Læknablaðið - 15.09.1994, Page 70
338
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Tryggingafrettir
Vissir þú....
...að greiðslur vegna sjúkradagpeninga skerðast
ekki vegna sjúkrahúsvistar? Það gera hins vegar
greiðslur vegna örorkulífeyris eftir fjögurra mánaða
dvöl á sjúkrastofnun.
...að eitt helsta skilyrðið fyrir endurhæfingarlífeyri er
að viðkomandi gangist undir greiningu og meðferð á
sjúkrastofnun? Sjúkrahúsvist í greiningar- og endur-
hæfingarskyni skerðir ekki bótagreiðslur.
...að um síðustu áramót var gerð sú breyting á lögum
um almannatryggingar að til þess að vera sjúkra-
tryggður á íslandi þarf maður að hafa átt lögheimili hér
á landi í að minnsta kosti sex mánuði (nema hann
komi frá EES landi)? Heimilt er þó að greiða nauðsyn-
lega þjónustu í „skyndilegum sjúkdómstilfellum
Sjúkradagpeningar
Sjúkradagpeningar eru
greiddir að hámarki í samtals 52
vikur á hverjum 24 mánuðum,
frá og með 15. veikindadegi sé
óvinnufærni að minnsta kosti í
21 dag. Við mat á almennri ör-
orku (vegna örorkulífeyris/
styrks eða endurhæfingalífeyr-
is) er yfirleitt gerð sú krafa, að
viðkomandi hafi notið sjúkra-
dagpeninga áður en til örork-
umats kemur. Miðast þá upphaf
greiðslna vegna örorku við lok
greiðslu sjúkradagpeninga.
Flestir eiga einnig rétt á greiðsl-
um sjúkradagpeninga frá við-
komandi stéttarfélagi.
EES - samningurinn
Frá gildistöku EES samnings-
ins um síðustu áramót gilda al-
mannatryggingareglur Evrópu-
sambandsins hér á landi. Regl-
urnar gilda um launþega og
sjálfstætt starfandi menn og fjöl-
skyldur þeirra og geta veitt rétt
til bóta í því landi sem dvalist er
í, búið eða starfað. Reglurnar
gilda ekki um námsmenn.
Menn eiga rétt á læknisþjónustu
í öðru EES landi í eftirtöldum
tilfellum:
1. Við tímabundna dvöl, til
dæmis í sumarleyfi, ef þeir
þarfnast hennar án tafar.
2. Við vinnu og/eða búsetu í
öðru EES landi.
3. Við tímabundin störf í þágu
hérlends vinnuveitanda í
öðru EES landi. Launþegar
eru áfram tryggðir hér á
landi í eitt ár í slíkum tilfell-
um.
4. Atvinnuleysingjar og ör-
orku- og ellilífeyrisþegar.
Sérstakar reglur gilda í þess-
um tilfellum.
I upplýsingabæklingi TR„A/-
mannatryggingar og EES“ eru
nánari leiðbeiningar um hvaða
staðfestingarvottorði þarf að
framvísa í ofangreindum tilfell-
um.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS