Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1994, Síða 16

Læknablaðið - 15.09.1994, Síða 16
292 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Heilsufar aldraðs fólks í Reykjavík Ársæll Jónsson1’, Helgi Sigvaldason21, Nikulás Sigfússon2’, Þórhannes Axelsson, Guöjón Magnússon3’ Jónsson Á, Sigvaldason H, Sigfússon N, Axelsson Þ, Magnússon G A health survey of elderly people in Reykjavík Læknablaðið 1994; 80:292-9 In 1982 a multifactorial population health survey of people aged 80 years and older and living in the community, was carried out. The mortality registry was examined up to the end of year 1988. By this time 67% had died and the mortality was assessed by Cox’s regression analysis on serum cholesterol as one of the main variables included in the survey. The original sample contained 170 persons and 148 were alive at the time of examination. Participation rate of sample is 72%. By end of 1988, 35 persons were alive and 71 dead. Excluded were 22 dead before entry. Serum cholesterol was found to be negatively predictive of mortality in both univariate (p < 0.01) and multivariate analysis when triglyce- rides, age and smoking were also included (p < 0.01). There was a 0.9% decrease in relative risk for each mg/dl increase of serum cholesterol. Ten per- sons had serum cholesterol of 160 mg/dl or less and they all died within 10 years from the examination, one of disseminated carcinoma and the rest of non- cancer causes. The strong inverse relationship be- tween mortality and serum cholesterol indicates that this risk factor in old people may be of different nature than in other age groups. Ágrip Árið 1982 voru rannsakaðir 106 einstaklingar úr tilviljunarkenndu þýðisúrtaki úr Þjóðskrá 1. Frá 1,öldrunarlækningadeild Borgarspítalans, 2,Rannsókn- arstöð Hjartaverndar, 3,landlæknisembættinu. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ársæll Jónsson, öldrunarlækningadeild Borgar- spítalans, 108 Reykjavtk. desember 1981, sem voru 80 ára og eldri og bjuggu á Reykjavíkursvæðinu. Tilskilið var að þeir dveldu ekki á sjúkrahúsi þann tíma sem rannsóknin stóð yfir og vildu taka þátt í henni annað hvort með heimsókn á Rannsóknarstöð Hjartaverndar eða með vitjun í heimahús ef þeir treystu sér ekki til að koma. Heimtur urðu 72%. Konur voru fjölmennari eða 67% hópsins og meðalaldur 87 ár. Á eigin heimilum bjuggu 65% en 27% á elli- og dvalarheimilum fyrir aldraða. Um helmingur fólksins taldist hafa fulla hreyfigetu, utanhúss sem innan en 15% þurftu aðstoðar með ferðir innanhúss. Meðalfjöldi sjúkdómsgreininga var 5,1 á ein- stakling en sjúkdómsgreiningum fjölgaði með hækkandi aldri. Alls voru skráðar yfir 40 sjúk- dómsgreiningar en tölfræðilega marktækur munur fannst á tíðni sykursýki, kransæðastíflu og blóðþurrðarhelti á milli kynja. í árslok 1988 hafði 67% hópsins látist. Af þeim fjölmörgu breytum, sem skoðaðar voru með aðhvarfsgreiningu Cox, reyndust einungis kólesteról í sermi (neikvætt), aldur og þríglýs- eríð í sermi (neikvætt) vera marktækar. Meðal- gildi kólesteróls mældist 234,7 og fór það lækk- andi með hækkandi aldri. Athugun á dánar- orsökum þeirra 10 einstaklinga sem mældust með kólesterólgildi undir 160 mg/dl leiddi ekki í Ijós neinar skýringar á lágum gildum og aðeins einn þeirra lést úr krabbameini. Aldrað fólk utan sjúkrahúsa býr við fjölþætt- an heilsuvanda. Sterkustu áhættuþættirnir fyrir utan lífaldur eru hækkað þríglýseríð í sermi en áhættan fer lækkandi með hækkandi gildum á kólesteróli. Fram kom að kólesteról- gildi fara lækkandi með hækkandi aldri og það er því líklegt að vægi kólesteróls gerbreytist einhvern tíma á efri árum. Frekari rannsókna er þörf en rannsóknin bendir til að kólesteról- lækkandi aðgerðir þurfi að hafa aðrar áherslur meðal aldraðra en meðal þorra almennings.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.