Læknablaðið - 15.02.1996, Qupperneq 61
167
Frá Félagi íslenskra lækna
í Bretlandi
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
m.
Tveimur erindum, sem fjöll-
uðu um könnun á tilteknum
lyfjaformum, var vísað frá
nefndinni, þar sem hætt var við
könnunina samkvæmt ósk
Lyfjaeftirlits ríkisins.
Erindi um lausmælgi aðstoð-
arlæknis um einkamálefni sjúk-
lings var vísað til viðkomandi
yfirlæknis og því beint til hans
að þessu tilefni gefnu að minna
starfsmenn deildarinnar á trún-
aðarskyldur þeirra gagnvart
sjúklingum og aðstandendum.
Kæru um að ónafngreindur
læknir eða læknar hafi brotið
þagnarskyldu sína var vísað frá
Siðanefnd að svo stöddu, þar
sem ekki kom fram að hverjum
kæran beindist.
Beiðni fjögurra lækna um
leyfi til að framkvæma tiltekna
rannsókn var vísað til stjórnar
LÍ, þar sem nefndin taldi það
heyra til Vísindasiðanefndar,
en löggjöf að slíkri landsnefnd
er í undirbúningi.
PÞ
Haldinn var aðalfundur í Fé-
lagi íslenskra lækna í Bretlandi,
FILÍB, þann 25. nóvember síð-
astliðinn. Kosin var ný stjórn og
er hún þannig skipuð; Þórður
Sigmundsson formaður, Engil-
bert Sigurðsson ritari og Anna
Sverrisdóttir gjaldkeri. Tals-
verðar umræður urðu vegna
nýgerðs kjarasamnings LR og
TR vegna sérfræðilæknishjálpar
eins og meðfylgjandi ályktun
fundarins ber með sér.
Fundarályktun
FÍLÍB mótmælir harðlega 1.
ákvæði nýgerðs kjarasamnings
TR og LR um sérfræðilæknis-
hjálp. Þetta ákvæði er ekki
aðeins siðlaust gagnvart íslensk-
um læknum sem ekki eru aðilar
að samningnum, því hér er um
grundvallarbreytingu á skipan
læknisþjónustu á íslandi að
ræða heldur er einnig með
gjaldstýringu fyrir borð borinn
réttur sjúklinga til að eiga kost á
bestu læknisþjónustu sem völ er
á hverju sinni eins og kveðið er á
um í 1. grein laga um heilbrigð-
isþjónustu.
Það er mikið áhyggjuefni að
TR sem á að gæta réttar sjúk-
linga ekki síður en læknar skuli
hafa samþykkt slíkt ákvæði
þegar sparnaðaráformum hafði
verið náð með þaki á heildar-
fjölda eininga sérfræðinga.
Fyrir heill íslenskrar læknastétt-
ar er þó nánast um glapræði að
ræða á tímum sundrungar. Eldri
stéttarbræður hafa með sam-
þykkt samningsins hinn 15.
ágúst 1995 tekið þá ákvörðun að
láta eigin hagsmuni ganga fyrir
rétti íslenskra þegna til læknis-
þjónustu og fyrir rétti yngri
starfsbræðra til að bjóða þjón-
ustu sína á jafnréttisgrundvelli.
Ef svo fer fram sem horfir
kunna ekki aðeins heimilis-
læknar heldur einnig yngri sér-
fræðingar í öðrum sérgreinum
að íhuga að segja skilið við LR á
næstu árum. I Alþjóðasiðaregl-
um lækna (Genfarheit lækna)
segir: Lœkni ber að breyta við
stéttarbrœður sína á þann hátt
sem hann óskaði eftir að þeir
breyttu við hann. Akvæðið erþó
ekki aðeins siðlaust, undarlegt
má heita ef það brýtur ekki í
bága við landslög.
Stjórn LR og fulltrúum TR í
samningnefnd ber því að fella út
fyrsta ákvæði samningsins við
endurskoðun hans um áramót.
Verði það ekki gert hvetjum við
íslenska sérfræðinga sem hefur
verið meinað að starfa fyrir ís-
lenska þegna á vegum TR, sem
og íslenska þegna sem hafa orð-
ið fyrir fjárhagslegum útgjöld-
um vegna ákvæðisins að leita
réttar síns hjá umboðsmanni
Alþingis eða fyrir dómstólum.
FÍLÍB mótmælir einnig að
enn viðgengst að ráðið sé í stöð-
ur sérfræðinga við íslenskar
heilbrigðisstofnanir án þess að
þær séu auglýstar með lög-
bundnum hætti og þannig kom-
ið í veg fyrir samkeppni á jafn-
réttisgrunni.