Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1998, Síða 44

Læknablaðið - 15.05.1998, Síða 44
404 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 er mjög athyglisverð grein með titlinum Roche deCODEs Icelandic population in $200 million deal (4). Eitt umræðuefni greinarinnar er hvað Roche hafi fengið fyrir alla þess peninga (vel að merkja: þetta er tífalt hærri upphæð en flest- ir fyrri samingar milli lyfjafyrirtækja og erfða- tæknifyrirtækja, jafnvel mun öflugri fyrirtækja en Islenskrar erfðagreiningar). Fréttamenn Nat- ure Biotechnology virðast ekki vita frekar en aðrir ótengdir hvað fylgir nákvæmlega í samn- ingnum. Hins vegar er haft eftir einum sérfræð- ingi, og viðmælanda blaðsins, Elizabeth Sil- verman hjá BancAmerica, á eftirfarandi hátt: „Þetta er frábær samningur fyrir Roche“, að hennar áliti. Hún telur 200 milljónir Banda- ríkjadala (14 milljarða íslenskra króna) tiltölu- lega litla fjárfestingu, þó svo einungis verði unnt að fullþróa eitt eða tvö lyf á grundvelli þessa samnings. Fyrir milligöngu Islenskrar erfðagreiningar fær Roche aðgang að rafrænum og líffræðilegum skrám um nær alla 270.000 einstaklinga þjóðarinnar. „Þjóðin er gríðarlega verðmæt", segir Elizabeth. Viðbrögð erlendis Eins og fram hefur komið í íslenskum fjöl- miðlum þá var samningurinn við Roche mjög mikilvægur fyrir íslenska erfðagreiningu. En út á hvað gengur samningurinn? Nature Biotechnology fylgir málinu eftir með annarri grein í aprílhefti tímaritsins undir fyrirsögninni. Mining the genetic riches of human populations (5). Aftur eru íslensku at- burðimir efst á dagskrá en nú í víðari samhengi varðandi samskipti smáþjóða og erfðafyrir- tækja. Þar er meðal annars fjallað um meinta einokun íslenskrar erfðagreiningar á erfðarann- sóknum á Islandi. Bent er á að í viðleitni fyrir- tækisins, til dæmis í formi ókeypis lyfja, felist nýjar hugmyndir til að þjóðir geti haldið eftir einhverri greiðslu fyrir innlegg sitt. Þessari lausn á samspili þjóðar og erfðarannsóknarfyr- irtækis hafnar undirritaður alfarið sem veigalít- illi greiðslu. Slíkar gjafir minna helst á þegar indíánum voru gefnar glerperlur fyrir gull. Hvað er það í þessu máli sem mesta athygli vekur erlendis? Um það er hægt að lesa í ofan- nefndum greinum og öðrum sem birst hafa á erlendum vettvangi. Þar má nefna til dæmis fréttaskýringarsyrpu Whose DNA is it anyway? í tímaritinu Science (6) og greinina The new Icelandic saga í evrópsku útgáfunni af tímarit- inu Time (7). Ég hvet lesendur til að kynna sér vel erlenda umfjöllun um þetta efni. Hún er nokkuð á annan veg en umfjöllunin hér heima. Ýmsir erlendir aðilar sem um málið fjalla furða sig á því að nokkur þjóð skuli vilja láta setja saman svo ítarlegan og vandmeðfarinn gagna- grunn um sig alla og láta hann síðan vera gjöf til að styrkja rannsóknir einkafyrirtækis, einka- fyrirtækis sem hefur það að markmiði að selja aðgang að þessum viðkvæmu upplýsingum. Hvað verður um þjóð sem lætur slíkt henda sig? Þekktasta tímarit fyrir almenning um vís- indi Scientific American lýsti þessum áformum á sinn meitlaða hátt: íslendingar verða eðlis- lœg tilraunadýr („natural-born guinea pigs“) (8). En það er ekki eingöngu mikil rituð umfjöll- un um málið. Höfundur þessarar greinar var til dæmis nýverið á fundi sérfræðinganefndar á vegum Évrópusambandsins sem hefur verið falið það verk að gera úttekt á stöðu erfða- mengisrannsókna í Evrópusambandinu. Hug- myndin er að sú þekking nýtist til skipulagn- ingar erfðamengisrannsókna samkvæmt 5. rammaáætlunni. Á fundinn mættu um 20 full- trúar ríkja sambandsins allir ábúðarfullir og til- búnir til að takast á við mikið verkefni á litlum tíma. Um hvað spurðu fyrstu fulltrúarnir sem tóku til máls? Þeir spurðu hvað væri að gerast á Islandi. Ef áform um gagnagrunn ná fram að ganga þá munu þeir trúlega spyrja mig á næsta vetri um erfðaánauð (genetic slavery). Peningalegt verðmæti gagnagrunnsins Það hefur ítrekað verið rakið í fjölmiðlum hve gott Island sé til erfðarannsókna. Miðlæg- ur gagnagrunnur sem hefði að geyma upplýs- ingar um heilsufar, ættfræði og sameindaerfða- fræði væri mjög verðmætt tæki til rannsókna í erfðafræði og faraldsfræði. Hvort þau verðmæti réttlæti þær hættur sem fylgja því að búa til slíkan grunn þarf ítarlega umfjöllun til að svara. En hversu verðmætur myndi hann vera í krónum talið? Fram hafa komið þær athugasemdir að heilsufarsupplýs- ingar liggi nú verðlausar inni á sjúkrahúsum og því sé ekkert því til fyrirstöðu að gefa þessar upplýsingar aðila sem ásælist þær og vilji nýta þær sér í ágóðaskyni. Jafnvel litlir strákar á götunni vita að um leið og einhver annar vill eitthvað sem þeir eiga þá hefur viðkomandi hlutur fengið verðmæti. Þótt eignarréttur á sjúkraskrám sé óljós þá tel ég að sjúklingar, heilbrigðisstarfsmenn og stofnanir í heilbrigðiskerfinu séu augljósir kröfuaðilar. Ef einhverjir eiga að hagnast á sölu heilsufarsupplýsinga þá eru það þessir aðilar fyrst og fremst. Islensk erfðagreining hefur gefið okkur hugmynd um verðmæti grunnsins. Þeir segja að smíði gagnagrunnsins kosti um 12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.