Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1996, Page 14

Læknablaðið - 15.02.1996, Page 14
124 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Fig. 1. Number of men and women in each age year group using antiasthmatic medication in March 1994. Fig. 2. Proportion of total population using antiasthmatic medication in March 1994 (bars). Estimate of how many Icelanders are using antiasthmatics altogether. frá öðrum landssvæðum. í 440 tilfellum voru lyfin ekki sótt af sjúklingi sjálfum. Svör við spurningalista sjúklings bárust frá 1351 og voru heimtur því 66,7%. Þar af bárust 476 svör í pósti. Alls neituðu 42 einstaklingar þátttöku. Ekki var kynjamunur á svörun spurningalista og þátttakan var svipuð eftir aldri. Aldur og kyn astmalyfjanotenda. Af astma- lyfjanotendum voru 1046 (52,2%) konur og 957 (47,8%) karlar. Notendur voru flestir meðal þeirra yngstu og elstu (mynd 1). í yngsta aldurhópnum (undir fimm ára) voru hlutfalls- lega mun fleiri piltar (p<0,001). Kynjaskipting var síðan svipuð fram að 45 ára aldri en eftir það voru konur fleiri en karlar (p<0,001). Upplýsingar um kyn eða aldur vantaði frá 30 einstaklingum. Ef tekið er tillit til fólksfjölda á íslandi í lok desember 1993 þá fengu tæplega 2% lands- manna undirfimm ára aldri afgreidd astmalyf í apótekum í mars 1994 (mynd 2). Fram undir fertugt var notkunin hlutfallslega mjög lítil (=0,4%) en fór vaxandi eftir fimmtugt og meðal 65 ára og eldri sóttu um 2% þjóðarinnar astmalyf í apótek í marsmánuði 1994. Magn og skainmtar astmalyfja. Alls voru 1574 ávísanir á sérhæfð beta2-adrenvirk lyf, 838 á innöndunarstera, 208 á teófýllín, 49 á andkó- línvirk lyf og 19 á natríumkrómóglíkat (tafla I). Heildarnotkun astmalyfja var mæld sem með- alfjöldi skilgreindra dagskammta (SDS) á 1000 íbúa og er samkvæmt því 28,8 SDS á 1000. Skilgreindir dagskammtar algengra astmalyfja eru sýndir í töflu II. Magn ávísaðs lyfs á 1000 íbúa var langlægst fyrir natríumkrómóglíkat (tafla I). Magn ávísaðra sérhæfðra beta2-ad- renvirkra lyfja á lyfseðil var að meðaltali 73 SDS og var langminnst (p<0,0001) hjá þeim 38 sem fengið höfðu mixtúru (22 SDS) en svipað hjá þeim 42 sem fengið höfðu töflur og aðal- notendahópnum með innöndunarlyf (n=1471). Ávísað magn teófýllíns og andkólínergra lyfja var yfirleitt til 120 daga notkunar (tafla I). Erfitt er að áætla hvað læknar ávísa háum skammti lyfja á dag, enda eru skammtar astmalyfja oft breytilegir sérstaklega við notk- un sérhæfðra beta2-adrenvirkra lyfja til inn- öndunar. Notkun innöndunarstera er aftur á móti reglubundnari og var meðalávísaður dag- skammtur 1053 (±616) pg á dag. Skammta- stærðir voru mjög mismunandi (mynd 3). Langflestir (49,7%) voru með 800-1200 pg á dag, 6,3% voru með undir 400 pg á dag og

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.