Læknablaðið - 15.05.1995, Blaðsíða 72
(flúoxetín)
árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxetín)
Framleiðandi: OMEGA FARMA ht. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; N 06 A B 03. Hver tafla
inniheldur: Fluoxetinum INN, klórið, samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg. Hylki; N 06 AB 03. Hvert hylki
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetin er geð-
deyfðaríyf, sem er talið verka þannig, aðþað blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda i heila. Lyfið hefur
lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni í heila. Flúoxetín minnkar mataríyst. Blóðþéttni lyfsins
nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetins í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni
flúoxetíns er norflúoxetin, sem er álíka virkt og flúoxetin og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding I
plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út íþvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs
helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábending-
ar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandiþunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábend-
ingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrar-
sjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í byrjun
meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum.
Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki. slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kviði, sljóleiki, munnþurkur og
aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-
hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að
töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyffyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá þvitöku flúexetíns
er hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af
flúoxetíniog þarfþviað fylgjast vel með litíummagni iblóði. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3
vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki i meira en 80 mg á dag. Við
mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum geturþurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Lyfið er ekki ætlað börnum.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990
Pakkningar:
Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk.
Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.