Læknablaðið - 15.05.1995, Blaðsíða 20
394
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
hjá sjúklingi með meint glútenóþol er mjög lágt
á íslandi.
Inngangur
Glúten er eggjahvítuefni í ýmsum kornteg-
undum, þó sérstaklega í hveiti, byggi og rúgi
(1). Glútenóþol getur valdið bólgu í húð og
þarmi. Húðsjúkdómurinn nefnist hringblöðru-
bólga (dermatitis herpetiformis) en þarma-
sjúkdómurinn glúten-garnamein (gluten-sens-
itive enteropathy, celiac eða nontropical
sprue, celiac disease). Bólga vegna giúten-
óþols er helst talin vera af ofnæmistoga, orsök-
uð af truflun á frumubundna ónæmiskerfinu
(1). Þarmabólgan skemmir og rýrir slímhúðina
þannig að frásogi næringarefna verður áfátt
(malabsorption), sem síðan leiðir til vannær-
ingar. Sjúkdómurinn er á mjög mismunandi
háu stigi, allt frá því að vera einkennalaus yfir í
að valda verulegum einkennum frá meltingar-
vegi og alvarlegum teiknum um næringarskort.
Greiningin byggist fyrst og fremst á smásjár-
skoðun vefjasýnis úr smáþörmum. Mikilvægt
er að greina sjúkdóminn þar sem meðferðin,
glútensnautt fæði, ber oftast mjög góðan áran-
gur.
Glúten-garnamein er talið nokkuð algengt í
nágrannalöndunum og er algengi víðast einn
sjúklingur fyrir hverja 1000-2000 íbúa (1). At-
hyglisvert er, að í Svíþjóð fer tíðni vaxandi
meðal barna (2). Faraldsfræðileg rannsókn á
sjúkdómnum hérlendis hefur ekki verið gerð
fyrr en nú. Almennt hefur verið talið að sjúk-
dómurinn sé fremur sjaldgæfur hér á landi, en
þó hafa greinst nokkur tilfelli á Norðurlandi
eystra (3). Má leiða að því getum að á Islandi
sé landfræðileg dreifing kvillans mismunandi.
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna
tíðni og algengi glúten-garnameins á Islandi á
30 ára tímabili, athuga sérstaklega útbreiðslu
sjúkdómsins meðal barna, kanna landfræði-
lega dreifingu sjúkdómsins og afla ítarlegra
upplýsinga um aldur, kyn og einkenni sjúk-
linga. Meint greiningartöf sjúkdómsins var
könnuð. Þá þótti áhugavert að athuga hve oft
smáþarmasýni eru jákvæð hjá þeim sem grun-
aðir eru um glúten-garnamein.
Efniviður og aðferðir
Gerð var afturskyggn rannsókn á glúten-
óþoli í görn, sem tók yfir 30 ára tímabil, frá
byrjun árs 1962 til loka árs 1991. Rannsóknin
náði til allra aldurshópa, einnig barna (skil-
greind yngri en 16 ára). Fimm mismunandi að-
ferðum var beitt tii þess að finna sjúklingana:
1. Leitað var að sjúkraskrám í tölvuskrá og
sjúklingabókhaldi Landspítala, Borgarspítala,
Landakotsspítala og Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri (FSA) undir viðeigandi ICD (Int-
ernational classification of diseases) númer-
um. Fyrir 1962-1970 var leitað undir númerinu
ICD-7 286.0, fyrir 1971-1980 undir númerinu
ICD-8 269.0 og fyrir 1981-1991 var númerið
ICD-9 579.0
2. Leitað var í tölvuskrá Rannsóknastofu
Háskólans í meinafræði að mjógirnissýnum
sem sýndu verulega eða algera visnun á þarma-
totum (subtotal eða total villous atrophia).
Tölvuskráningin náði aftur til ársins 1984.
3. Haft var samband við sérfræðinga í melt-
ingarsjúkdómum, blóðmeinafræði og barna-
lækningum.
4. Leitað var að sjúklingum með aðstoð nær-
ingarráðgjafa.
5. Leitað var að sjúklingum með því að hafa
samband við „Samtök fólks með glútenóþol".
Farið var yfir sjúkraskrár allra sjúklinga og
haft samband við nær alla og lagður fyrir þá
ítarlegur spurningalisti. Fullorðnir sjúklingar
þurftu að uppfylla ákveðin skilyrði (1) (tafla I).
Inntökuskilyrði fyrir börn voru samkvæmt
upprunalegum skilmerkjum ESPGAN (The
European Society for Paediatric Gastroent-
erology and Nutrition) (4) (tafla II). Meina-
Table 1. Inclusion criteria* for adults in tlie study on celiac
disease in Iceland.
1. Subjective and/or objective symptoms or signs of
intestinal malabsorbtion.
2. Total or subtotal villous atrophy on a small intestinal
biopsy.
3. Unequivocal clinical improvement after gluten with-
drawal and/or treatment with corticoid steroids.
* All three criteria had to be fulfilled.
Table II. Inclusion criteria* for children in the study on celiac
disease in Iceland.
1. Small intestinal biopsy showing total or subtotal vil-
lous atrophy.
2. Normal mucosa in a small intestinal biopsy on a
gluten-free diet.
3. Histologic relapse on reintroduction of gluten.
*AII three criteria had to be fulfilled. These criteria are according to the
original ESPGAN (The European Society for Paediatric Gastroenterology
and Nutrition) criteria (4).