Læknablaðið - 15.09.1994, Page 71
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
339
Tillögur um vísindasiðanefnd
og Siðaráð landlæknis
Á síðustu mánuðum hefur
mikið verið um það rætt bæði
hjá landlæknisembættinu og
Siðaráði landlæknis hvernig
bæta megi siðfræðilega umfjöll-
un um vísindarannsóknir sem
gerðar eru innan heilbrigðis-
þjónustunnar og rannsóknir
sem gerðar eru á fólki og lúta að
heilsu þeirra og velferð. Siða-
nefndir eru starfandi á stærstu
sjúkrastofnunum en yfirleitt
ekki á smærri stofnunum eða ut-
an þeirra. Margar rannsóknir
tengjast einnig mörgum stofn-
unum og aðilum.
Heilbrigðisstarfsfólk hér á
landi vinnur oft að rannsóknum
með erlendum aðilum sem gera
kröfur um að þverfaglegir hóp-
ar fjalli um rannsóknaráætlanir.
Nær undantekningarlaust eru
siðanefndir sjúkrastofnana
skipaðar læknum en í Siðaráði
landlæknis starfa fulltrúar Há-
skóla íslands (læknir og prófess-
or í heimspeki), ASÍ (lögfræð-
ingur), heilbrigðisstétta og
landlæknis (hj úkrunarfræði ng-
ar og læknir).
Siðaráð landlæknis hefur far-
ið þess á leit við landlækni að
hann beiti sér fyrir því að heil-
brigðisráðherra skipi óháða
þverfaglega vísindasiðanefnd.
Hlutverk vísindasiðanefndar
verði að fjalla um og gefa um-
sagnir um vísindarannsóknir á
sviði heilbrigðismála.
Ennfremur er lagt til að Sið-
aráð landlæknis starfi áfram og
hafi það meginhlutverk að fjalla
um siðfræðileg álitaefni innan
heilbrigðisþjónustunnar. Ósk
þessi kemur til vegna þess að
samkvæmt lögum tekur em-
bættið við fjölmörgum málum
árlega, til dæmis varðandi inn-
byrðis samkipti heilbrigðis-
stétta og samkipti heilbrigðis-
stétta og almennings.
Pað er skoðun landlæknis að
hér á landi þurfi að vera starf-
Handareining hefur verið
starfrækt innan slysa- og bækl-
unardeildar Borgarspítalans um
nokkurt skeið og hefur einnig
verið sinnt flóknari handar-
áverkum svo og þeim fjölmörgu
tilvísunum sem borist hafa und-
irrituðum vegna handarvanda-
mála.
I sumar höfum við notið að-
stoðar tveggja lýtalækna hvað
áverkana varðar, en þeir eru
Rafn Ragnarsson og Guðmund-
ur M. Stefánsson og hefur það
samstarf gengið með ágætum.
Báðir hafa þeir umtalsverða
reynslu í handarskurðlækning-
um og einnig hafa þeir veitt
þjónustu sem lýtalæknar.
Vonir standa til að þetta sam-
stá'rf múrii halda áfram og munu
þeir því einnig sinna tilvísunum
__sem einingunni berast eftir því
andi tvær nefndir, það er að
segja þverfagleg vísindasiða-
nefnd og Siðaráð landlæknis
auk siðanefnda á heilbrigðis-
stofnunum.
Samvinna þarf að vera á milli
þessara nefnda.
Landlæknisembættið
sem henta þykir, en þannig mun
bið eftir afgreiðslu tilvísana
væntanlega styttast. Ef sjúkling7
ur eða tilvísandi læknir óskar
eftir sambandi við einhvern
ákveðinn lækni er rétt að taka
slíkt fram á tilvísuninni því ann-
ars verður hún afgreidd af þeim
sem hefur stysta biðtímann.
Athygli skal einnig vakin á
fyrirhugaðri gigtarmóttöku á
vegum bæklunarlækningadeild-
ar og handareiningar. Verður
þar boðið upp á teymisvinnu
margra aðila við mat á gigtar-
sjúklingum með tilliti til skurð-
aðgerða vegna gigtarinnar.
Verður þetta nánar kynnt síðar
hér í Læknablaðinu.
Magnús Páll Albertsson,
yfirlæknir
Handareining
á vegum slysa- og bæklunar-
lækningadeildar Borgarspítalans