkan
skóla og jafnframt að kennslubókasöfnun.
Bandalag Háskólamanna
Á þessu ári hafa orðið þáttaskil í sögu
Bandalags háskólamanna. Með lögum nr. 46/
1973 um kjarasamninga opinberra starfsmanna
er kveðið svo á, að heildarsamtök, er fjármála-
ráðherra viðurkenni, fari með samningagerð
fyrir opinbera starfsmenn. I samræmi við
þetta ákvæði hefur fjármálaráðherra veitt
B.H.M. samningsrétt við næstu kjarasamninga
til jafns á við B.S.R.B. Hefur þar með náðst
langþráð markmið B.H.M., sem ber að fanga.
Tildrög þessara nýju laga voru þau, að fjár-
málaráðherra skipaði nefnd til að endurskoða
lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna
skv. ákvæði í málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar. I nefndinni áttu sæti fulltrúar stjórn-
málaflokkanna, B.H.M. og B.S.R.B.
Með bréfi til B.H.M., dags. 7. maí 1973, ósk-
aði Læknafélag íslands eftir að nýta heimild
þá, sem áður greinir, til að fara með samninga
fyrir lausráðna lækna í opinberri þjónustu.
Fjármálaráðherra hefur með bréfi, dags. 2.
ágúst 1973, veitt þessa heimild.
Fulltrúar L,I, I fulltrúaráði B.H.M. þetta
starfsár hafa verið Arinbjörn Kolbeinsson,
Guðjón Magnússon og Snorri P. Snorrason, en
Bjarki Magnússon á sæti í stjórn B.H.M.
Á síðasta aðalfundi B.H.M., sem haldinn var
30 mai 1973, voru samþykkt ný lög fyrir
bandalagið, sem lögð verða fyrir aðalfund L.I.
til samþykktar, en hafa þegar verið samþykkt
af stjórn L.I. með fyrirvara.
Sett hefur verið á stofn launamálaráð
B.H.M., en í því eiga sæti fuiltrúar þeirra að-
ildarfélaga, er hafa opinbera starfsmerm. I
launamálaráði áttu sæti fyrst i stað Guðmund-
ur Oddsson og Grétar Olafsson til vara, en
þegar í ljós kom, að í ráðmu máttu einungis
sitja fastráðnir rikisstarfsmenn, skipaði stjórn
L.I. Konráð Sigurðsson í ráðið, en til vara
Heimi Bjarnason, Gunnar Guðmundsson og
Friðrik Sveinsson. Launamálaráð hefur unnið
mikið starf í sumar við að undirbúa kröfugerð
fyrir væntanlega kjarasamninga. Er það álit
stjórnar L.I., að sem fyrst beri að stefna að því,
að allir samningar lækna við ríkissjóð fari
fram innan vébanda B.H.M., en vegna sérstöðu
samninga lausráðinna lækna var talið nauð-
synlegt, að L.I. færi sjálft með samninga að
þessu sinni.
Formannaráöstefna
Fundur stjórnar Læknafélags Islands með
formönnum svæðafélaga var haldinn laugar-
daginn 17. marz 1973.
Mættir voru:
Snorri P. Snorrason, formaður,
Guðjón Magnússon, ritari,
Guðmundur Sigurðsson, gjaldkeri,
Heimir Bjarnason og
Guðmundur Jóhannesson, meðstjórnendur.
Frá svæðafélögunum voru eftirtaldir fulltrú-
ar mættir:
Árni Ingólfsson, Læknafélagi Vesturlands,
Úlfur Gunnarsson, Læknafélagi Vestfjarða,
Friðrik Friðriksson, Læknaf. N.-Vesturlands,
Gisli G. Auðunsson, Læknaf. N.-Austurlands,
Þorsteinn Sigurðsson, Læknaf. Austurlands,
Þórhallur B. Ölafsson, Læknaf. Suðurlands,
Einar Baldvinsson, Læknaf. Reykjavíkur.
Fundinn sat einnig Páll Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri.
Læknafélag Akureyrar hafði ekki tök á að
senda fulltrúa.
Dagskrá fundarins var þessi:
1. Yfirlit um störf stjómar L.I.
2. Frv. til laga um heilbrigðisþjónustu.
3. A. Frv. til laga um lyfjastofnun ríkisins.
B. Frv. til laga um lyfjaframleiðslu.
4. Væntanlegt frv. til laga um samningsrétt
opinberra starfsmanna.
Fundarmenn fengu eftirtalin skjöl til athug-
unar:
I. 1. Heilbrigðisfrumvarpið.
2. Afskipti L.I. af gerð frumvarpsins.
3. Yfirstjórn; möguleikar I. og II. með
rökstuðningi.
4. Breytingartillögur stjórnar við einstak-
ar greinar frv.
II. 1. Frv. til laga um lyfjastofnun ríkisins.
2. Frv. til laga um lyfjaframleiðslu.