Læknablaðið - 15.09.1994, Qupperneq 36
(flúoxetín)
-árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxetin)
Framleiftandi: OMEGA FARMA hf. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; N 06 A B 03. Hver tafla
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríó, samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg. Hylki; N06AB03. Hvert hylki
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geð-
deyfóarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) i taugaenda iheila. Lyfið hefur
litil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni i heila. Flúoxetin minnkar mataríyst. Blóðþéttni lyfsins
nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetins i blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni
flúoxetins er norflúoxetín, sem erálika virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í
plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út Iþvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs
helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammlastærðum ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábending-
ar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvaríegt, langvarandiþunglyndi. sem á sér ytrí orsakir. Frábend-
ingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvaríega nýrnabilun, lifrar-
sjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúft: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist I byrjun
meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum.
Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti. kvíði, sljóleiki, munnþurkur og
aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-
hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að
tökuþess erhætt, erekkióhætt að nota MAO-hemjandilyffyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur fráþvitöku flúexetins
er hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Hækkun á litiumþéttni hefur sést eftir samtimis gjöf af
flúoxetiniog þarfþvlað fylgjast vel með litíummagni iblóði. Skammtastærftir handa fullorftnum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3
vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki i meira en 80 mg á dag. Við
mikið skerta lifrar- eða nýmastarfsemi og hjá öldruðum geturþurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Lyfift er ekki ætlaft börnum.
Pakkningar:
Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk.
Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframlelðslu, stofnaö 1990