Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 32
306
LÆKNABLAÐIÐ 1994: 80
Table V. Relative riskforemployed women compared to men of seeking medical carefor carpal tunnelsyndrome within various
occupational groups.
Occupational groups Relative risk 95% confidence interval Upper Lower
Legislator, seniors and managers — — —
Professionals 3.22 6.44 1.61
Technicians and associated professionals 1.10 6.11 0.20
Clerks 1.03 12.10 0.09
Service workers, shop and market sales workers 0.99 4.78 0.21
Skilled agricultural and fishery workers 0.90 6.84 0.13
Craft, related trades workers 2.36 3.39 1.65
Plant and machine operators 0.22 1.41 0.03
Elementary occupations 0.96 4.65 0.20
Adjusted summary 2.06 2.99 1.42
karlar og konur í stjórnendastörfum og karlar í
sérfræðingastétt í þessari rannsókn. Hins vegar
er fjöldi kvenna og karla í bænda- og fiski-
mannastétt og iðnaðarverkakvenna miklu
meiri í okkar rannsókn miðað við samanburð-
arhópinn (tafla IV).
I heildina eru konur á vinnumarkaði meira
en tvöfalt líklegri en karlmenn til að leita lækn-
is vegna miðtaugarþvingunar í úlnliðsgöngum
(tafla V). Mjög athyglisvert er að hlutfallsleg
áhætta kvenna með tilliti til miðtaugarfergis í
úlnliðsgöngum er mismikil eftir starfsstéttum.
Pannig er áhættan í raun nokkuð jöfn meðal
karla og kvenna nema í hópi iðnverkakvenna
og kvenna í sérfræðingastétt, þar sem áhættan
er meir en tvöfalt aukin (tafla V). Fjöldinn í
síðastnefnda hópnum er þó það lítill að varla er
hægt að draga ályktun af því. Fiskverkunar-
konur voru fjölmennastar í hópi kvenna í iðn-
aðarstétt í okkar rannsókn eða 71%. Þessi nið-
urstaða sýnir nauðsyn þess að athuga nánar
starfsaðstöðu og vinnuumhverfi þessara
kvenna til þess að sannreyna að orsökina fyrir
þessum mun sé að finna þar en ekki eingöngu í
kynferði.
Umræða
Eins og í öðrum rannsóknum á miðtaugar-
þvingun í úlnliðsgöngum eru konur fjölmenn-
ari í þessari rannsókn, eða 63%, með kynja-
hlutfall 1,7:1. Það er svipað og í sumum athug-
unum (1,7) en verulega lægra en í öðrum þar
sem hlutfallið milli kynja var frá 3:1 upp í 3,7:1
(2,8,9).
Samkvæmt afturvirkri rannsókn, þar sem
tíðni var athuguð sérstaklega, er nýgengi mið-
taugarþvingunar í úlnliðsgöngum um 99/
100.000 á ári fyrir bæði kyn. Tíðnin jókst hjá
karlmönnum með aldri og náði hámarki um 75
ára aldur en var hæst hjá konum á aldrinum
45-54 ára (9).
Miðað við aðrar rannsóknir er fjöldi ungra
einstaklinga óvenju mikill í þessari rannsókn
(1,2,7,8). í rannsókn frá Lundi í Svíþjóð á 400
einstaklingum var meðalaldur 53 ár og voru
14,5% sjúklinga yngri en 40 ára og 61% á aldr-
inum 40 til 60 ára (8) og í annarri rannsókn (7)
voru 20,8% yngri en fertugir en 62% á aldrin-
um 40 til 60 ára. Samskonar aldursdreifing hjá
okkur er 35% sjúklinga undir 40 ára aldri og
40% á aldrinum 40 til 60 ára. Ólíkt okkar rann-
sókn er efniviður þessara tveggja rannsókna
sjúklingar sem skurðaðgerð var framkvæmd á í
öllum tilvikum, sem gæti útskýrt að hluta
þennan mun á aldursdreifingu (7,8). Efniviður
rannsókna Phalens (1,2) er þó sambærilegur
við okkar hvað þetta varðar, þó er fólk yngra
en fertugt tvisvar til þrisvar sinnum fjölmenn-
ara hjá okkur. Nærtækasta skýringin á þessum
mun á aldursdreifingu er aðgengilegri læknis-
þjónusta hér á landi, það er að segja að fólk
leitar fyrr læknis. Til að athuga þetta var hægt
að bera saman við okkar niðurstöður tíma-
lengd einkenna hjá báðum kynjum í tveimur
rannsóknum þar sem verulegur munur fannst á
aldursdreifingu við greiningu (1,2), en þær eru
nánast eins.
Aldursdreifing okkar hóps er þó líkari því
sem var í Rochester faraldsfræðirannsókninni
(9) þar sem þetta var sérstaklega athugað hjá
1016 einstaklingum á 20 ára tímabili. Hér var
meðalaldur 49,8 ár hjá körlum og 51 ár hjá
konum. Þó eru 42,5% sjúklinganna yngri en 45
ára hjá okkur samanborið við 35% hjá þeim og