Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1998, Page 9

Læknablaðið - 15.01.1998, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 9 B C A D E Participants Stage I Stage II Stage III Stage IV Stage V M 1967-'68 W 1968-’69 M 1970-71 W 1971-72 M 1974-76 W 1977-79 M 1979-’81 W 1981-’84 M 1985-'87 W 1987-’91 M 2954 W 3101 Total group of men (M) = 12,843 M 2756 W 2936 M 2283 W 2429 M 2106 W 2191 Total group of women (W) = 13,647 Fig. 1. Schematic figure of the study plan of the Reykjavík Study includmg number of participants divided into study groups and the time of invitation of each study group to examination in five stages. Ályktanir: Tíðni þriðju gráðu leiðslurofs í þessu almenna þýði reyndist lág en þó meiri en í rannsóknum sem birtar hafa verið. Fáir reyndust vera með langvinnt leiðslurof. Allir höfðu einhverja aðra hjartasjúkdóma og virt- ust horfur fremur ráðast af þeim en leiðslurof- inu sjálfu. Færri einstaklingar en vænta mátti reyndust hafa gangráð. Inngangur Skammvinn eða langvarandi skemmd í leiðslukerfi hjartans getur leitt til þess að raf- boð berast ekki milli gátta og slegla og kallast það ástand þriðju gráðu leiðslurof. Oftast tek- ur sá gangráður handan gátta-slegla (g-s) hnútsins, sem hefur hraðasta afskautunartíðni við stjórn sleglanna. Ef leiðslurofið er staðsett í hnútnum sjálfum verður afskautun yfirleitt rétt neðan við hnútinn á hraðanum 40-55 á mínútu og QRS bilið helst eðlilegt. Tíðni sleglanna eykst með gjöf atrópíns eða við áreynslu, en það verður ekki ef hindrunin er neðar í kerf- inu. Gáttir og sleglar starfa óháð hvort öðru, hvor hólfin fyrir sig með reglulegri tíðni. Þriðja stigs leiðslurof er ein af helstu orsökum þess að gáttir og sleglar fylgjast ekki að (1). Tíðni þriðju gráðu leiðslurofs hefur oftast verið athuguð meðal sjúklinga með þekkta hjartasjúkdóma. Athuganir á almennu þýði hafa aðallega takmarkast við ákveðna starfs- hópa að einni undanskilinni. Öllum rannsókn- unum ber saman um að tíðnin sé lág (2-6). Þriðju gráðu leiðslurof er oftast talið vera al- varlegt sjúkdómseinkenni sem þarfnast skjótr- ar meðferðar, en flestar athuganir á afdrifum sjúklinga hafa samt sem áður beinst að fólki sem vistaðist á sjúkrahúsum. Hóprannsókn Hjartaverndar gefur kost á að rannsaka afbrigði í hjartariti almennings, bæði tíðni þeirra og þýðingu. í þessari grein skýrum við frá algengi þriðju gráðu leiðslurofs og könnum afdrif einstaklinga sem reyndust hafa slíkt leiðslurof við hópskoðun. Einnig var at- huguð tíðni og ábendingar fyrir ísetningu gangráðs í þýðinu. Efniviður og aðferðir Hóprannsókn Hjartaverndar er framskyggn hjarta- og æðarannsókn seni hófst árið 1967. Rannsóknin var gerð með tilliti til einkenna og áhættuþátta kransæðasjúkdóma með forvarn- araðgerðir í huga og til að afla upplýsinga uni faraldsfræði hjartasjúkdóma og annarra lang- vinnra sjúkdóma. Til rannsóknarinnar var boðið karlmönnum fæddum 1907-1934 og kon- um fæddum 1908-1935 sem voru búsett í Reykjavík og nokkrum nágrannabæjum sam- kvæmt Þjóðskrá 1. desember 1966. Alls var rannsóknin gerð í fimm áföngum og í hverjum áfanga var boðið einum, tveimur eða þremur hópum. Hóparnir voru valdir eftir ákveðnum fæðingardögum eins og áður hefur verið lýst (mynd 1). Mæting var best í fyrsta áfanganum, karlar

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.