Læknablaðið - 15.09.1994, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
343
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN SÓLVANGI
220 Hafnarfjörður
Staða heilsugæslulæknis
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöðina Sólvangi í Hafnarfirði er
laus til umsóknar frá 1. desember 1994.
Starfsmenn heilsugæslustöðvarinnar sinna íbúum Hafnarfjarðar og Bessa-
staðahrepps. Verkefni eru samkvæmt ákvæðum í lögum og reglugerðum um
heilbrigðisþjónustu. Starfið er unnið í teymisvinnu og samskiptaskráning fer
fram í tölvuvæddri sjúkraskrá.
Vegna kennslu og rannsóknarskyldu stöðvarinnar á vegum Háskóla íslands,
eru kennsla og vísindastörf mikilvægir þættir starfsins.
Óskað er eftir lækni með sérfræðiréttindi í heimilislækningum. Lögð er áhersla á
reynslu við rannsóknarstörf.
Umsóknarfrestur er til 15. september 1994. Eyðublöð liggja fyrir á skrifstofu
landlæknis. Umsókn, ásamt ítarlegum upplýsingum um starfsferil, kennslu,
vísindastörf og ritverk sendist til framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar
Sólvangi, 220 Hafnarfirði.
Guðmundur Sverrisson, yfirlæknir
Frá Norræna
heilbrigðis-
háskólanum
Upplýsingar um framhaldsmenntun-
arnámskeið, meðal annars til undir-
búnings doktorsprófi, verða haldin í
skólanum vorið og haustið 1995,
samkvæmt venju. Nánari upplýsing-
ar hjá Nordiska hálsovárdhögskolan,
Box 12133, S-402 42Göteborg. Sími:
+46-(0)31-69 39 72, 69 39 00, Bréf-
sími: +46-(0)31-69 17 77. Einnig
liggja upplýsingar hjá Læknablaðinu.
Liggur frammi hjá Læknablaðinu