Læknablaðið - 15.02.1996, Qupperneq 14
124
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Fig. 1. Number of men and women in each age year group
using antiasthmatic medication in March 1994.
Fig. 2. Proportion of total population using antiasthmatic
medication in March 1994 (bars). Estimate of how many
Icelanders are using antiasthmatics altogether.
frá öðrum landssvæðum. í 440 tilfellum voru
lyfin ekki sótt af sjúklingi sjálfum. Svör við
spurningalista sjúklings bárust frá 1351 og voru
heimtur því 66,7%. Þar af bárust 476 svör í
pósti. Alls neituðu 42 einstaklingar þátttöku.
Ekki var kynjamunur á svörun spurningalista
og þátttakan var svipuð eftir aldri.
Aldur og kyn astmalyfjanotenda. Af astma-
lyfjanotendum voru 1046 (52,2%) konur og
957 (47,8%) karlar. Notendur voru flestir
meðal þeirra yngstu og elstu (mynd 1). í yngsta
aldurhópnum (undir fimm ára) voru hlutfalls-
lega mun fleiri piltar (p<0,001). Kynjaskipting
var síðan svipuð fram að 45 ára aldri en eftir
það voru konur fleiri en karlar (p<0,001).
Upplýsingar um kyn eða aldur vantaði frá 30
einstaklingum.
Ef tekið er tillit til fólksfjölda á íslandi í lok
desember 1993 þá fengu tæplega 2% lands-
manna undirfimm ára aldri afgreidd astmalyf í
apótekum í mars 1994 (mynd 2). Fram undir
fertugt var notkunin hlutfallslega mjög lítil
(=0,4%) en fór vaxandi eftir fimmtugt og
meðal 65 ára og eldri sóttu um 2% þjóðarinnar
astmalyf í apótek í marsmánuði 1994.
Magn og skainmtar astmalyfja. Alls voru 1574
ávísanir á sérhæfð beta2-adrenvirk lyf, 838 á
innöndunarstera, 208 á teófýllín, 49 á andkó-
línvirk lyf og 19 á natríumkrómóglíkat (tafla I).
Heildarnotkun astmalyfja var mæld sem með-
alfjöldi skilgreindra dagskammta (SDS) á 1000
íbúa og er samkvæmt því 28,8 SDS á 1000.
Skilgreindir dagskammtar algengra astmalyfja
eru sýndir í töflu II. Magn ávísaðs lyfs á 1000
íbúa var langlægst fyrir natríumkrómóglíkat
(tafla I). Magn ávísaðra sérhæfðra beta2-ad-
renvirkra lyfja á lyfseðil var að meðaltali 73
SDS og var langminnst (p<0,0001) hjá þeim 38
sem fengið höfðu mixtúru (22 SDS) en svipað
hjá þeim 42 sem fengið höfðu töflur og aðal-
notendahópnum með innöndunarlyf (n=1471).
Ávísað magn teófýllíns og andkólínergra lyfja
var yfirleitt til 120 daga notkunar (tafla I).
Erfitt er að áætla hvað læknar ávísa háum
skammti lyfja á dag, enda eru skammtar
astmalyfja oft breytilegir sérstaklega við notk-
un sérhæfðra beta2-adrenvirkra lyfja til inn-
öndunar. Notkun innöndunarstera er aftur á
móti reglubundnari og var meðalávísaður dag-
skammtur 1053 (±616) pg á dag. Skammta-
stærðir voru mjög mismunandi (mynd 3).
Langflestir (49,7%) voru með 800-1200 pg á
dag, 6,3% voru með undir 400 pg á dag og